Bílnum var ekið í suðurátt eftir Vesturlandsvegi þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í aflíðandi beygju með þeim afleiðingum að hann valt og endaði utan vegar. Að sögn lögreglu er bifreiðin mikið skemmd. Tveir Íslendingar voru farþegar í bílnum, kona og karl. Þyrlan lenti með hin slösuðu í Reykjavík um klukkan eitt í nótt. Þjóðvegum var lokað á meðan vinna fór fram og þeirri vinnu lauk um klukkan þrjú í nótt. Tildrög slyssins eru ókunn.


























Athugasemdir