„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þrautaganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barnsins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“

And­stæð­ingar þung­un­ar­rofs í Banda­rík­unum beita harka­legum aðferðum til að þrýsta á konur að leita ekki réttar síns og rjúfa þungun. „Ekki drepa barnið þitt,“ og „Við getum hjálpað þér“ er meðal þess sem mót­mæl­endur gegn þung­un­ar­rofi kalla á konur sem leita sér aðstoðar. Konur sem vilja fóst­ur­eyð­ingu njóta fylgdar sjálf­boða­liða í gegnum hóp mót­mæl­enda.

Þrautaganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barnsins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“
Skjáskot úr mynd­bandi NowThis POLITICS sem sýnir það sem konur þurfa að ganga í gegnum ef þær sækja þung­un­ar­rof|Kay Ivey rík­is­stjóri Alabama skrifar undir ný lög um þung­un­ar­rof 14. maí 2019. Mynd: Governor.alabama.gov|Ríkisstjóri Kentucky

Þung­un­ar­rof er mikið hita­mál í banda­rískum stjórn­málum. Frétta­veitan NowThis hefur birt mynd­band sem sýnir hvað konur sem leita réttar síns þurfa að ganga í gegnum. Mynd­bandið er slá­andi en þar má sjá hóp mót­mæl­enda þrengja að kon­unni. Predik­ari leiðir mót­mælin með gjall­ar­horni og hvetur hana til að drepa ekki barnið sitt. Konan hylur sig undir úlpu meðan merktir starfs­menn heilsu­gæsl­un­ar­innar veita henni stuðn­ing og leiða hana áfram í gegnum þvög­una. Starfs­menn­irnir eru í vestum sem stendur á „Sjálf­boða­liði og fylgd­ar­maður heilsu­gæslu.“ Mynd­bandið sýnir ótrú­lega þrauta­göngu kvenna sem leita sér lækn­is­að­stoðar.

Mót­mæl­endur sjást með skilti sem fyr­ir­sögnum á borð við „Þung­un­ar­rof er morð.“ Kvenkyns mót­mæl­andi gengur alveg upp að kon­unni og segir við hana „Við getum hjálpað þér. Ekki drepa barnið þitt.“ Þá heyr­ist hrópað að kon­unni; „Ekki drepa barnið þitt! Ekki gera þetta!” Karlkyns predik­ari sem leiðir mót­mælin reynir að ávarpa kon­una með kall­tæki. „Unga dama, þú þarft ekki að vera morð­ingi í dag. Ekki hlusta á spilltar ráð­legg­ingar fólks­ins í app­el­sínu­gulu vest­unum.” Predik­ar­inn á við sjálf­boða­liða heilsu­gæsl­unnar. „Þetta fólk sem er að strjúka þér um bakið og segja við þig að þetta verði allt í lagi. Þetta verður ekki allt í lagi fyrir barnið þitt. Útlimir barns­ins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið. Barninu þínu verður tor­tímt með eit­ur­efnum. Þetta er ekki í lagi nema þú iðrist.” 

Lækna­setrið EMW Womens er eina stöðin í fylk­inu sem hefur leyfi til að fram­kalla þung­un­ar­rofs­að­gerðir. Á setr­inu, sem er einka­rekið, starfa þrír fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­læknar. Um 4,5 millj­ónir manna eru búsettir í Kentucky. Fylkið er 104,659 km² stærð og liggur við landa­mæri Illinois, Ohio og Indiana. Til sam­an­burðar er flat­ar­mál Íslands 103.000 km².

Matt Bevin, Rík­is­stjóri Kentucky.

Þungunarrof óheimil þegar hjartsláttur greinist í fóstri

Matt Bevin, Rík­is­stjóri Kentucky, sam­þykkti síð­ast lið­inn mars nýtt frum­varp um þung­un­ar­rof. Lög­gjöfin átti að taka strax gildi. Þá yrði konum ekki heim­ilt að enda með­göngu eftir að hjart­sláttur grein­ist í fóstri. Hjart­sláttur er grein­an­legur á sjöttu viku með­göngu. Joseph H. McKinley alrík­is­dóm­ari kom í veg fyrir inn­leið­ingu lög­gjaf­ar­innar. Brian Kemp, Rík­is­stjóri Georgíu, hefur sam­þykkt sömu lög­gjöf um þung­un­ar­rof í sínu fylki.

Kim Reynolds, rík­is­stjóri Iowa, skrif­aði undir sama frum­varp repúblik­ana í maí 2018. Lög­gjöfin var stöðvuð í jan­úar síð­ast lið­inn. Umdæm­is­dóm­ari Michael Huppert sagði hana ekki í sam­ræmi við stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna.

Rík­is­stjóri Miss­issippi, Phil Bryant, sam­þykkti sex vikna lög­gjöf­ina í mars síð­ast lið­inn. Alrík­is­dóm­ari gaf út bráða­birgða­dóm sem frestar inn­leið­ingu frum­varps­ins fram í júlí. Þá hefur lög­gjöfin einnig verið sam­þykkt í Ohio af Mike DeWine. Þau Bevin, Kemp, Reynolds, Bryant og DeWine eru Repúblikanar.

Örfá miðríki veita meiri sveigjanleika

Þegar talað er um mið­ríki er átt við þau ríki sem liggja á milli vestur og aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Miðríkin eru almennt talin íhalds­söm þar sem fjöl­skyldu­gildi eru í hávegum höfð. Til eru und­an­tekn­ingar á þessu svæði en Chicago í Illinois er til dæmis frjáls­lynt svæði.

Mike Parson, Rík­is­stjóri Missouri, sam­þykkti frum­varp sem bannar þung­un­ar­rof eftir átt­undu viku. Und­an­tekn­ing á lög­gjöf­inni er gerð ef heilsu móður er stofnað í hættu. Fórn­ar­lömbum nauð­gana eða sifja­spells eru ekki veitt und­an­tekn­ing. Rík­is­stjóri Arkansas og rík­is­stjóri Utah hafa báðir sam­þykkt lög­gjöf um þung­un­ar­rof fram að 18. viku. Þá er fórn­ar­lömbum nauð­gana og sifja­spells veitt und­an­tekn­ing á lög­unum í Arkansas. Einnig er veitt und­an­tekn­ing í báðum fylkjum ef um heilsu­fars­legt neyð­ar­til­felli er að ræða.

Kay Ivey rík­is­stjóri Alabama skrifar undir ný lög um þung­un­ar­rof 14. maí 2019.

Þungunarrof refsiverður glæpur í Alabama

Nýtt frum­varp Repúblik­ana um þung­un­ar­rof í Alabama var sam­þykkt af Kay Ivey, rík­is­stjóra fylk­is­ins, fyrr í mán­uð­inum. Lögin taka gildi eftir tæpa sex mán­uði. Þung­un­ar­rofs­að­gerðir verða þá refsi­verður glæpur. Lögunum fylgir ein und­an­tekn­ing en konum verður heim­ilt að enda þungun ef áfram­hald­andi með­ganga stefnir heilsu þeirra í hættu. Læknar sem fram­kæma aðgerð­ina án heim­ildar getur verið refsað með 99 ára fang­els­is­vist. Konunum verður þá ekki refsað.

„Í dag skrif­aði ég undir frum­varp sem var sam­þykkt af yfir­gnæf­andi meiri­hluta lög­gjaf­ar­þings­ins“ sagði Ivey í yfir­lýs­ingu mið­viku­dag­inn 15. maí. Atkvæða­greiðsla fór fram þriðju­dag­inn 14. maí og kusu 25 af 31 frum­varp­inu í vil. „Fyrir stuðn­ings­menn frum­varps­ins er þessi laga­setn­ing mik­il­vægur vitn­is­burður. Stað­fest­ing á trú fylk­is­búa um að hvert líf er dýr­mætt og að allt líf er heilög gjöf frá Guði.” Ivey tók fram að Roe v. Wade dóm­ur­inn gæti haft áhrif á frum­varpið.

Sjá einnig: Þung­un­ar­rof verður refsi­verður glæpur í Alabama

Roe v. Wade var tíma­móta­mál í banda­rískri rétt­ar­sögu en dóm­ur­inn heim­il­aði þung­un­ar­rof árið 1973 í öllum fylkjum Banda­ríkj­anna. „Sama hvaða skoðun fólk hefur á þung­un­ar­rofi þá getum við búist við því að nýja lög­gjöfin hafi tak­mörkuð áhrif. Að minnsta kosti eins og er” sagði Ivey. „Sem rík­is­borg­arar þessa frá­bæra lands ber okkur að virða hæsta­rétt­ar­dóm, jafn­vel þó við erum ekki alltaf sam­mála honum.”

Randall Marshall, fram­kvæmd­ar­stjóri ACLU, hefur lofað Ivey lög­sókn vegna lag­anna. „Þetta er ein­fald­lega til­raun til þess að koll­varpa 46 ára for­dæmi sem Roe v. Wade dóm­ur­inn setti fram” stóð í yfir­lýs­ingu hans í gær. „Við munum ekki leyfa þessu að ger­ast, sjá­umst í rétt­ar­salnum.”

Demókratar börð­ust fyrir breyt­ing­ar­til­lögu þar sem fórn­ar­lömbum nauðg­unar og sifja­spells yrðu veitt und­an­tekn­ing á lög­gjöf­inni. Þeirri til­lögu var hafnað í atkvæða­greiðslu 11-21.

Vivian Figures, öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður Demókrata, hefur harð­lega gagn­rýnt frum­varpið. „Þú þarft ekki að ala upp barnið, þú þarft ekki að ganga með barnið, þú þarft ekki að gera neitt fyrir barnið.” sagði Figures sem beindi athuga­semdum sínum að Clyde Chambliss, öld­un­ar­deild­ar­þing­manni Repúblik­ana, sem styður frum­varpið. „En samt viltu taka þessa ákvörðun fyrir þessa konu, að þetta þurfi hún bara að gera.”

Þungunarrof leyfilegt til og með 22. viku á Íslandi

Frumvarp um þung­un­ar­rof á 22 viku var sam­þykkt mánu­dag­inn 13. maí í íslenska þing­inu. Umræðan um frum­varpið var harka­leg. Frum­varpið var hins­vegar sam­þykkt með miklum meiri­hluta á þing­inu. Það gerir konum kleift að enda með­göngu til og með 22. viku. Sé íslensk lög­gjöf sett í sam­hengi við til dæmis lög­gjöf­ina í Kentucky og Alabama felst grund­vall­ar­munur á milli þeirra. Á Íslandi var áhersla lögð á rétt kvenna til sjálfs­á­kvörð­unar um eigin lík­ama. Í þeim fylkjum sem hér er fjallað um er mark­miðið þver­öf­ugt. „Þetta er löng veg­ferð en í dag erum við að eign­ast eina fram­sækn­ustu lög­gjöf að því er varðar sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna í heim­inum. Þess vegna er þetta gleði­dagur“ sagði Svandís Svav­ar­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra í atkvæða­skýr­ingu sinni á þung­un­ar­rofs­frum­varp­inu.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, studdi einnig frum­varpið. „Þetta er grund­vall­ar­mál. Það skiptir gríð­ar­legu máli fyrir mig og fyrir mjög marga. Málið er vel unnið, þvert á það sem aðrir hátt­virtir þing­menn hafa sagt hér, bæði í þing­inu og áður en það var lagt hér fram. Málið er byggt á umfangs­mik­illi vinnu og löngu ferli. Það snýr að grund­vall­ar­frelsi kvenna, heilsu okkar og lífi. Ég segi já.“

Halldóra Mogensen, þing­kona Pírata, sagði þetta mik­il­vægt mál og greiddi atkvæði með frum­varp­inu. Hún lýsti yfir von­brigðum vegna þeirra umræðu sem hefði skap­ast í kringum málið. „Hér hefur fólk talað um þessar konur eins og þær séu ein­hvers konar ill­menni og mér þykir ótrú­lega sárt að hafa þurft að hlusta á það.“

Kvenfrelsi trompar ekki önnur álitamál

And­stæð­ingar frum­varps­ins á Íslandi gerðu athuga­semdir við fjórðu grein frum­varps­ins. Þar segir að heim­ilt er að rjúfa þungun konu, að hennar beiðni, til loka 22. viku þung­unar. „Þetta er dagur von­brigða. Afgreiðsla þessa máls ber glöggt vitni um van­getu rík­is­stjórn­ar­innar til að sætta ólík sjón­ar­mið“ sagði Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokks­ins. Hann greiddi atkvæði á móti. „Ekkert hefur verið gefið eftir í þessu máli frá því að það kom inn, ekk­ert þrátt fyrir við­vör­un­ar­orð, ekk­ert þrátt fyrir víð­tæka and­stöðu meðal þjóð­ar­innar.

„Sigríður Á. Andersen, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, greiddi atkvæði gegn frum­varp­inu. „Ég er svo sann­ar­lega fylgj­andi sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna en nefni það að þetta frum­varp lýtur að engu leyti að sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna.

Bjarni Bene­diks­son, fjár­mála-og efna­hags­ráð­herra, var meðal and­stæð­inga frum­varps­ins. „Mér finnst kven­frelsið skipta gríð­ar­lega miklu máli og það á að vera meg­in­þráður í með­ferð þess­ara mála en mér finnst samt kven­frelsi ekki trompa hvert ein­asta annað álita­mál sem upp kemur í þessum efnum.“ Bjarni greiddi atkvæði gegn frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Miðflokkur

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins