Kristian Anttila stígur fyrstur á stokk en hann er mjög glúrinn í að galdra fram góð popplög og áhugaverða texta. Hann er einnig með skemmtilega sviðsnærveru og stíl sem hann er búinn að slípa til á um 800 tónleikum sínum um allan heim. Tónleikarnir með Kristian eru 16. júní og hefjast klukkan 15. Ókeypis verður inn líkt og á alla sunnudagstónleika Norræna hússins.


























Athugasemdir