„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Andrés vill að klaustursþingmenn taki ærlegheit Báru sér til fyrirmyndar

„Bára brást við eins og ærleg mann­eskja. Hún axl­aði ábyrgð gjörða sinna og fór að úrskurði Per­sónu­verndar,” sagði Andrés Ingi Jónsson, þing­maður vinstri grænna, um Báru Hall­dórs­dóttur, upp­ljóstr­ara klaust­urs­máls­ins, í störfum þings­ins morgun. Þá skaut hann á klaust­urs­þing­menn fyrir þver­öf­uga hegðun.

Andrés vill að klaustursþingmenn taki ærlegheit Báru sér til fyrirmyndar
Andrés Jónsson

„Við skulum öll muna eftir hópnum sem sat á Klaustri til að tala á ógeðs­legan hátt um sam­starfs­fólk sitt, konur, fatlað fólk og svo fram­vegis,” sagði Andrés um þing­menn­ina sem Bára tók upp á Klaust­urs­bar undir lok síð­asta ár.

„Bára brást ekki við eins og sumir hefðu gert, með því að þvæla mál­inu í gegnum allar mögu­legar og ómögu­legar laga­flækjur,” sagði Andrés og skaut að Mið­flokks­mönnum; „Hún reyndi ekki að afskrifa úrskurð Per­sónu­verndar með fjar­stæðu­kenndum sam­sær­is­kenn­ingum, eins og við þekkjum orðið allt of mörg dæmi um.”

Þá minnti hann þing­sal á að Bára hefði ekki reynt að snúa út úr nið­ur­stöðum Per­sónu­verndar heldur fram­fylgdi dómnum. „Bára tók ábyrgð. Hvað með þau?” sagði Andrés í lok ræð­unnar.

Bára varð lands­fræg undir lok síð­asta árs eftir að hafa orðið vitni af fjög­urra klukku­stunda ölæði og grobbi þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins. Miðviku­dags­kvöldið 28. nóv­ember 2018 birtu Stund­in, DV og Kvenna­blaðið frétt­ir sem unn­ar eru upp úr hljóð­upp­töku af sam­tali fjög­urra þing­mann­anna Mið­flokks­ins; Sig­mund­ar Davíðs Guðlaugs­son­ar, Gunn­ars Braga Sveins­son­ar, Bergþórs Ólason­ar og Önnu Kol­brún­ar Árna­dótt­ur, og tveggja þing­manna Flokks fólks­ins; Karls Gauta Hjalta­son­ar og Ólafs Ísleifs­son­ar. Karl Gauta og Ólaf var vikið úr Flokki fólks­ins. Báðir hafa nú gengið í Mið­flokk­inn.

Stjórn Per­sónu­verndar komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok maí að Bára Hall­dórs­dóttir hefði brotið per­sónu­vernd­ar­lög þegar hún tók upp sam­talið í Klaustri í nóv­em­ber á síð­asta ári. Henni var ekki gert að greiða sekt en skyldi eyða upp­tök­unni sem hún gerði.

Sjá einnig: Klaust­urs­upp­tökur á Báru­brennu að skipan Per­sónu­verndar: „Ég hef svosem ekk­ert við upp­tök­urnar að gera.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klaustursmálið

Miðflokksmenn ætla ekki að fylgjast með eyðingu upptökunnar: „Bára hver?“
Innlentklaustursmálið

Mið­flokks­menn ætla ekki að fylgj­ast með eyð­ingu upp­tök­unnar: „Bára hver?“

„Bára hver?” spurði Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins og einn Klaust­urs­þing­manna, er Mannlíf innti hann eftir hvort búast mætti við honum og jafn­vel þing­flokk Mið­flokks­ins á Bára­móta­brennu í kvöld. Á við­burð­inum verður upp­töku Báru Hall­dórs­dóttur frá Klaustri eytt með form­legum hætti við hátíð­lega athöfn.
Klaustursupptökur á Bárubrennu að skipan Persónuverndar: „Ég hef svosem ekkert við upptökurnar að gera.”
Innlentklaustursmálið

Klaust­urs­upp­tökur á Báru­brennu að skipan Per­sónu­verndar: „Ég hef svosem ekk­ert við upp­tök­urnar að gera.”

„Lög­fræð­ing­ur­inn minn verður þarna með skörp augu á sím­anum og tekur eyð­ing­una upp” segir Bára Hall­dórs­dóttir, upp­ljóstr­ari í Klaust­urs­mál­inu, sem boðað hefur til Bára­móta­brennu í til­efni úrskurðar Per­sónu­verndar um að hún hafi brotið per­sónu­vernd­ar­lög í klaust­urs­mál­inu. „Mynd­bandið verður svo sent til per­sónu­verndar.”
Halldóra Mogensen um stjórnmálamenn í kosningaham: „Lofa öllu fögru til að halda völdum.”
Innlent

Halldóra Mogensen um stjórn­mála­menn í kosn­inga­ham: „Lofa öllu fögru til að halda völdum.”

„Lofa öllu fögru til að halda völdum,” sagði Halldóra Mogensen , þing­kona Pírata, um stjórn­mála­menn í kosn­inga­ham. Þetta sagði hún í eld­hús­dags­um­ræðum í kvöld. Halldóra bætti við að eftir kosn­ingar hefði fólk mátt venj­ast því að lof­orðin stand­ist ekki. Nefndi hún sem dæmi að allir flokkar hefðu lofað að enda krónu á móti krónu skerð­ingu en slíkt hafi enn ekki gerst.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins