„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þessi lífsreynsla hefur gjörbreytt mér“

Kyn­ferð­is­brota­mál hafa verið mikið í umræð­unni síð­ustu ár og Sig­ur­þóra Bergs­dóttir sem er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Mannlífs hefur tekið virkan þátt í þeirri umræðu. Hún hefur ákveðnar vænt­ingar til þess að mála­flokk­ur­inn muni breyt­ast til hins betra.

„Þessi lífsreynsla hefur gjörbreytt mér“
Sig­ur­þóra Bergs­dóttir. Mynd/Aldís Páls­dóttir

„Stýri­hópur for­sæt­is­ráð­herra um heild­stæðar úrbætur varð­andi kyn­ferð­is­legt ofbeldi er að vinna skýrslu um þessi mál en Svala Ísfeld Ólafs­dóttir, sem vakið hefur athygli á stöðu brota­þola, er meðal ann­arra í hópnum,“ segir Sig­ur­þóra. „Nið­ur­stöður skýrsl­unnar og til­lögur til úrbóta gætu leitt til breyt­inga á gild­andi lög­gjöf og laga­fram­kvæmd. Ég veit ekki hvernig útfærslan verður en þetta miðar að því að þolendur kyn­ferð­is­brota­mála verði aðilar að málum, fái aðgang að gögnum og geti fengið upp­lýs­ingar um gang mála. Eins varð­andi nið­ur­fell­ing­arnar að þá hefur verið í gangi til­rauna­verk­efni á Akureyri þar sem nið­ur­fell­ingar eru til­kynntar í við­tali en ekki bara með bréfi inn um lúg­una sem er auð­vitað hræði­leg vinnu­regla sem ég get ekki skilið hverjum datt í hug að fram­kvæma með þeim hætti. Það er svo galið.”

Þegar það versta sem getur gerst, ger­ist
Sjálf missti Sig­ur­þóra son sinn úr sjálfs­vígi eftir að hann varð fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og segir meðal ann­ars í við­tal­inu við Mannlíf að þessi líf­reynsla hafi gjör­breytt henni. „Það hefur stundum verið haft á orði við mig og ég held að það sé rétt að „gamla Siggan hafi soldið komið aftur“, að ég hefði fundið aftur kjarn­ann í sjálfri mér. Maður nefni­lega breyt­ist í gegnum lífið en við þetta áfall sem ég fór í gegnum missti ég aðeins með­virkn­ina sem ég var búin að koma mér upp í gegnum árin.

Þegar maður stendur í þeim sporum að það versta sem getur gerst hefur gerst þá missir maður get­una til þess að reyna að elt­ast við það sem öðrum finnst. Ég fór að segja já og meinti já, sagði nei og meinti nei. Án þess að hafa sam­visku­bit yfir því. Vonandi er þannig betra að eiga í sam­skiptum við mig þegar fólk veit nákvæm­lega að hverju því gengur, án þess að ég sé með ein­hver leið­indi,“ segir Sig­ur­þóra og brosir út í annað og bætir við að lík­ast til sé hún hug­rakk­ari í dag. „Ég hefði aldrei farið af stað með eitt­hvað svona hérna áður,“ og þá þar við Bergið Headspace sem hún vinnur nú hörðum höndum að koma á lagg­irnar.

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bergið headspace

„Hann hefði átt að fá að lifa“
Innlent

„Hann hefði átt að fá að lifa“

Frá fal­legu húsi við Suð­ur­götu 10 heyr­ast ham­ars­högg og vél­sag­ar­hvinur, enda allt á fullu við að aðlaga hús­næðið að fram­tíð­ar­starf­semi Bergsins Headspace sem stefnt er því að opna í júní­mán­uði. Auk tveggja eða þriggja iðn­að­ar­manna sinnir Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og upp­hafs­kona að Berginu, vinnu sinni og dag­arnir eru langir um þessar mundir. Sig­ur­þóra sjálf missti son sinn sem svipti sig lífi fyrir þremur árum í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins