„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þjáning getur verið dásamleg á margan hátt“

Valdís Sylvía Sig­ur­þórs­dóttir hefur starfað sem einka­þjálf­ari í næstum tvo ára­tugi en hún er stofn­andi Jump fit og Foam flex á Íslandi. Hún segir mik­il­vægt að tala fal­lega til sjálfs sín og burð­ast ekki um með hug­ar­fars­leg aukakíló. Valdís prýðir for­síðu nýj­ustu Vikunnar.

„Þjáning getur verið dásamleg á margan hátt“

Und­an­farin ár hefur Valdís ferð­ast mikið ásamt eig­in­manni sínum til Asíu, fjórum sinnum til Taílands og þrisvar til Balí. Þegar við­talið fór fram var Valdís einmitt á leið­inni til Balí. „Fyrsta ferðin mín var árið 2010 en þá heim­sótti ég Taíland. Það urðu algjör þátta­skil í mínu and­lega ferli. Ég heill­að­ist af ein­hverju sem ég get ekki komið orði að. Þar er fátækt en líka mikil gleði. Mér líður alltaf best innan um heima­menn en ekki túrist­ann. Ég vil upp­lifa þeirra menn­ingu og ég er ekki þessi kona að nennir að gera sig sæt­ari á hverju kvöldi.“

Í kjöl­far ferð­ar­innar fór Valdís að lesa sér til um búdd­isma og hindúa­trú þar sem allt snýst um karma.

„Ég held í hjarta mér að ég muni fá það sem ég á skilið og það sem ég gef frá mér skipti miklu máli. Ef það kemur eitt­hvað upp á held ég alltaf ró minni því ég veit að karma sér um sitt. Og ef ein­hver svíkur mig þá nota ég þessa hugsun, karmað sér um þetta og málið er farið. Ég las nýverið bók í Taílandi sem fjallar um það hvernig þján­ingin getur reynst fólki sem gjöf, þá hugsun hef ég til­einkað mér. Við lærum svo margt í þján­ingu og nú er ég alls ekki að tala um þján­ingu við missi fólks eða annað álíka áfall eins og sjúk­dóma eða slys.

Ég tala um raun­hæf mark­mið en samt þarf þessa góðu þján­ingu í bland.

Ég er að tala um til­finn­inga­legan þroska að mark­miðum. Hvað þján­ing er dásam­leg á margan hátt. Mann­eskja sem reykir ætti að vilja að þjást aðeins, ekki að ótt­ast sárs­auk­ann. Það þarf að þjást til að fá þessa vellíðan að vera reyk­laus. Mann­eskja sem ætlar sér mark­mið í rækt­inni ætti einnig að vilja þjást aðeins, að læra að skilja að þján­ing er hjálp­leg og maður ætti ekki alltaf að bug­ast undan löng­unum.

Ég tala um raun­hæf mark­mið en samt þarf þessa góðu þján­ingu í bland. Við þjá­umst alveg í prófa­törn í skóla en við lærðum það korn­ung að þetta þurfum við að gera til að útskrif­ast. Það er eitt­hvað sem við kunnum. Alveg sama þján­ing og ég er að tala um, bara nota hana á öllum öðrum sviðum líka. Það mætti alveg kenna þetta í skólum og ég meina það ekki á dramat­ískan hátt.

Ég nota þján­ing­una til að ganga aðeins lengra, þegar ég er alveg að springa á hlaupa­brett­inu.

Mér líður ekk­ert alltaf vel á meðan en hugs­unin leitar alltaf í líð­an­ina eftir á. Ég nota líka þján­ingu þegar ég þori ekki, að þá hugsa ég fram á við. Þetta er það sem ég kalla að spjalla við sjálfið á upp­byggj­andi hátt. Að elska þján­ing­una er virki­lega þrosk­andi og róandi.“

Þetta er aðeins brot úr við­tal­inu við Valdísi. Viðtalið í heild sinni má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem nú er komið á sölu­staði. 

Viðtalið við Valdísi Sylvíu má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Myndir / Unnur Magna
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu