„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

27% brottfall úr framhaldssnámi: Drengir mun líklegri til brottfalls

27% nem­enda falla úr námi fjórum árum eftir inn­ritun. Sýni­legur munur milli kynj­anna er í þeim hóp. Brott­fall stráka er 31% en stelpna tæp 23%. Árgangs­brott­hvarf í fram­halds­skólum hefur hald­ist nokkuð stöðugt á árunum 2003-2012.

27% brottfall úr framhaldssnámi: Drengir mun líklegri til brottfalls

Margrét V. Tryggva­dóttir, vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um skipt­ingu brott­falla í fram­halds­skólum. Fyr­ir­spurn Mar­grétar og svar ráð­herra má skoða hér.

„Þetta er flott og ýtar­legt svar, búið að liggja aðeins yfir þessu” segir Margrét. „Ég held það sé mjög gagn­legt að fá þessar upp­lýs­ingar, en eins og kemur fram þá er ekki sama hvernig er lesið úr þessu” segir Margrét og bætir við, „Það er margt sem spilar inn í þetta. Kannski má líka skoða mun­inn á bekkjar- og fjöl­braut­ar­kerfi, það virð­ist vera meira um brott­fall á krökkum sem fara í fjöl­brauta­skóla. Þetta eru auð­vitað bara vanga­veltur sem kvikna þegar maður skoðar svarið. Ekkert sem að maður getur full­yrt út frá þessu. Í smærri skólum getur maður séð að þetta eru það fáir nem­endur, einn nem­andi getur haft tölu­verð áhrif á töl­fræð­ina og óþarfi að lesa og mikið í það”. Skýrslan sýnir að Mennta­skól­inn í Borg­ar­firði var með 16,7% brott­fall nýnema árið 2017. Fjöldi skráðra nýnema það árið voru 36. Skólinn með lægsta hlut­fall brott­falls sama ár var Versl­un­ar­skóli Íslands, ein­ungis 0,4%. Fjöldi skráðra nýnema þar voru 278.

4,1% ungmenna utan kerfis árið 2017

„Þetta er eitt­hvað sem þarf að fylgj­ast með og það er gott að sjá að það er farin af stað grein­ing­ar­vinna hjá ráðu­neyt­inu, af því að núna erum við að stytta­fram­halds­skól­ann.Hvaða áhrif­það­mikla og aukna álag sem að margir tala um hefur í raun,” segir Margrét og bætir við, „mun það skila sér í meira brott­falli eða munu fleiri útskrif­ast á styttri tíma. Þannig að það er mjög spenn­andi að fylgj­ast með þessu áfram og mik­il­vægt að það sé gert”.

Margrét vekur áhuga á hlut­falli ung­menna sem eru ekki í kerf­inu; „Svo er líka slá­andi að sjá að það eru um 5% sem eru utan kerfis, hvorki í skóla né í vinnu. Þetta virð­ist þó vera skárra en á Norð­ur­lönd­unum“. Í skýrsl­unni kemur fram að 4,1% ung­menna á aldr­inum 18-24 ára á Íslandi eru utan kerfis. Þá er borið saman ung­menni 18-34 ára við Norð­ur­löndin þar sem Ísland er lægst með 4,9%. Svíþjóð kemur þar á eftir með 7,8%, Noregur með 9,8%, Danmörk 11,8% og Finnland hæst með 14,5%.

Stytting náms erfiðari fyrir eldri nemendur

Margrét lýsir von­brigðum gagn­vart stytt­ing­unni þar sem ekki voru gerðar ráð­staf­anir fyrir eldri nem­endur. Til eru dæmi um nem­endur, sem byrj­uðu eldra kerf­inu og flosn­uðu upp úr nám­inuen séu að koma aftur „Krakkar sem voru kannski­bún­ir­með annan kúrs af tveimur sem núna eru kenndir í einu nám­skeiði. Þau þurfa að taka það aftur. Við neyðum þau til að taka sama efnið aftur” segir Margrét og bætir við, „Ég er með eitt dæmi í mínu nærum­hverfi sem er í þessum pakka. Fyrir við­kom­andi er þetta bara leng­ing. Að taka aftur efni sem­hann­hefur áður klárað með góðum árangri. Allavega hefur fram­kvæmdin ekki verið nógu vel útfærð á því og ég tel reyndar að betra hefði verið að stytta gunn­skól­ann um eitt ár frekar en fram­halds­skól­ann. Þar er mun meira svig­rúm.”

Margir þættir sem geta valdið brottfalli

Margrét segir kynja­mun liggja í brott­föllum. „Mér finnst alveg gríð­ar­legur munur á kynjum í þessu. Það virð­ist þó vera að draga úr brott­falli, og það er gott að sjá” segir Margrét sem úti­lokar ekki að stytt­ing náms hafi þessi jákvæðu áhrif. „Kannski er það líka þessi stytt­ing og áhrifin af henni, hver sem þau kunna að vera, því það er kannski ekki alveg komið í ljós ennþá”. Atvinnu­á­standið í þjóð­fé­lag­inu virð­ist einnig vera áhrifa­valdur. „Þeir nem­endur sem til dæmis voru að byrja árið 2008, þau hafa senni­lega unnið minna með skóla og klára þetta fyrr en við vitum að fyrir hrun var mikil ásókn í skólakrakka í ýmis störf. Þetta hefur greini­lega allt saman áhrif”.

