Allt var upp á tíu hjá okkar fólki á sviðinu í Tel Aviv í gær.
Hatari hefur fengið mjög mikla athygli út um allan heim undanfarið. Þá rataði sveitin á nokkrar forsíður fréttablaða víða um heim og margir fréttaþættir hafa fjallað um íslenska atriðið.
Liðsmenn sveitarinnar Matthías, Klemens og Einar vöknuðu þá snemma í morgun til að mæta í viðtal hjá spjallþættinum Good Morning Britain á ITV.

Nóg er um að vera hjá sveitinni og hópnum þeirra en undirbúningur er nú þegar hafinn fyrir sjálft úrslitakvöldið sem fram fer á laugardaginn. Mun Hatari sigra Eurovision? Það er stóra spurningin en margir fróðir spekúlantar segja lagið sigurstranglegt!
Þess má geta að atriðinu er spáð fimmta sæti í veðbankanum á EurovisionWorld.com.


























Athugasemdir