„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sambland af japanskri götutísku og samstæðum göllum

Breska lista­konan Kitty Von-Sometime hefur verið búsett hér á landi síð­ast­liðin þrettán ár en hún er þekkt­ust fyrir The Weird Girls Project, röð verka eða mynd­bands­þátta með konum í for­grunni. Kitty er með ein­stakan fata­stíl og þess vegna er til­valið að skyggn­ast inn í fata­skáp­inn hennar.

Sambland af japanskri götutísku og samstæðum göllum
Kitty. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kitty lýsir fata­stíl sínum sem kæru­leys­is­legum og seg­ist yfir­leitt henda saman fötum án þess að hugsa mikið um það. „Mér er alveg sama hvaða tíska er í gangi en ég tjái mig mikið í gegnum flík­urnar sem ég klæð­ist, þær verða þó líka alltaf að vera þægi­legar. Dags­dag­lega klæð­ist ég mikið sam­stæðum göllum en við sér­stök til­efni skelli ég mér í eighties-sam­fest­ing í anda Dynasty-þáttar­að­ar­innar.“

Ég tjái mig mikið í gegnum flík­urnar sem ég klæð­ist.

Flestar flíkur finnur Kitty í herra­deildum en hún verslar jafn­framt mikið á Netinu sem og á flóa­mörk­uðum. Inn­blástur sækir hún til kvik­mynda frá níunda ára­tugnum, hipphopp tón­listar tíunda ára­tug­ar­ins sem og jap­anskrar götu­tísku.

„Ég fell alltaf fyrir sam­stæðum buxum og bolum, grófu prenti og ljótum flíkum frá níunda og tíunda ára­tug­unum. Allt sem Ardala, prinsessan í Buck Rogers, myndi klæð­ast en sömu­leiðis glæpa­gengið í Superman 2. Nánast allt af því sem ratar í minn fata­skáp eru flíkur sem flest fólk myndi álíta skrítið svo spurn­ingin hvað það furðu­leg­asta sem ég hef keypt á varla við í mínu til­felli. Ætli það væri samt ekki túrkislit­aði brúð­ar­kjóll­inn sem ég keypti lík­lega fjórum núm­erum of stóran.“

Aðspurð hvað sé efst á óska­list­anum nefnir Kitty fyrst nátt­föt frá fata­hönn­uð­inum Munda.

„Ég á rosa­lega stórt safn af nátt­fötum en er engu að síður alltaf á hött­unum eftir fleirum. Annars vantar mig líka alltaf ull­ar­föt fyrir vinn­una. Að starfa við kvik­mynda­gerð á Íslandi krefst þess að eiga ótæpi­legt magn af hlýjum fötum. Upp­á­halds­flíkin mín er einmitt ull­ar­sam­fest­ingur í yfir­stærð eftir Munda. Við vorum mikið saman á árunum áður en hann flutti til Þýska­lands en ég hafði auga­stað á þessum sam­fest­ingi í þó nokkurn tíma áður en hann varð minn. Ég var eins og Wayne með gít­ar­inn í Waynes world-mynd­inni „it will be mine“ og á end­anum gerð­ist það. Ég elska hann enda er hann ekki bara hlýr og þægi­legur heldur sjúk­lega flottur.“

Þrátt fyrir að sam­bandið okkar hafi ekki gengið er þetta það róm­an­tís­kasta sem ég hef upp­lifað og mér þykir alltaf vænt um þessa húfu.

„Þessi der­húfa er mér mjög kær, margir halda kannski að ég hafi látið búa hana til fyrir mig en nei. Ég kynnt­ist fyrr­ver­andi kon­unni minni í Banda­ríkj­unum en þegar hún kom í fyrsta skipti að heim­sækja mig til Íslands var hún með þessa húfu á höfð­inu. Þrátt fyrir að sam­bandið okkar hafi ekki gengið er þetta það róm­an­tís­kasta sem ég hef upp­lifað og mér þykir alltaf vænt um þessa húfu. Hún átti sem sé húf­una en ég þreytt­ist ekki á að stela húf­unni af henni svo á end­anum varð hún mín.“

„Upp­á­halds­fylgi­hlut­ur­inn minn eru þessir sér­hönn­uðu Converse-leð­ur­skór. Ég hann­aði þá frá grunni og lét lógóið vera matt en útkoman er nákvæm­lega eins og mig dreymdi.“
„Síðasta flíkin sem ég keypti voru tveir sam­stæðir gallar sem ég lét búa til í Póllandi, annar með dalma­tíu­hunda-mynstri og hinn köfl­óttur í yfir­stærð.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minn stíll

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu