„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Málar „live“ á fatnað á tískusýningu

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Birgir Breiðdal er á leið­inni til Seoul þar sem honum hefur verið boðið að taka þátt í opn­un­ar­at­riði í HUB 8-verk­efn­inu, árlegu útskrift­ar­verk­efni einnar virt­ustu tísku­hönn­un­araka­demíu Suður-Kóreu.

Málar „live“ á fatnað á tískusýningu
Birgir Breiðdal. Mynd / Hákon Davíð Björns­son|Birgir Breiðdal|Birgir segir að verk hans komi beint frá hjart­anu og hann virði engar stefnur. „En þegar ég skoða betur hvað ég er að gera má segja að hlut­föllin komi beint úr arki­tekta­nám­inu.“

„Ég hef verið að vinna í und­ir­bún­ingnum síðan í jan­úar og núna fer þetta ævin­týri að bresta á,“ segir Birgir en loka­und­ir­bún­ingur fer fram í Kóreu frá 1. júní til 7. júní en þá er sýn­ingin. Hönn­uð­irnir á sýn­ing­unni vinna með mis­mun­andi þemu og mál­verk Birgis eru hluti af þeim. „Búið er að hanna sjálf­bæra fata­línu út frá mál­verki eftir mig þar sem meðal ann­ars er not­ast við end­urunn­inn striga. Ég verð þátt­tak­andi í atrið­inu og mála „live“ á föt eins mód­els­ins á sýn­ing­ar­pall­inum. Verk­efnið er bæði spenn­andi og krefj­andi.“

Birgir Breiðdal kemur fram í opn­un­ar­at­rið­inu á HUB 8 í Seoul ásamt fimm þjóð­þekktum kóreskum lista­mönnum.

Í lok des­em­ber 2018 var Birgir ásamt fjöl­skyldu sinni í Mílanó eftir að hafa klárað fót­bolta­verk­efni á Spáni þar sem heilt íslenskt stúlknaknatt­spyrnu­lið tók þátt í spænsku deild­inni alla haustönn­ina 2018.

„Þegar verk­efn­inu okkur lauk og stelp­urnar farnar heim í jóla­prófin var líf okkar í lausu lofti og við vissum ekki hver næstu skref yrðu. Á meðan dvöldum við á gömlum heima­slóðum í Mílanó þar sem ég bjó til margra ára á náms­ár­unum og lærði arki­tektúr. Þar hitti ég mjög góðan kóreskan vin minn sem flytur ítalskan hátísku­fatnað inn til Suður-Kóreu og í fyrsta sinn hittum við kon­una hans sem er fata­hönnður. Yfir einni mál­tíð var farið að skoða mál­verkin mín í sím­anum og þau voru svo hrifin að þau keyptu strax eitt og vinur þeirra í París annað. Upp kom þá hug­myndin að vera með sýn­ingu í Seoul, þar sem þau sögðu mér að ég gæti gert vel með mál­verkin mín, þau myndu smellpassa í minimal­ismann sem er þar alls­ráð­andi. Nokkrum dögum síðar var málið komið á skrið og hug­mynd kvikn­aði um að skemmti­legt yrði að mark­aðs­setja mig með því að láta mig taka þátt í tísku­sýn­ingu – að mála á eina flík­ina í miðri Cat Walk-sýn­ing­unni. Þetta þótti mér geggjað og eig­in­lega besta hug­mynd sem ég hafði nokkurn tím­ann heyrt því á náms­ár­unum lang­aði mig að læra fata­hönnun líka.“

Formlegt boð barst svo fljót­lega eftir ára­mótin og þá var bara að hrökkva eða stökkva. „Fram­tíðin var þarna í mik­illi óvissu, ég í útlöndum með fjöl­skyld­una og við heim­il­is­laus. En ég get ekki sleppt þessu tæki­færi og und­ir­bún­ing­ur­inn hófst strax.“

Mikill heiður
Birgir kemur fram í opn­un­ar­at­rið­inu og einnig koma fimm þjóð­þekktir kóreskir lista­menn við sögu.

„Mitt atriði er víst aðal­dæmið og felur í sér að við­kom­andi hönn­uður hannar fimm flíkur með inn­blástur úr mál­verk­unum mínum og á meðan allt er á fullu á svið­inu þá mála ég á eina flík­ina. Verið er að útfæra atriðið þessa stund­ina og þegar ég kem til Seoul munu æfingar hefj­ast og standa yfir í viku. Það verður gríð­ar­lega spenn­andi að fá að kynn­ast öllu þessu frá­bæra fólki sem hefur boðið mér að taka þátt. Per­sónu­lega finnst mér þetta einnig frá­bært tæki­færi það sem ég hef aldrei komið til Asíu og núna gefst manni tæki­færi á að kynn­ast nýjum heimi. Alltaf þegar ég hugsa um verk­efnið þá kemur upp í hug­ann á mér hversu fal­legt þetta boð er og mik­ill heiður. Ég ætla mér bara að njóta þess og geri litlar vænt­ingar aðrar en að fá ynd­is­lega upp­lifun, njóta þess­arar stundar og svo sjáum við til hvað ger­ist í fram­hald­inu.“

Birgir segir að verk hans komi beint frá hjart­anu og hann virði engar stefnur. „En þegar ég skoða betur hvað ég er að gera má segja að hlut­föllin komi beint úr arki­tekta­nám­inu.“

Út fyrir eigið laskað egó
Birgir bjó með fjöl­skyldu sinni við Comovatn á Ítalíu á árunum 2006-2009 og þar mál­aði hann mikið og sinnti námi í bland við að njóta lífs­ins með fjöl­skyldu sinni.

„En með mjög háu gengi evr­unnar gekk dæmið ekki lengur upp og við fluttum til Íslands þar sem ég datt óvænt inn í þjálfun stúlkna í fót­bolta og hef verið í því sleitu­laust frá 2011. Ég hef ein­beitt mér að því að gera þetta vel og hef meðal ann­ars í sam­starfi við knatt­spyrnu­fé­lögin sem ég hef unnið hjá, verið með sjö sum­arknatt­spyrnu­skóla sem eru ein­göngu fyrir stúlkur. Þau nám­skeið hafa heppn­ast vel, verið vel sótt og mikil gleði ríkt á gras­inu. Ég elska að vinna með börnum og þetta er klár­lega ein af betri ákvörð­unum sem ég hef tekið á ferl­inum, börn kenna manni svo margt og gera mann að svo miklu betri per­sónu. Maður hættir að hugsa um sig og fer að hugsa um þau – fer út fyrir sitt eigið laskaða egó. Það eru gríð­ar­leg for­rétt­indi að fá að leið­beina þeim inn í fram­tíð­ina.

Fót­bolt­inn er svo miklu dýpri en bara að sparka í bolta og vinna leiki. Það sama má segja um fleiri greinar. Það kom mér mest á óvart hvað fót­bolti er gott fræðslu­verk­færi til að kenna börnum lífs­leikni. Ég fæ oft hrós fyrir hvað ég næ vel til barna og for­eldrar oft þakk­látir en sann­leik­ur­inn er sá að þau kenna mér miklu meira en ég þeim, og í þessum heimi er ljós, umhyggja og kær­leikur dag­legt brauð og vart hægt að biðja um meira. Ég er með brenn­andi áhuga á þjálfun og stefni á að klára UEFA A-þjálf­ara­rétt­indin á næst­unni en er í smá­hléi núna frá bolt­anum til að sinna þessu risa­verk­efni í Asíu.“

Birgir sergir að gaman væri að halda sýn­ingu með haustinu því hann sé með glæný verk í bígerð sem hann muni byrja að kynna í Seoul.

Í vand­ræðum með pen­inga­hlið­ina
Eftir sýn­ing­una í Seoul munu Birgir og fjöl­skylda hans verja tíma með kóreskum vinum sínum og kynn­ast land­inu þeirra nánar. Honum finnst mik­il­vægt að koma þeim skila­boðum á fram­færi, ekki síst til ungs fólks, að þegar óvissan er mikil séu alltaf ein­hverjar dyr sem opn­ist.

„Ég var heim­il­is­laus erlendis í mik­illi óvissu um fram­tíð­ina þegar ég er allt í einu kom­inn á tísku­sýn­ingu með mynd­list­arí­vafi í Seoul, úr mjög lágum punkti í háan. Eftir sýn­ing­una verð ég til­bú­inn með pensil­inn komi kallið, ég elska að hafa hlut­ina ekki of skipu­lagða heldur bara finna mig dag frá degi, hvað hentar best. Svo væri gaman að halda sýn­ingu með haustinu því ég er með glæný verk í bígerð sem ég mun byrja að kynna í Seoul. Ef allt gengur að óskum verður önnur sýn­ing í í Seoul og tím­arnir því mjög spenn­andi,“ segir Birgir.

„Allur minn drif­kraftur fer í það sem ég tek mér fyrir hendur hverju sinni og er alltaf eitt­hvað sem ég brenn fyrir. „Ég byrja aldrei að hugsa hvað ég fái pen­inga­lega út úr því sem ég er að fara að gera og á oft í miklum vand­ræðum með þann lið, mætti bæta hann, en að sama skapi finnst mér pen­ingar of oft ráða för í fram­kvæmdum. Hagnast ég eða ekki, spyr ég mig aldrei, trúi bara að þetta bless­ist og ferða­lagið verði skemmti­legt þótt pyngjan sé sjaldan yfir­full hjá mér,“ segir hann hlæj­andi að lokum.

Birgir er á Facebook undir nafn­inu Birgir Breiddal – Biggi og fljót­lega mun heima­síðan iambirgir.com fara í loftið. Innslag um ferð­ina til Seoul verður að sögn Birgis sýnt á RÚV í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dægurmál

Að tjaldabaki The Witcher: Henry Cavill sýnir okkur bardagasenu í einnu töku
Heimurdægurmál

Að tjalda­baki The Witcher: Henry Cavill sýnir okkur bar­daga­senu í einnu töku

Nýlega kom út þriðja sería þátt­anna The Witcher, þar sem fyrrum Ofur­mennið Henry Cavill fer með hlut­verk aðal­sögu­hetj­unnar Geralt of Rivia. Cavill og fram­leið­endur þátt­anna hafa síður en svo verið sam­mála um fram­vindu sög­unnar en leik­ar­inn, sem er mik­ill aðdá­andi bókanna sem þætt­irnir eru byggðir á, þótti skipta sér full mikið af. Cavill var því gert að taka poka sinn...
Kventónskáld í fararbroddi á tónleikum í Hörpu um helgina
Viðtaldægurmál

Kventón­skáld í far­ar­broddi á tón­leikum í Hörpu um helg­ina

Tón­list­ar­há­tíðin Seigla fer fram í Hörpu dag­ana 5.-7. ágúst næst­kom­andi. Kammer- og söng­tón­list verða í far­ar­broddi dag­skrár hátíð­ar­innar þetta árið. Alls munu sextán flytj­endur koma fram á fimm tón­leikum í Eld­borg­ar­sal Hörpu en auk þeirra verða fluttir tvennir tón­leikar í Hörpu­horni en hinir síð­ar­nefndu verða opnir almenn­ingi án end­ur­gjalds. Dagskrá hátíð­ar­innar má sjá hér á síðu Seiglu festi­vals og á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins