„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hundrað ný vísindastörf

Fyr­ir­tækið Alvotech leitar nú að 100 vís­inda­mönnum og sér­fræð­ingum til að taka þátt í upp­bygg­ingu leið­andi lyfja­fyr­ir­tækis á heims­vísu. Fyr­ir­tækið vinnur að þróun og fram­leiðslu líf­tækni­lyfja sem eru notuð til með­ferðar á erf­iðum sjúk­dómum eins og gigt, psori­asis og krabba­meini. Um er að ræða mörg af sölu­hæstu lyfjum í heim­inum í dag.

Hundrað ný vísindastörf
|

Hjá Alvotech starfa nú um 330 vís­inda­menn í hátækni­setri fyr­ir­tæk­is­ins í þremur löndum; á Íslandi, í Sviss og Þýska­landi. Markmið þeirra er að auka lífs­gæði sjúk­linga um allan heim með þróun og fram­leiðslu nýrra líf­tækni­lyfs­hlið­stæðna (e. biosim­il­ars) sem koma á markað þegar einka­leyfi renna út.

Alþjóð­legur vinnu­staður
Þróunar- og fram­leiðslu­setur Alvotech á Íslandi er búið full­komn­ustu tækjum og bún­aði og hefur hátækni­setur fyr­ir­tæk­is­ins nú þegar fengið fram­leiðslu­leyfi og gæða­vottun. Hátækni­setrið er hluti af Vís­inda­görðum Háskóla Íslands í Vatns­mýr­inni og er um 13 þús­und fer­metrar að stærð. Setrið var form­lega opnað í júní 2016 og er Alvotech í nánu sam­starfi við háskóla­sam­fé­lagið um mótun mennt­unar á sviði líf­tækni og lyfja­vís­inda ásamt ýmsum öðrum verk­efnum.
Alvotech er alþjóð­legur vinnu­staður þar sem vís­inda­menn og sér­fræð­ingar af um 20 þjóð­ernum vinna að því sam­eig­in­lega mark­miði að móta fram­tíð­ina á sviði líf­tækni­lyfja og auka aðgengi sjúk­linga um allan heim að hágæða lyfjum.

Sesselja Ómars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lyfja­grein­inga­deildar Alvotech.

Sterk liðs­heild
Fyr­ir­tækja­menn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er í senn mjög lif­andi og skap­andi en auk þess er lögð áhersla á fjöl­breyti­leika og sterka liðs­heild. „Við erum ábyrg í okkar störfum og verk­ferlar og gæða­kerfi Alvotech eru gerð til að mæta ýtr­ustu kröfum sjúk­linga og yfir­valda um allan heim. Við njótum þess að vinna saman og félags­starf Alvotech gerir vinnu­stað­inn skemmti­legan og líf­legan,“ segir Sesselja Ómars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lyfja­grein­ing­ar­deildar. „Við erum stolt af okkar mark­miðum, höfum skýra sýn og hjá fyr­ir­tæk­inu starfar hæfi­leik­a­ríkt fólk og þannig komumst við í fremstu röð á okkar sviði á heims­vísu.“

Fyr­ir­tækja­menn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er í senn mjög lif­andi og skap­andi en auk þess er lögð áhersla á fjöl­breyti­leika og sterka liðs­heild.

Einnig fyrir ungt fólk með litla starfs­reynslu
Í átta ár hefur Alvotech unnið að þróun og und­ir­búið fram­leiðslu og mark­aðs­setn­ingu líf­tækni­lyfja fyr­ir­tæk­is­ins. „Við höfum nú þegar ráðið til okkar reynslu­mikla stjórn­endur og sér­fræð­inga með alþjóð­lega þekk­ingu ásamt því að leggja ríka áherslu á þjálfun vís­inda­manna og stjórn­enda fram­tíð­ar­innar,“ segir Sesselja. „Þau 100 störf sem nú eru aug­lýst til umsóknar eru miðuð að ein­stak­lingum með háskóla­menntun á sviði líf-, raun- og lyfja­vís­inda eða verk­fræði. Störfin eru fjöl­breytt og starfs­reynsla og hæfn­is­kröfur eru mis­mun­andi. Talsvert af störfum er fyrir ungt fólk með til­tölu­lega litla starfs­reynslu en metnað og áhuga til að starfa undir leið­sögn sér­fræð­inga Alvotech.“

Þróunar- og fram­leiðslu­setur Alvotech á Íslandi er búið full­komn­ustu tækjum og bún­aði og hefur hátækni­setur fyr­ir­tæk­is­ins nú þegar fengið fram­leiðslu­leyfi og gæða­vottun.

Öllum umsóknum svarað
Á umsókn­ar­síðu Alvotech, storf.alvotech.is, er gott yfir­lit yfir störfin sem eru sér­stak­lega flokkuð eftir sviði og reynslu. Þannig geta bæði efni­legir vís­inda­menn og reyndir sér­fræð­ingar sótt um störf á sínu áhuga­sviði. Umsókn­ar­frestur er breyti­legur eftir störfum en þegar umsókn­ar­fresti lýkur fer starfs­manna­svið fyr­ir­tæk­is­ins yfir allar inn­sendar umsóknar í sam­vinnu við alþjóð­lega ráðn­ing­ar­fyr­ir­tækið ProClinical.
„Þegar við teljum að menntun, reynsla og almenn hæfni umsækj­enda sé í sam­ræmi við hæfn­is­kröfur, boðum við umsækj­endur í starfsvið­töl. Í við­tölum gefst umsækj­endum tæki­færi til að kynn­ast fyr­ir­tækja­menn­ingu Alvotech og spyrj­ast fyrir um starf­sem­ina. Öllum umsækj­endum er svarað þegar ráðn­ing­ar­ferli lýkur.“

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Alvotech.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf 20. tbl 2019

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins