„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Góð kaup á útsölum

Nú eru útsöl­urnar í fullum gangi og hér eru nokkur góð ráð til að gera örugg­lega sem best kaup.

Góð kaup á útsölum

Mættu snemma

Algeng­ustu stærð­irnar og nýj­ustu vör­urnar eru það sem fer fyrst á útsöl­unum. Ekki bíða of lengi svo þú eigir ekki á hættu að missa af því sem þú hefur hug á.

Vertu undirbúin/n

Hvað er það sem vantar í fata­skáp­inn þinn? Ef þú veist að hverju þú leitar er lík­legra að finna það inn á milli á troðnum fata­slám eða í hillum búð­anna. Leitaðu uppi klass­ískar, end­ing­ar­góðar flíkur í góðum sniðum en forðastu kass­ana þar sem allt kostar fáeina hund­rað­kalla.

Ekki kaupa bara eitthvað

Hefurðu haft auga á til­tek­inni flík eða skóp­ari lengi? Kannaðu hvort hún sé komin á útsölu, þá ætti að vera auð­velt að rétt­læta kaupin fyrir sér. Forðastu þau mis­tök að kaupa flík­ina ein­ungis vegna þess að hún er á afslætti. Ef þú myndir ekki kaupa hana á fullu verði áttu lík­leg­ast ekki eftir að nota hana mikið hvort sem er.

Kauptu aðeins það sem passar á þig

Ekki kaupa buxur sem þú „ætlar að passa í“ í sumar. Ef kápan er allt of þröng, ekki kaupa hana með það að mark­miði að missa nokkur kíló til að passa í hana. Verð­laun­aðu þig frekar með nýrri flík þegar mark­miðum þínum hefur verið náð.

Kauptu sumarvörur í vetur – og öfugt

Á útsölum er oft hægt að gera frá­bær kaup á árs­tíða­bundnum vörum. Við höfum orðið varar við góð til­boð á sum­ar­vörum, á öllu frá striga­skóm upp í reið­hjól. Ef þú ætlar hvort sem er að fjár­festa í slíkum hlutum með hækk­andi sól er ekki úr vegi að gera það núna. Í stað­inn gætir þú notað sum­ar­út­söl­urnar til að kaupa kuldagalla á börnin. Alltaf skrefi á undan, ha?

100% afsláttur – já, takk

Mundu að mesti sparn­að­ur­inn er fólg­inn í því að kaupa ekki neitt. Eggja­suðu­vél á 50% afslætti er á 100% afslætti ef þú sleppir því að kaupa hana. Það er fátt leið­in­legra en að eyða pen­ing­unum sínum í eitt­hvað sem fer beint upp í skáp og er bara fyrir. Sleppum því frekar.

Skoðaðu netverslanir

Troðnar versl­un­ar­mið­stöðvar og biðraðir eru ekki spenn­andi til­hugsun í augum margra. Oftast er hægt að gera jafn­góð ef ekki betri kaup í net­versl­unum, bæði inn­lendum og erlendum. Komdu þér vel fyrir uppi í sófa með rauð­víns­glas og kredit­kortið að vopni og gerðu góð kaup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ráðleggingar

Sex hlutir sem við ættum ekki að gera húð okkar
Fólk

Sex hlutir sem við ættum ekki að gera húð okkar

Húðin gegnir mjög marg­þættu hlut­verk, til dæmis ver hún okkur gegn sýklum, fram­leiðir D-vítamín, hindrar vökva­tap frá lík­am­anum og svo margt fleira. Í ofaná­lag ætl­umst við til að hún hald­ist fal­leg og hraust­leg, sér­stak­lega á and­lit­inu. Við verðum þó að horfast í augu við það að lífs­stíls­venjur okkar hafa mikil áhrif á húð­ina og hér eru nokkur atriði sem við ættum alveg að sleppa.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu