„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Paul Ramses og Rosmary reka leik- og grunnskóla í Keníu

Hjónin Paul Ramses Odour og Rosmary Atieno hafa und­an­farin tíu ár unnið að stofnun og rekstri leik­skóla í Keníu. Leik­skól­inn opn­aði árið 2012 og grunn­skóli þremur árum síðar.

Paul Ramses og Rosmary reka leik- og grunnskóla í Keníu
Grunn­skól­inn Verslo í Got Agulu

Fjarð­ar­póst­ur­inn ræðir við hafn­firsku hjónin í nýjasta tölu­blaði pósts­ins. Skólinn ber heitið Verslo þar sem nem­endur og kenn­arar skól­ans hafa stutt verk­efnið af elju. Þegar hafa rúma tvær millj­ónir safn­ast en þó vantar upp á fjár­magn „til að stóri draum­ur­inn ræt­ist.“

Skól­arnir eru í þorp­inu Got Agulu en íþrótta­fé­lag var komið á fót í þorp­inu. Þetta segja hjónin að hafi aukið áhuga kakk­anna á skóla­starf­inu. Samtals eru 270 nem­endur í skól­anum.

Íþróttalið úr þorpinu heimsæki Ísland

Draumur aðstand­enda og nem­enda er að geta stutt við bakið á íþrótta­fé­lag­inu til keppn­is­ferða­laga. Eft­ir­vænt­ingin er mikil fyrir slíku ferða­lagi. Samkvæmt umfjöllun Fjarð­ar­pósts­ins er vilji innan Samtaka íslenskra ólymp­íu­fara að stuðja við fram­gang verk­efn­is­ins og leita sam­starfs við íslensk íþrótta­fé­lög.

„Þau hafa veitt mik­il­vægan stuðn­ing meðal ann­ars með því að senda út nauð­syn­legan búnað. Síðar kom upp sú hug­mynd að sækja um þátt­töku­rétt fyrir eitt af lið­unum á alþjóð­lega knatt­spyrnu­mót­inu ReyCup sem haldið er árlega á Íslandi,“ segir í umfjöllun blaðs­ins. Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur stutt við verk­efnið og boðið hónum gist­ingu í Lækj­ar­skóla og aðra aðstoð. Sömu sögu má segja um íþrótta­fé­lögin í Hafn­ar­firði og vonir standa til að spil­aðir verði vin­áttu­leikir milli lið­anna.

Smári, sonur Pauls og Rosmary skýrður í höf­uðið á Eið Smára

Í við­tal­inu kemur fram að sonur þeirra Pauls og Rosmary, Smári er skýrður í höf­uðið á Knatt­spyrnu­mann­inum Eiði Smára. Hjónin segj­ast mikið dálæti hafa á kapp­anum.

Paul Ramses og Rosmaryn þekkja margir Íslend­ingar en tals­vert var fjallað um mál þeirra á sínum tíma. Þeim var vísað úr landi af útlend­inga­stofnun eftir að hafa sótt um vernd hér á landi. Mikil mót­mæli urðu vegna ákvað­ar­innar. Þau búa í dag í Hafn­ar­firði.

Árið 2015 var fjallað um opnun grunn­skól­ans í Morg­un­blað­inu. Í við­tal­inu kom fram að þau hefðu safnað dósum og flöskum í sex mán­uði til að eiga fyrir fyrsta áfanga þess að opna grunn­skól­ann. Bærinn okkar, frétta­mið­ill í Hafn­ar­firði segir frá því að milljón hafi safn­ast í dósum. „Ágóðann not­uðum við síðan til þess að kaupa land í Ken­ía þar sem við byggðum leik­skóla góð­gerða­sam­tak­anna Tears children sem við stofn­uðum. Leik­skól­inn opn­aði form­lega árið 2012 og hann sækja 100 börn á aldr­in­um 3-5 ára, en mörg þeirra eru mun­að­ar­laus eða börn ein­stæðra mæðra,“ sagði Rosmary árið 2015. Í sama við­tali sagð­ist hún heilluð af íslenska mennta­kerf­inu og að stafið úti taki mið af því.

Hægt að styrkja verk­efnið með bún­aði, aðstoð og fjár­magni.

Hópurinn að baki verk­efn­inu sem auk Pauls og Rosmary eru Gunnar Axel, Margrét Gauja, Bára Frið­riks­dóttir, Sigrún Líf Gunnars dóttir og Guð­mundur Rúnar Árnason segja við Fjarð­ar­póst­inn að þau séu opin fyrir allr aðstoð. Hægt sé að leggja verk­efn­inu lið með bún­aði og klæðn­aði fyrir dreng­ina 15 sem hingað koma og þrjá full­orðna sem henta íslenskum aðstæðum. Þá kemur fram að hóp­ur­inn sé mót­tæki­legur fyrir allri aðstoð.

Styrkt­ar­reikn­ingur verk­efn­is­ins er 525-14-402357, kt: 421210-2017

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Dr. Áslaug tekin við Háskólanum á Akureyri: „Ég er virkilega spennt“
Landið

Dr. Áslaug tekin við Háskól­anum á Akureyri: „Ég er virki­lega spennt“

Dr. Áslaug Ásgeirs­dóttir er form­lega tekin við sem rektor Háskól­ans á Akureyri en hún tekur við af Eyjólfi Guð­munds­syni, sem hefur verið rektor skól­ans frá 2014. Háskóla­ráð til­nefndi Áslaug 2. apríl síð­ast­lið­inn sem næsta rektor skól­ans og var til­lagan sam­þykkt af Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Fimm umsóknir bár­ust um emb­ættið, að því er fram kemur á vef HA, en skipað...
Telur að foreldrar eigi að sjá um sundkennslu barna: „Engir foreldrar geta verið á móti því“
Innlentmenntun

Telur að for­eldrar eigi að sjá um sund­kennslu barna: „Engir for­eldrar geta verið á móti því“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son skrif­aði stuttan pistil um mennta­mál á Íslandi. Mennta­mál hafa verið mikið í umræð­unni und­an­farnar vikur og hefur sam­hengið yfir­leitt verið kringum kyn­fræðslu og hinsegin fræðslu. Þá hafa verið myndir í dreif­ingu á net­inu sem eiga vera úr kyn­fræðslu. Í sumum til­fellum hefur það reynst rétt en mynd­irnar teknar úr sam­hengi og í ein­hverjum til­fellum hefur fólk skáldað...
Rótgróið viðhorf að hampa dugnaði
Innlent

Rótgróið við­horf að hampa dugn­aði

Í umræðum um yfir­stand­andi kjara­deilur Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar hefur farið æ meira fyrir þeirri skoðun að ekki beri að meta menntun til launa. Nú síð­ast tjáði Kári Stef­áns­son þá skoðun sína á Pírata­spjall­inu við góðar und­ir­tektir. Hvað finnst for­svars­fólki háskóla­fólks um þessa umræðu? Mannlíf leit­aði svara við því hjá Jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands. „Ég held að við séum...
Talað tungum tveim
Skoðun

Aðsend skoðun

Talað tungum tveim

Höfundur / Skúli Helgason, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar Mikil umræða hefur skap­ast um til­lögu meiri­hluta skóla- og frí­stunda­ráðs að stytta opn­un­ar­tíma leik­skóla í lok dags um hálf­tíma. Tillagan nýtur almenns stuðn­ings innan leik­skól­anna og skiln­ings margra for­eldra enda er hún til þess fallin að minnka álag á börn og starfs­fólk leik­skól­anna við aðstæður þar sem skortur er á leik­skóla­kenn­urum vegna þess að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins