„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Nokkrum númerum of flippaður“

Ást­hildur Gunn­ars­dóttir starfar sem verk­efna­stjóri á staf­rænu aug­lýs­inga­stof­unni SAHARA. Hún segir líf sitt ein­kenn­ast af fjöl­breyttum og skemmti­legum verk­efnum en að fata­stíll­inn sé nokkuð stíl­hreinn.

„Nokkrum númerum of flippaður“

„Ég er frekar gömul sál en bý yfir óbilandi áhuga á íþróttum. Ég er með sterka rétt­læt­is­kennd, mikla mat­ar­ást, elska að syngja og hafa gaman en í mér blundar jafn­framt nett full­komn­un­ar­árátta,“ segir Ást­hildur þegar hún er beðin um að lýsa sjálfri sér.

„Ég hrífst oft­ast af ein­földum flíkum og er helst til of hrifin af svörtu þó að ég sé að vinna í að lífga upp á fata­skáp­inn og velja bjart­ari liti. Ég nota oft yfir­hafnir og kápur til þess að brjóta upp dökku lit­ina en svo á ég reyndar líka mikið af líf­legum kjólum sem ég tóna niður með ein­litum jökkum.

Efst á óska­list­anum er fal­legt veski þar sem ég er sjálf ótrú­lega léleg við að kaupa mér fylgi­hluti. Svo myndi ég ekki slá hend­inni við öðrum fal­legum kjól frá Yeoman. Ég á einmitt afmæli á næst­unni og hver veit nema mér verði að ósk minni.“

Svo kaupi ég furðu­lega mikið af nagla­lakki miðað við hvað ég er löt við að nota það.

Aðspurð um furðu­leg­ustu kaupin nefnir Ást­hildur svartan og gulan silki­kjól. „Þetta voru jafn­framt ein skemmti­leg­ustu kaupin en kjól­inn keypti mamma fyrir mig í versl­un­inni Júníform en til­efnið var útskriftin mín úr BA-nám­inu. Ég horfði á kjól­inn og hugs­aði með mér að þessi væri nú nokkrum núm­erum of flipp­aður fyrir mig. Hvernig í ósköp­unum myndi ég „púlla“ þessa liti. Hann reynd­ist svo eins og sér­snið­inn á mig og kenndi mér að þora að vera smá­vegis öðru­vísi. Að því sögðu finnst mér allra skemmti­leg­ast að kaupa kjóla og aftur kjóla. Þar fyrir utan hef ég gaman af skó­kaupum og svo kaupi ég furðu­lega mikið af nagla­lakki miðað við hvað ég er löt við að nota það.“

„Flíkin sem hefur mesta til­finn­inga­lega gildið fyrir mig er pels frá ömmu Ástu. Hún var kona með fal­legan stíl og topp­aði það með líf­legum per­sónu­leika. Pelsinn nota ég nán­ast bara við sér­stök til­efni og þegar ég er í honum líður mér eins og hún sé aðeins nær mér.“
„Rauðu skórnir frá ömmu eru án efa minn eft­ir­lætis fylgi­hlut­ur­inn.“
„Upp­á­halds­flíkin mín er fjólu­blái Yeoman-kjóll­inn sem ég fékk í jóla­gjöf frá Arnóri mínum um síð­ustu jól. Hann plat­aði mig í mát­un­ar­ferð á aðvent­unni til að finna eitt­hvað sem mig lang­aði í. Ég mát­aði örugg­lega hálfa búð­ina á meðan starfs­fólkið bar í mig hvítvín og hrós­aði dress­inu og mér í bak og fyrir. Frábær upp­lifun!“
„Ég keypti mér á dög­unum fal­lega kápu í Company‘s og kjól í H&M. Kjólar og kápur eru í miklu upp­á­haldi og því var það borð­leggj­andi að bæta við í kápuflór­una svo ég ofnoti nú ekki þær yfir­hafnir sem ég á, þá sér­stak­lega Birger et Mikk­el­sen-kápuna góðu. Svo lang­aði mig til að kanna hvernig ökkla­síðir kjólar færu mér, en það er mikið um þá þessa dag­ana og þessi reynd­ist virka vel fyrir mig.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minn stíll

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu