„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Við Miðflokksfólkið höfum ekki farið fram á dagskrárvald“

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, gerði við­brögð vegna mál­þófs flokks­ins í máli þriðja orku­pakk­ans að umfjöllun í eld­hús­dags­um­ræðum.

„Við Miðflokksfólkið höfum ekki farið fram á dagskrárvald“

„Á Alþingi Íslend­inga gilda ákveðnar leik­reglur. Forseti hvers tíma ræður dag­skrá og afhendir engum dag­skrá­vald. Við Mið­flokks­fólkið höfum ekki farið fram á dag­skrár­vald. Við höfum ekki fengið það. Við höfum hins vegar boð­ist til að greiða götu ann­arra mála á þing­inu und­an­farið. Það hefur ekki verið þegið. Þing­fundir hafa staðið að áður óþekktri lengd við litla aðstoð,“ sagði Þor­steinn.

Hann sagði umræðu Mið­flokks­ins hafa skilað vit­neskju sem ekki var vituð áður. „Fyrir fram­lagn­ingu þings­á­lykt­unar um þriðja orku­pakk­ann vissum við ekki að VG, Vinstri græn, væru helstu málsvarar mark­aðsvæð­ingar orku­auð­lindar þjóð­ar­innar. Við vissum heldur ekki þá að Vinstri græn vildu stuðla að því að hér á landi yrðu reistir stórir vind­myllu­garðar og smá­virkj­anir víða um land með til­heyr­andi nátt­úru­spjöllum. Við vissum heldur ekki þá að Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur myndu ganga á bak sam­þykktum flokk­stofn­anna sinna um málið. Við vissum ekki fyrir tíu dögum að orku­pakki fjögur væri til­bú­inn en við vitum það núna. Við vissum ekki fyrr tíu dögum að full­fjár­magn­aður sæstrengur væri til­bú­inn svo að segja í bak­garð­inum okkar á vegum stór­fyr­ir­tækis sem segir á heima­síð­unni sinni að fyr­ir­tækið sé í góðu tal­sam­bandi við ráð­herra í öllum rík­is­stjórna­flokk­unum og að stuðn­ingur við verk­efnið sé að aukast þverpóli­tískt. Við vissum ekki að sú skoðun um að sú skoðun væri almenn meðal fær­ustu lög­manna að fyr­ir­varar í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu rík­is­stjórn­ar­innar væru ónýtir. Við vitum það núna. Við vissum ekki fyrir tíu dögum að stjórn­laga­dóm­stóll Noregs myndi taka fyrir inn­setn­ingu þar í sept­em­ber næst­kom­andi vegna inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Allt þetta vitum við nú að loknum þeim umræðum sem átt hafa sér stað und­an­farið og dýpkað hafa skiln­ing og þekk­ingu á mál­inu. Við vitum hins vegar ekki enn hví lág svo á að keyra þetta í gegnum þingið í and­stöðu meiri­hluta­vilja þjóð­ar­innar.“

Þor­steinn sagði sam­starf VG, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar æsa upp allt það versta í fari flokk­anna. Þá hét Þor­steinn því að Mið­flokk­ur­inn muni berj­ast af sama krafti aftur ef hags­munir þjóð­ar­innar eru undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldhúsdagsumræður

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins