„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Meirihluti Bandaríkjamanna mótfallnir kennslu á arabískum tölum í skólakerfi landsins

Rúmur meiri­hluti Banda­ríkja­manna er mót­fall­inn því að arab­ískar tölur séu kenndar í skólum lands­ins. Þetta er nið­ur­staða könn­unar sem fyr­ir­tækið Civic Science fram­kvæmdi.

Meirihluti Bandaríkjamanna mótfallnir kennslu á arabískum tölum í skólakerfi landsins
||| Mynd: Antoine Dautry/Unsplash|Niðurstöður skoðanakönnunar CivicScience|Skjáskot af spaugilegri könnun í hópnum Málfrelsið|

Arab­ískar tölur eru venjan á vest­ur­löndum og raunar víð­ast hvar í heim­inum. Með könn­un­inni vildi Civic Science mæla for­dóma og þá kannski sér­stak­lega andúð gegn múslimum.

0,1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8 og 9 eru arab­ískar tölur. Spurn­ingin fjallar því um hvort kenna skuli tölur og stærð­fræði í skólum Banda­ríkj­anna.

Kerfið er talið eiga upp­runa sinn til Brahmi-rit­máls­ins í Indlandi. Ritmálið má rekja til að minnsta kosti miðrar þriðju aldar. Vitað er að tölu­táknin voru þekkt í Sýrlandi á 7. öld og hófu að dreifast um heim múslima á 8. öld.  Stærð­fræð­ing­ur­inn Leonardó Pisano Bigollo, oftar nefndur Fibonacci, not­aði arab­ískar tölur í bók sinni Liber Abaci árið 1202 en talna­kerfið náði ekki almennri útbreiðslu í Evrópu fyrr en prentun bóka á pappír hófst í kringum 1400.

Nið­ur­stöður skoð­ana­könn­unar CivicScience

29% svar­enda könn­un­ar­innar sögð­ust styðja kennslu arab­ískra talna í banda­rískum skólum. 19% sögð­ust ekki hafa skoðun á mál­inu. 72% kjós­enda repúblik­ana sögð­ust mót­fallnir kennslu á arab­ískum tölum. 40% demókratar voru sömu­leiðis and­stæðir slíku.

Spurn­ingin um kennslu arab­ískra talna er þekkt grín meðal þeirra sem taka þátt í umræðu um stjórn­mál og stöðu inn­flytj­enda. Mark­miðið er oftar en ekki að benda á fávísi og for­dóma með yfir­lýs­ingum um áhyggjur af islam­væð­ingu vest­ur­landa. Sönnunin felist meðal ann­ars í því að jafn­vel skóla­stofn­anir kenni nú arab­íska stærð­fræði en ekki vest­ræna.

Skjáskot af spaugi­legri könnun í hópnum Mál­frelsið

Andstaða við arabískar tölur í íslenskum tjáningafrelsishóp

Nýlegt dæmi frá Íslandi má finna á Facebook-hóp sem heitir Mál­frelsið. Meðlimir hóps­ins eru rúm­lega 2000 og umræðan snýst almennt um stjórn­mál og oftar en ekki um tján­inga­frels­is­mál. Fyrir nokkrum vikum ákvað spé­fugl í hópnum að setja af stað könnun og leita álits hóps­ins. „Hvað finnst ykkur um að mennta­mála­ráðu­neytið vilji kenna börnum, frá sex ára aldri, arab­ískar tölur?“ Svar­mögu­leik­arnir eru; frá­bært, skelfi­legt og alveg sama. Vert er að taka fram að þessi könnun er gerð á Facebook. Hún er ekki leyni­leg, svörum má breyta eftir á og hún stenst með engu móti kröfur um vís­inda­leg vinnu­brögð. Varað er við því að draga miklar álykt­anir frá nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar.

Fyrst um sinn var and­staðan við arab­ískar tölur meðal með­lima Mál­frels­is­ins tals­vert meiri en stuðn­ing­ur­inn. Staða sem vakti mikla kátínu meðal þeirra sem þekktu til og varð til líf­legra umræða í athuga­semdum. Könnunin er enn opin og nið­ur­staða hennar hefur nú breyst arab­ískum tölum í hag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menntun

Dr. Áslaug tekin við Háskólanum á Akureyri: „Ég er virkilega spennt“
Landið

Dr. Áslaug tekin við Háskól­anum á Akureyri: „Ég er virki­lega spennt“

Dr. Áslaug Ásgeirs­dóttir er form­lega tekin við sem rektor Háskól­ans á Akureyri en hún tekur við af Eyjólfi Guð­munds­syni, sem hefur verið rektor skól­ans frá 2014. Háskóla­ráð til­nefndi Áslaug 2. apríl síð­ast­lið­inn sem næsta rektor skól­ans og var til­lagan sam­þykkt af Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Fimm umsóknir bár­ust um emb­ættið, að því er fram kemur á vef HA, en skipað...
Telur að foreldrar eigi að sjá um sundkennslu barna: „Engir foreldrar geta verið á móti því“
Innlentmenntun

Telur að for­eldrar eigi að sjá um sund­kennslu barna: „Engir for­eldrar geta verið á móti því“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son skrif­aði stuttan pistil um mennta­mál á Íslandi. Mennta­mál hafa verið mikið í umræð­unni und­an­farnar vikur og hefur sam­hengið yfir­leitt verið kringum kyn­fræðslu og hinsegin fræðslu. Þá hafa verið myndir í dreif­ingu á net­inu sem eiga vera úr kyn­fræðslu. Í sumum til­fellum hefur það reynst rétt en mynd­irnar teknar úr sam­hengi og í ein­hverjum til­fellum hefur fólk skáldað...
Rótgróið viðhorf að hampa dugnaði
Innlent

Rótgróið við­horf að hampa dugn­aði

Í umræðum um yfir­stand­andi kjara­deilur Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar hefur farið æ meira fyrir þeirri skoðun að ekki beri að meta menntun til launa. Nú síð­ast tjáði Kári Stef­áns­son þá skoðun sína á Pírata­spjall­inu við góðar und­ir­tektir. Hvað finnst for­svars­fólki háskóla­fólks um þessa umræðu? Mannlíf leit­aði svara við því hjá Jóni Atla Bene­dikts­syni, rektor Háskóla Íslands. „Ég held að við séum...
Talað tungum tveim
Skoðun

Aðsend skoðun

Talað tungum tveim

Höfundur / Skúli Helgason, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar Mikil umræða hefur skap­ast um til­lögu meiri­hluta skóla- og frí­stunda­ráðs að stytta opn­un­ar­tíma leik­skóla í lok dags um hálf­tíma. Tillagan nýtur almenns stuðn­ings innan leik­skól­anna og skiln­ings margra for­eldra enda er hún til þess fallin að minnka álag á börn og starfs­fólk leik­skól­anna við aðstæður þar sem skortur er á leik­skóla­kenn­urum vegna þess að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins