„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tek fagnandi á móti Buffalo-skónum aftur

Gyða Dröfn Svein­björns­dóttir, vöru­merkja­stjóri Ölgerð­ar­innar, heldur úti síð­unni gyda­drofn.com en þar fjallar hún um lífs­stíl, heilsu, ferða­lög og tísku. Það var því ekki úr vegi að skyggn­ast inn í fata­skáp Gyðu Drafnar enda margt fag­urt þar að finna.

Tek fagnandi á móti Buffalo-skónum aftur

Gyða Dröfn er fædd og upp­alin á Akureyri en hefur unda­farin ár verið búsett í Garðabæ. Hún lærði sál­fræði við Háskóla Íslands með áherslu á mark­aðs­fræði sem hún segir að reyn­ist sér vel í núver­andi starfi.

„Ég myndi segja að stíl­inn minn væri frekar kven­legur og fín­legur og undir sterkum asískum áhrifum. Ég elska létt og flæð­andi efni í ljósum litum, í bland við asísk munstur og snið. Ég er yfir­leitt alltaf í ein­hverju ljósu að ofan og nota mikið léttar skyrtur og kimonoa. Ég er líka mjög hrifin af því að Buffalo-skór eru komnir aftur í tísku og mig dauð­langar að fjár­festa í pari. Þar sem ég er ekki mjög hávaxin er þetta trend ein­stak­lega praktískt fyrir mig. Þessu fylgir ákveðin nostal­gía þar sem ég átti Buffalo-skó þegar ég var yngri og tek því fagn­andi á móti þeim aftur.“

Ég elska létt og flæð­andi efni í ljósum litum, í bland við asísk munstur og snið.

Aðspurð hvaðan Gyða Dröfn sæki inn­blástur seg­ist hún horfa mikið til Instagram.

„Ég fylgist bæði með ein­stak­lingum og versl­unum þar og fæ inn­blástur af myndum frá þeim. Annars versla ég mikið bæði erlendis og á Netinu en einnig hér heima. Erlendis eru versl­an­irnar & Other Stories og Urban Outfitters í miklu upp­á­haldi. Ég skoða mikið vef­versl­an­irnar Asos og Na-kd, og kíki svo oft­ast í Zara, Vero Moda, Spring­fi­eld, Gallerí og Húrra hér heima. Ég á alltaf mjög erfitt með mig þegar kemur að kimonoum og ég held ég eigi í kringum fimmtán stykki. Það er bara eitt­hvað við sniðið og fal­legu mynstrin á þeim sem ég stenst alls ekki.“

„Sú flík sem hefur hvað mesta til­finn­inga­lega gildið verður eig­in­lega að vera annar kimono, sem að kemur kannski ekki á óvart þar sem um 1/3 af skápnum mínum er kimonoar. En þennan keypti ég í Miami, sem er einmitt upp­á­halds­borgin mín og kærastans og ég klædd­ist honum kvöldið sem við trú­lof­uðum okkur.“
„Ég fjár­festi nýlega í síðum, dökk­bláum kjól úr mesh-efni af síð­unni na-kd.com. Hann var ætl­aður fyrir utan­lands­ferð sem er á döf­inni á næst­unni, en hann var svo fal­legur að ég stóðst ekki mátið og not­aði hann á við­burði um dag­inn. Ég fékk ótal spurn­ingar um hann enda er hann bæði fal­legur og þægi­legur.“
„Upp­á­halds­flíkin mín í augna­blik­inu er þessi gull­fal­legi kimono sem ég fékk í afmæl­is­gjöf. Ég stenst ekki fal­lega kimonoa og þessi er alveg ein­stakur. Á afmæl­inu mínu fyrr á árinu hélt ég veislu með japönsku þema og lang­aði í fal­legan kimono til að klæð­ast í veisl­unni. Ég fann þennan á Netinu en hann var mjög dýr svo ég tímdi ekki að splæsa í hann. Kærast­inn minn ákvað þá að gefa mér hann í afmæl­is­gjöf sem gladdi mig ein­stak­lega mikið. Ég hef notað hann mjög mikið og hann er án efa það allra fal­leg­asta sem ég á.“
„Ég er óvenju­lega lítið fyrir að nota fylgi­hluti og er til dæmis afskap­lega sjaldan með skart­gripi. En nýlega hef ég tekið ást­fóstri við scrunchies-hárteygjur og þær eru upp­á­halds­fylgi­hlut­ur­inn í augna­blik­inu. Ég keypti mér nokkrar í mis­mun­andi litum og munstrum sem ég para við mis­mun­andi klæðnað.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minn stíll

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu