„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvers vegna var mögulegur þáttur elskhuga Guðnýjar ekki kannaður?

Í við­tali við Mannlíf á föstu­dag­inn tjáir Erla Bolla­dóttir sig um þætt­ina Skandall sem nú eru til sýn­ingar hjá Sjón­varpi Símans. Hún furðar sig á hve illa lög­reglan í Keflavík stóð að rann­sókn­inni við hvarf Geir­finns.

Hvers vegna var mögulegur þáttur elskhuga Guðnýjar ekki kannaður?
Mynd / Hallur Karlsson

„Þegar Geir­finnur hvarf í nóv­em­ber 1974 fór fljót­lega að bera á orðrómi sem barst frá rann­sókn­ar­að­ilum um að Klúbbs­menn væru viðriðnir hvarf hans. Samt var ekk­ert sem tengdi þá við Geirfinn eða Keflavík. Lög­reglan reyndi jafn­framt mikið að blanda ein­hverjum spíra­málum inn í rann­sókn­ina. Það sem vekur hins vegar athygli er að ekk­ert spíra­smygl var til rann­sóknar á þessum tíma sam­kvæmt yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar í Keflavík sem birt­ist í fjöl­miðlum 14. jan­úar 1975, tveimur mán­uðum eftir hvarfið,“ segir Erla í við­tali við Mannlíf og heldur áfram: „Þar segir að rúmum þremur vikum eftir hvarfið hafi lög­reglu verið það ljóst að engin tengsl voru á milli Geir­finns og spíra­mála. Þessu geta allir flett upp sem vilja.“

„Hann virð­ist þar reyndar vera að reyna að koma sér undan spurn­ing­unni um hvers vegna lög­reglan kann­aði ekki mögu­legan þátt elsk­huga Guðnýjar Sig­urð­ar­dóttur, eig­in­konu Geir­finns.“

Hún segir að enn virð­ist menn þó leggja sig fram við að við­halda slíkum tengslum í hugum fólks. „Nú síð­ast Haukur Guð­munds­son, fyrrum lög­reglu­maður í Keflavík, í þátt­unum Skandall. Hann virð­ist þar reyndar vera að reyna að koma sér undan spurn­ing­unni um hvers vegna lög­reglan kann­aði ekki mögu­legan þátt elsk­huga Guðnýjar Sig­urð­ar­dóttur, eig­in­konu Geir­finns, þar sem hann ber því við að rann­sókn­ar­að­ilar hafi ekki haft tíma til að kanna fjar­vist­ar­sönnun svo grun­sam­legs aðila vegna anna við spíra­mál. Þarna er um hrein ósann­indi að ræða.“

Í við­tal­inu kemur fram að Erla sé greini­lega hugsi yfir því með hvaða hætti rann­sóknin í Keflavík var unnin og bendir á að seinna hafi Haukur, lög­reglu­maður í Keflavík, hlotið dóm í máli Guð­bjarts Páls­sonar leigu­bíl­stjóra.

„Haukur fékk dóm fyrir að koma fyrir sönn­un­ar­gögnum og hand­taka Guðbjart á fölskum for­sendum. Þetta eru óskyld mál en að mínu mati nákvæm­lega sama aðferða­fræði og Haukur not­aði þegar hann lét Magnús Gíslason, teikn­ara hjá tækni­deild­inni í Keflavík, fá ljós­mynd af Magnúsi Leó­polds­syni, fram­kvæmda­stjóra Klúbbs­ins, og sagði honum að teikna mynd af mann­inum á ljós­mynd­inni. Þá teikn­ingu fer hann síðan með til Ríkeyjar Ingi­mund­ar­dóttur skúlp­t­úrista og biður hana um að gera eftir henni leir­styttu. Styttuna not­aði hann svo til þess að láta fólk benda á Magnús Leó­polds­son og bendla hann þannig við málið. Þetta sýnir að þeir ætl­uðu sér að negla Klúbb­menn, hvað sem það kost­aði.“

Viðtalið í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmálið

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmálið

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.
„Ég hef aldrei séð mál í líkingu við Guðmundar- og Geirfinnsmálið“
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmálið

„Ég hef aldrei séð mál í lík­ingu við Guð­mundar- og Geir­finns­málið“

Íslensk yfir­völd hafa aldrei með form­legum hætti óskað gagna eða aðstoðar þýskra yfir­valda við upp­gjör Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins þrátt fyrir aðkomu þýska rann­sókn­ar­ráð­gjafans Karl Schütz að rann­sókn máls­ins. Þetta kemur fram í svari við fyr­ir­spurn Andrej Hunko, þing­manns Die Linke, í þýska þing­inu.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins