„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Það þarf að gera eitthvað núna. Ekki á morgun. Því stórslys er í aðsigi.“

Í leið­ara Mannlífs í dag fjallar Roald Eyvinds­son útgáfu­stjóri um ástandið á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Veltir hann fyrir sér hvað þurfi til að ein­stak­lingar hætti að benda hver á annan þegar staðan er gagn­rýnd og taki raun­veru­lega á vand­anum?

„Það þarf að gera eitthvað núna. Ekki á morgun. Því stórslys er í aðsigi.“

Þarf fleiri dauðsföll af völdum álagsmistaka?

„Auðvitað er með ólík­indum og til hábor­innar skammar að svona skuli staðan vera í nútíma­sam­fé­lagi. Sam­fé­lagi þar sem ráða­menn leyfa sér að hreykja sér af því út um allar koppa­grundir hversu fram­ar­lega Ísland standi í hinu og þessu á meðan stofnun sem er jafn­mik­il­væg sam­fé­lag­inu og bráða­móttakan er í molum. Hvað þarf eig­in­lega til svo þetta góða fólk hætti að þrugla um hag­ræð­ingu og sparnað og stór fram­tíð­ar­á­form sem eigi að bjarga öllu þegar málið ber á góma. Hvað þarf til svo það hætti að benda hvert á annað þegar staðan er gagn­rýnd og taki raun­veru­lega á vand­anum. Faraldur? Eða kannski fleiri dauðs­föll af völdum álags­mistaka? Maður hrein­lega spyr sig. Því það er löngu orðið ljóst að svona gengur þetta ekki lengur. Að það þarf að gera eitt­hvað núna. Ekki á morgun. Því stór­slys er í aðsigi.“

Fregnir sem eru ekki nýjar af nálinni

„Þetta er auð­vitað ekki í fyrsta sinn sem fregnir ber­ast af hættu­á­standi á bráða­mót­tök­unni. Í fyrra lýsti hjúkr­un­ar­fræð­ingur í pistli, sem vakti athygli, hörm­ung­ar­degi á spít­al­anum föstu­dag­inn 13. sept­em­ber. Þá hafi „nýtt og ömur­legt“ met verið slegið á bráða­mót­tök­unni þegar 41 sjúk­lingur var lagður inn en á deild­inni eru 36 rúm. Ekkert svig­rúm hafi verið fyrir starfs­fólkið að taka á móti nýjum sjúk­lingum sem streymdu þó á spít­al­ann. Kennslu­stjóri bráða­lækn­inga á Land­spít­al­anum tók undir þau orð í við­tali stuttu síðar og sagði að ástandið á bráða­mót­tök­unni hefði verið slæmt lengi en nú væri það orðið „far­sa­kennt,“ segir Roald.

Land­spít­al­inn er ein af grunn­stoðum íslenskt sam­fé­lags og þar ríkir grafal­var­legt ástand. „Já, ástandið þarna er búið að vera slæmt svo lengi að í des­em­ber 2018 sá Embætti land­læknis sig knúið til að láta gera úttekt á stöð­unni. Sú úttekt leiddi í ljós að bráða­móttakan glímdi meðal ann­ars við mann­eklu, ófull­nægj­andi starfs­að­stöðu og útskrift­ar­vanda, þar sem við­eig­andi legu­deildir á spít­al­anum gátu ekki tekið við sjúk­ling­unum vegna pláss­leysis. Með öðrum orðum reynd­ist vax­andi álag ár frá ári, und­ir­mönnun og skortur á hjúkr­un­ar­rýmum vera nokkrar af ástæðum þess að allt var komið í bull­andi rugl á deild­inni. Teymið sem gerði úttekt­ina var­aði við því að ástandið gæti stofnað öryggi sjúk­linga í hættu,“ skrifar Roald.

„Ég hef miklar áhyggjur af vetr­inum. Það er fyr­ir­sjá­an­legt að þetta getur ekki farið vel. Það er full ástæða til að vara við því.“ Með þessum hætti lýsir Már Krist­jáns­son, yfir­læknir á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans, stöð­unni sem nú er komin upp á bráða­mót­tök­unni. Deildin sé þegar yfir­full. Sprungin. Sýk­ing­ar­varnir brostnar. Og stór­slys í aðsigi.

„Það þarf að gera eitt­hvað núna. Ekki á morgun. Því stór­slys er í aðsigi.“

Bráðamóttökunni líkt við slömmin í London

Og ekki virt­ust nið­ur­stöð­urnar koma þeim sér­stak­lega á óvart sem til þekktu. Einn læknir gekk meira að segja svo langt að líkja ástand­inu á bráða­mót­tök­unni við slömmin í London á tímum Dickens í pistli sem birt­ist á vef Kvenna­blaðs­ins í jan­úar í fyrra. Ef ein­hver ætlar að reyna að halda því fram að sú lýs­ing sé stór­lega ýkt þá hefur sá hinn sami varla þurft að gera sér ferð niður í Fossvog nýlega og séð ástandið með eigin augum. Það hefur und­ir­rit­aður gert þegar hann hefur fylgt fjöl­skyldu­með­limum þangað og getur stað­fest að þar er ekki gæfu­legt um að lít­ast. Her­bergin troð­full af sjúk­lingum og rest­inni komið fyrir í rúmum frammi á göng­unum eða á setu­stofu til bráða­birgða. Og þótt starfs­fólkið geri ævin­lega sitt allra­besta er hverjum manni ljóst sem er með sjón­ina í sæmi­legu lagi að blessað fólkið er að kikna undan álagi.

Sjá leið­ar­inn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landspítali Íslands

Nýr Landspítali langt fram úr áætlun – Rúmir 16 milljarðar fjúka aukalega
Innlentlandspítali Íslands

Nýr Land­spít­ali langt fram úr áætlun – Rúmir 16 millj­arðar fjúka auka­lega

Nýbygg­ingar Land­spít­al­ans kosta 16,3 millj­örðum króna meira en kostn­að­ar­mat gerði upp­haf­lega ráð fyrir. Heild­ar­kostn­að­ur­inn verður tæp­lega 80 millj­arðar. Morg­un­blaðið greinir frá. Þessi mikli auka­kostn­aður kom í ljós eftir fyr­ir­spurn Bergþórs Ólasonar, þing­manns Mið­flokks­ins, sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra svar­aði. Haft er eftir Gunnari Svav­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra opin­bera hluta­fé­lags­ins Nýs Land­spít­ala, að aukið umfang verk­efn­is­ins skýri kostn­að­ar­aukn­ing­una. Einn stærsti lið­ur­inn í þessum auka­kostn­aði...
Sakar Dag um að svíkja loforð
Innlentlandspítali Íslands

Sakar Dag um að svíkja lof­orð

Kolbrún Bald­urs­dóttir segir Dag. B. Egg­erts­son ekki hafa efnt lof­orð um að taka á vanda Land­spít­al­ans. „Á þeim degi sem meiri­hlut­inn kynnti sátt­mála sinn mætti ég á svæðið og spurði hvort til stæði að leysa mann­eklu­vanda gaf borg­ar­stjóri lof­orð um að taka ætti á biðlistum í félags­legri heima­þjón­ustu og hjúkrun. Nú eru liðin tvö ár og enn er staðan grafal­var­leg,“...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins