„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hann hefði átt að fá að lifa“

Frá fal­legu húsi við Suð­ur­götu 10 heyr­ast ham­ars­högg og vél­sag­ar­hvinur, enda allt á fullu við að aðlaga hús­næðið að fram­tíð­ar­starf­semi Bergsins Headspace sem stefnt er því að opna í júní­mán­uði. Auk tveggja eða þriggja iðn­að­ar­manna sinnir Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og upp­hafs­kona að Berginu, vinnu sinni og dag­arnir eru langir um þessar mundir. Sig­ur­þóra sjálf missti son sinn sem svipti sig lífi fyrir þremur árum í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis.

„Hann hefði átt að fá að lifa“
Mynd / Hallur Karlsson

„Við viljum að það verði sem létt­ust skrefin að stíga hingað inn og að hér verði gott að vera,“ segir Sig­ur­þóra og brosir en það leynir sér ekki að Bergið og sú starf­semi sem þar er áætluð er henni hjart­ans mál.

Sig­ur­þóra segir að Bergið Headspace byggi í grunn­inn ein­fald­lega á þeirri hug­mynd að það þurfi að vera til sér­stakur staður þar sem ungt fólk í hvers konar vanda geti komið og fengið þjón­ustu.

„Í Danmörku segja þau að allir hafi rétt á því að hafa eyra, stað þar sem er hægt að tjá sig og það er ein­hver sem hlustar. Í Ástralíu, þaðan sem þetta fyr­ir­bæri Headspace er komið, er lögð áhersla á að það að vera ung mann­eskja er sér­stakt ald­urs­skeið og að það þurfi með ein­hverjum hætti að aðlaga þjón­ust­una að því. Það þurfi að búa til stað sem þessi ald­urs­hópur vill sækja og treystir þeim sem þar eru til þess að hafa skiln­ing á þeirra þörfum. Þannig að Headspace er í raun ekk­ert eitt, heldur miði við ald­urs­hóp­inn og að hér hafi hann rétt á lág­þrösk­ulda­þjón­ustu.“

Það er eft­ir­tekt­ar­vert að fólkið sem stendur að baki Berginu Headspace var í raun búið að móta hug­mynd­ina án þess að þekkja á þeim tíma til sam­bæri­legrar starf­semi erlendis. „Við vorum komin með grunn­inn þegar við svo kynnt­umst Headspace sem slíku. Okkar hug­mynda­fræði og mark­mið var alltaf að búa til stað þar sem ungt fólk, upp að 25 ára, gæti komið og sótt sér grunn­þjón­ustu á sínum for­sendum. Komið og fengið stuðn­ing, aðstoð og faðm­lag alveg óháð því á hvaða stað það er í sínu lífi þegar hingað er komið.“

Stundum líður okkur bara illa

Sig­ur­þóra bendir á að til þess að fá aðstoð innan kerf­is­ins hafi fólk þurft að vera með sjúk­dóm eða ein­hvers konar grein­ingu. „Þú þarft að vera fík­ill eða með klíniskan kvíða eða annað – það verður í hið minnsta að heita eitt­hvað svo þú getir fengið þjón­ust­una. Þessu viljum við losna undan. Þó að grein­ingar geti verið góðar eru þær ekki okkar mark­mið heldur að vera til staðar og beina á réttar brautir. Þótt þú sért með kvíða þá ertu ekki endi­lega með klínískan sjúk­dómskvíða. Þú ert ekki endi­lega með ein­hverja grein­an­lega röskun þó að þér líði illa. Stundum líður okkur bara illa.

Sig­ur­þóra segir að Bergið Headspace byggi í grunn­inn ein­fald­lega á þeirri hug­mynd að það þurfi að vera til sér­stakur staður þar sem ungt fólk í hvers konar vanda geti komið og fengið þjón­ustu.

Slíkt er bara hluti af því að vera ung­menni og öll þekkjum við það að hafa farið í gegnum mis­erfið skeið og stundum ekki liðið neitt sér­stak­lega vel, jafn­vel illa. En það þarf ekki að þýða að eitt­hvað stór­kost­legt sé að. Það getur ein­fald­lega verið hluti af því að vera á þessum aldri að takast á við lífið. Auðvitað getur verið að það sé eitt­hvað að en þá getur fyrsta skrefið verið að koma hingað og vera svo beint á rétta braut í fram­hald­inu.“

Aðspurð um hvort það fylgi því sér­stak­lega mikið álag að vera ung­menni í íslensku sam­fé­lagi í dag, segir Sig­ur­þóra að það sé erfitt að full­yrða um slíkt. „Það er bara öðru­vísi en það var fyrir fyrri kyn­slóðir. Að ein­hverju leyti er það erf­ið­ara en að öðru leyti auð­veld­ara. En er ekki alltaf sú kyn­slóð sem er uppi hverju sinni sú erf­ið­asta til þessa?“ segir Sig­ur­þóra og brosir. „En það breytir því ekki við viljum alltaf gera eins vel og við getum gagn­vart ung­menn­unum. Það er það sem skiptir máli.“

Allir vissu að maðurinn var sekur

Það er skilj­an­lega hjart­ans mál fyrir Sig­ur­þóru að vel tak­ist til við stofnun Bergsins Headspace en sonur hennar, Bergur Snær Sig­ur­þóru­son, svipti sig lífi þegar hann var aðeins 19 ára, í mars árið 2016. Bergur Snær hafði verið beittur kyn­ferð­is­of­beldi og það sem dró hann til sjálfs­vígs var áfallastreituröskun sem hann hlaut í kjöl­far þess. Sig­ur­þóra segir að það hafi verið erfitt að átta sig á þeim erf­iðu aðstæðum sem Bergur Snær var í á sínum tíma. „Við vorum með ung­ling sem átti klár­lega í erf­ið­leikum og við höfðum áhyggjur af honum. Hann flosn­aði upp úr skóla, var að fikta við að reykja marjúana og svona vesen á honum. Síðan kom í ljós að hann hafði lent í mjög alvar­legu kyn­ferð­is­of­beldi en það upp­götv­að­ist eftir að við vorum búin að vera að vand­ræð­ast með þetta í ein­hvern tíma.

„Ég hef talað mikið fyrir því að við breytum rétt­ar­stöðu þolenda í kyn­ferð­is­brota­málum sem er núna í umræð­unni.“

Þá fór af stað ótrú­lega erfitt ferli þar sem við biðum eftir ákæru á hendur ger­and­anum en það end­aði með því að málið var fellt niður. Við fréttum að það væri búið að leggja fram ákæru á hendur mann­inum en þær fréttir að mál Bergs Snæs væri ekki á meðal þeirra brota sem ákært var fyrir þurftum við að sækja inn í kerfið eftir miklum króka­leiðum.

Ég hef talað mikið fyrir því að við breytum rétt­ar­stöðu þolenda í kyn­ferð­is­brota­málum sem er núna í umræð­unni. Það er auð­vitað algjör­lega fárán­leg staða fyrir þolendur að vera vitni í máli sem bein­ist gegn þeim og þeirra eigin lík­ama. Það er algjör­lega galið.

„Það vissu allir og sak­sókn­ari með­tal­inn að mað­ur­inn var sekur um það sem Bergur Snær kærði hann fyrir.“

Ef við hefðum vitað af því að það stefndi í þessa nið­ur­stöðu hjá sak­sókn­ara hefðum við auð­vitað brugð­ist við því. Það vissu allir og sak­sókn­ari með­tal­inn að mað­ur­inn var sekur um það sem Bergur Snær kærði hann fyrir. Sak­sókn­ari bara valdi þann kost­inn að sleppa því að ákæra vegna þess að hann var ekki viss um að hann gæti náð fram sak­fell­ingu í kæru Bergs, eins og í hinum mál­unum sem þessi sami maður var kærður fyrir. Í þeim málum fékk hann fram játn­ingu og því breyttu fleiri mál ekki neinu um þyngd dóms­ins. Ég get auð­vitað ekk­ert full­yrt en óneit­an­lega hvarfl­aði að okkur að þess vegna hafi sak­sókn­ara ekki þótt taka því að taka slag­inn í máli Bergs Snæs. Það er ömur­leg til­hugsun.“

Aðgreinir sorgina og starfið

Sig­ur­þóra segir að þau hafi alltaf verið að bíða eftir að þessu lyki til að kom­ast áfram í því verk­efni að vinna með áfallið. „Við vorum búin að gera ýmis­legt en það var alltaf eins og Bergur Snær væri að bíða eftir því að klára þetta. Þannig að þetta gerði allt enn erf­ið­ara og end­aði með því að allt fór á versta veg. Bergur Snær svipti sig lífi vegna þess að hann missti sjónar á því að það gæti orðið betra.“

Nú eru liðin þrjú ár frá því að Bergur Snær féll frá og aðspurð um sína líðan í dag segir Sig­ur­þóra að hún sé eins og hjá öðrum sem fara í gegnum slíka sorg. „Ég hef fengið mik­inn stuðn­ing og styrk. Hef farið sjálf í gegnum áfalla­með­ferð í kjöl­farið og það hefur skipt sköpum. Ég er svo heppin að það er ákaf­lega gott fólk í kringum mig og við vinnum með þetta á hverjum degi. Auðvitað er þetta ekki alltaf auð­velt, sorgin kemur og fer í bylgjum. Tíma­bilin eru mis­góð og mis­erfið en almennt séð höfum við náð að halda áfram. En svo syrgjum við fjöl­skyldan dreng­inn okkar.“

Spurð hvort vinnan við að koma Berginu á lagg­irnar hafi hjálpað Sig­ur­þóru í hennar sorg segir hún að það sé þá óbeint. „Ég hef viljað aðskilja þetta tvennt. Það sem ég er að gera með Berginu geri ég af hug­sjón en auð­vitað óbeint vegna þess sem ég lenti í. En það er ótengt sorg­ar­ferl­inu með dreng­inn minn. Ég vil aftengja þetta tvennt; sorg­ina og það sem ég er að gera hér. Það sem ég er að gera hér skiptir máli og mun von­andi skipta máli fyrir mörg ung­menni og von­andi bjarga líðan og jafn­vel lífum, þannig að auð­vitað skiptir það máli fyrir mig per­sónu­lega. Gerir það að verkum að mér gengur betur að lifa frá degi til dags. En ég forð­ast að setja þá teng­ingu að and­lát Bergs Snæs hafi haft ein­hvern til­gang. Það hafði engan til­gang. Hann hefði átt að fá að lifa. Átt að fá að vera hér með okkur.“

Missti meðvirknina

Kyn­ferð­is­brota­mál hafa verið mikið í umræð­unni síð­ustu ár og Sig­ur­þóra hefur tekið virkan þátt í þeirri umræðu. Aðspurð um hvernig hún sjái fyrir sér að þessi mála­flokkur muni breyt­ast til hins betra, bendir hún á að stýri­hópur for­sæt­is­ráð­herra um heild­stæðar úrbætur varð­andi kyn­ferð­is­legt ofbeldi sé að vinna að skýrslu um þessi mál en Svala Ísfeld Ólafs­dóttir, sem vakið hefur athygli á stöðu brota­þola, er meðal ann­arra í hópnum. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar og til­lögur til úrbóta gætu leitt til breyt­inga á gild­andi lög­gjöf og laga­fram­kvæmd.

„Ég veit ekki hvernig útfærslan verður en þetta miðar að því að þolendur kyn­ferð­is­brota­mála verði aðilar að málum, fái aðgang að gögnum og geti fengið upp­lýs­ingar um gang mála. Eins varð­andi nið­ur­fell­ing­arnar að þá hefur verið í gangi til­rauna­verk­efni á Akureyri þar sem nið­ur­fell­ingar eru til­kynntar í við­tali en ekki bara með bréfi inn um lúg­una sem er auð­vitað hræði­leg vinnu­regla sem ég get ekki skilið hverjum datt í hug að fram­kvæma með þeim hætti. Það er svo galið.”

En skyldi þessi erf­iða lífs­reynsla hafa breytt Sig­ur­þóru sem mann­eskju. „Já, hún hefur gjör­breytt mér. Það hefur stundum verið haft á orði við mig og ég held að það sé rétt að „gamla Siggan hafi soldið komið aftur,“ að ég hefði fundið aftur kjarn­ann í sjálfri mér. Maður nefni­lega breyt­ist í gegnum lífið en við þetta áfall sem ég fór í gegnum missti ég aðeins með­virkn­ina sem ég var búin að koma mér upp í gegnum árin.

Þegar maður stendur í þeim sporum að það versta sem getur gerst hefur gerst þá missir maður get­una til þess að reyna að elt­ast við það sem öðrum finnst. Ég fór að segja já og meinti já, sagði nei og meinti nei. Án þess að hafa sam­visku­bit yfir því. Vonandi er þannig betra að eiga í sam­skiptum við mig þegar fólk veit nákvæm­lega að hverju því gengur, án þess að ég sé með ein­hver leið­indi,“ segir Sig­ur­þóra og brosir út í annað og bætir við að lík­ast til sé hún hug­rakk­ari í dag. „Ég hefði aldrei farið af stað með eitt­hvað svona hérna áður.“

Engum vísað burt

Bergið Headspace opnar vænt­an­lega í næsta mán­uði ef allt gengur eftir. Aðspurð hvernig Sig­ur­þóra sjái fyrir sér að tekið verði á móti ung­menni, sem líður ekki vel þannig að það gengur þarna inn, segir hún að fyrsta skrefið fyrir við­kom­andi sé að hitta ráð­gjafa. „Hér verða ráð­gjafar með menntum og reynslu af því að eiga sam­tal við þá sem á þurfa að halda. Við erum núna að búa til sam­tals­ramma um það hvað er í gangi í líf­inu hjá við­kom­andi og hvernig er best að snúa sér. En við leggjum áherslu á að leyfa þeim sem hingað koma að stjórna því hvað við­kom­andi vill ræða við okkur og hvað ekki. Í raun­inni getur þú líka bara komið hingað inn og þagað í smá­stund ef þú vilt.

„Það hefur stundum verið haft á orði við mig og ég held að það sé rétt að „gamla Siggan hafi soldið komið aftur,“ að ég hefði fundið aftur kjarn­ann í sjálfri mér.“

En við erum samt með við­tals­ramma þar sem við reynum að átta okkur á hvað er í gangi. Átta okkur á því hvort það er eitt­hvað alvar­legt sem að steðjar og reyna að meta hluti á borð við sjálfs­vígs­hættu og annað. Ráð­gjaf­inn setur sig á par við ung­mennið og ræðir málin, kemur jafn­vel með hug­myndir að næstu skrefum en það er samt ung­menn­is­ins að ákveða fram­haldið. Það er alltaf hægt að koma aftur. Það er eðli­legt að við­kom­andi þurfi að koma inn og þreifa á okkur og komi svo aftur og vinni sig áfram í róleg­heit­unum. En við finnum út úr því í sam­ein­ingu að það þurfi til dæmis að takast á við neyslu þá getum við hjálpað við­kom­andi að kom­ast inn í það ferli eða á aðra staði innan kerf­is­ins. Stóra málið er að hér er engum vísað burt og við erum reiðu­búin að vinna með öllum í sam­vinnu við þá. Allt hér á að vera á for­sendum þeirra sem hingað koma.“

Markmiðið að vera samfélag

Sig­ur­þóra minnir á að það eigi ekki að kosta neitt fyrir fólk að leita til Bergsins en auð­vitað kosti slíkur rekstur pen­inga. Það þarf að borga húsa­leigu og svo verði fjögur til fimm stöðu­gildi við starf­sem­ina. „Fjár­mögn­unin til þessa er fyrst og fremst í styrkjum frá rík­inu og Reykja­vík­ur­borg en það dugar ekki til. Við munum því leita til fleiri sveit­ar­fé­laga á næst­unni, auk þess að leita til almenn­ings og fyr­ir­tækja. Þetta kostar allt sitt eins og til dæmis að breyta hús­næð­inu í sam­ræmi við okkar þarfir en þar höfum við verið að fá margar góðar gjafir frá fyr­ir­tækjum, lækkun á verði og að hluta til sjálf­boða­vinnu frá iðn­að­ar­mönnum.

En við þurfum að fá inn aukið fjár­magn, margt smátt gerir eitt stórt og við vonum að almenn­ingur muni bregð­ast vel við. Við höfum ótal oft séð þessa þjóð standa saman um slíkt þegar á reynir og ég vona að við munum njóta slíks stuðn­ings við þetta mál­efni af því að það skiptir máli. Allt fjár­magn sem við náum inn til við­bótar verður hægt að nýta í ráð­gjafa til þess að vinna með unga fólk­inu okkar sem von­andi skilar sér og það er góð fjár­fest­ing.“

„Mig langar til þess að Bergið verði staður sem unga fólkið upp­lifir með jákvæðum hætti, talar um með jákvæðum hætti og treystir.“

Þegar rætt er um fram­tíð Bergsins og þær vænt­ingar sem Sig­ur­þóra hefur til starf­sem­innar stendur ekki á svari. „Mig langar til þess að Bergið verði staður sem unga fólkið upp­lifir með jákvæðum hætti, talar um með jákvæðum hætti og treystir. Að við verðum fólkið sem nær að taka utan um hóp­inn og að við búum til sam­fé­lag hérna. Að krakk­arnir okkar geti komið hingað og haldið áfram að vera hérna og þá jafn­vel hjálpað öðrum. Unnið með sam­fé­lags­leg verk­efni út á við og að við séum þannig mið­stöð sem býður ekki bara ein­hverja þjón­ustu sem aðrir þiggja, heldur að við séum sam­fé­lag þar sem við erum til staðar hvert fyrir annað. Að við séum að gera þetta saman.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bergið headspace

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins