Netflix-þættirnir The Crown hafa notið mikilla vinsælda síðan þeir komu fyrst út árið 2016. Þættirnir fjalla um líf Elísabetar Englandsdrottningar og fjölskyldu hennar. Aðdáendur þáttanna hafa undanfarið velt vöngum yfir því hver mun leika Díönu í fjórðu seríu þáttanna.
Í gær var greint frá því að búið er að ráða leikkonu í hlutverkið.
Í frétt The Guardian segir að leikkonan sem mun fara með hlutverk Díönu hafi heillað þau sem annast leikaraval strax upp úr skónum.
Leikkonan sem um ræðir er 23 ára og heitir Emma Corrin og er nýgræðingur í leiklistarheiminum en er mikill aðdáandi þáttanna The Crown. „Ég hef verið límd við þættina síðan fyrsta þátturinn var sýndur,“ var haft eftir Emmu.
Höfundur þáttanna, Peter Morgan, segir Emmu afar hæfileikaríka og búa yfir sakleysislegu yfirbragði líkt og Díana gerði. „Hún heillaði okkur um leið og hún kom inn í áheyrnarprufu.“
Leikaravalið hefur vakið töluverða athygli en Emma þykir nokkuð lík Díönu í útliti.
View this post on Instagram
overjoyed, over the moon and incredibly honoured ❤️ what a project to join @thecrownnetflix
A post shared by Emma Corrin (@emmalouisecorrin) on Apr 9, 2019 at 9:03am PDT


























Athugasemdir