Þrenns konar gerðir brotthvarfs

Í svar­inu eru gefnar upp­lýs­ingar um þrenns konar gerðir brott­hvarfs tíu ár aftur í tím­ann, eftir því sem upp­lýs­ingar leyfa. „Þetta er mælt bæði í árganga­brott­hvarfi, það eru þeir sem eru á fjórða, sjötta og sjö­unda ári eftir fyrstu inn­ritun í fram­halds­skóla. Þeir sem eru lengi í námi, Þá hvenær þeir eru að útskrif­ast og hvort þeir eru að útskrif­ast” er haft eftir Margréti sem segir það mjög gott að fá þær tölur. „svo þetta árlega brott­fall nýnema. Mér finnst það slá­andi hvað þau eru mörg að fara bara svona á fyrsta árinu. En það eru auð­vitað krakkar sem að kannski hætta í einum skóla en fara svo eitt­hvert annað næst, þannig þau eru ekk­ert endi­lega hætt alveg í námi.” Þriðja gerð upp­lýs­inga er Snemm­bært brott­hvarf sem er ekki greint eftir fram­halds­skólum og tekur mið af ald­urs­bil­inu 18–24 ára.

Nemendahópar mismunandi

„Þetta er í nokkuð góðu sam­ræmi við það sem ég hélt, því ég hef stundum verið að skoða þetta, en með til­finn­ingu frekar en tölu­leg gögn. Það er oft svo hættu­legt að dæma eitt­hvað út frá ein­staka dæmum sem maður heyrir frá­sagnir af” segir Margrét. „Þannig að það frá­bært að fá heild­ar­yf­ir­lit. En mér finnst mjög slá­andi munur á brott­falli nýnema eftir skólum en ég er algjör­lega sam­mála þeim var­nöglum sem eru slegnir um að þetta sé ekki allt saman algjör­lega sam­bæri­legt. Nem­enda­hóp­arnir í ákveðnum skólum eru bara mjög mis­mun­andi.“

Skólar með mikla aðsókn með minna brottfall

„Sumir skólar eru þannig að þeir velja sér nem­endur af því að það sækja um fleiri en skól­inn getur tekið við. Þeir geta kannski valið sér úrvalsnem­endur. Maður sér það til dæmis Í Versl­un­ar­skól­anum, MR og Kvennó sem eru allt saman bekkj­ar­kerf­is­skólar” segir Margrét en brott­föll þar námu 0,5-2% árið 2017. „Þar er alveg ótrú­lega lítið brott­fall í sam­an­burði við marga aðra skóla”. Margrét segir það koma sér á óvart þar sem þessir skólar hafa haft það orð á sér að vera erf­iðir. „Talað er um að námið sé bara mjög erfitt og það sé fall­hætta en hún virð­ist ekki til staðar. MH hefur líka verið í þeirri að geta valið sér nem­endur en þar hætta tölu­vert fleiri á fyrsta ári eða 5,6%”.

Vekur upp fleiri spurningar en svör

Aðspurð segir Margrét það helst koma sér á óvart hversu mik­ill munur sé á skól­unum. „Til dæmis Versl­un­ar­skól­inn, tölur frá 2017 sýna 0,4% brott­fall, það er bara ekki neitt. Á meðan að þetta fer upp í 20% í ein­hverjum skólum”. Eins og Margrét hefur bent á er ekki hægt að vita hver skýr­ingin er án frek­ari rann­sókna. „Það þarf að fara mjög var­lega út í að leggja of mikið í þetta. Viðmótið er kannski eitt­hvað sem þyrfti að skoða ennþá betur. Taka til dæmis við­tal við þessa krakka sem eru að flosna upp úr námi” segir Margrét og bætir við; „Grennsl­ast betur fyrir hvað það er. Hvort það sé bara að námið standi ekki undir vænt­ingum, eða þau ráði ekki við það. Eða er það vegna þess að þeim líður illa í skól­anum? Er þetta eitt­hvað félags­legt og að þau finna sig ekki í hóp? Þetta kveikir eig­in­lega upp fleiri spurn­ingar en svör. En það er líka alltaf mjög gott, að manni langi að vita meira”.

Mikilvægt að fylgjast vel með

„Mér finnst ofsa­lega mik­il­vægt að vera búin að fá ein­hverjar tölur. Líka að það sé áfram­hald­andi vinna við að fylgj­ast áfram með þessu og greina þetta. Ég held að núna sér­stak­lega, þegar við erum að breyta skóla­kerf­inu, skipti rosa­lega miklu máli að vera með putt­ann á púls­inum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framhaldsskólar

Stefán Pálsson tengir við Dag Sigurðsson: „Stemningin gat orðið ansi stirð á göngum skólans“
Menning

Stefán Pálsson tengir við Dag Sig­urðs­son: „Stemn­ingin gat orðið ansi stirð á göngum skól­ans“

Stefán Pálsson rifjar upp þegar hann var feng­inn til að þjálfa Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti í Morfís-ræðu­keppn­inni þegar hann var á loka­ári hjá Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Setur hann það í sam­hengi við svekk­elsi margra með að Dagur Sig­urðs­son hafi slegið Ísland út úr HM í hand­bolta á dög­unum. Sagn­fræð­ing­ur­inn og gáfu­mennið Stefán Pálsson skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann talar...
Helgi Grímsson stingur upp á samræmdu stúdentsprófi: „Þar erum við þó að ræða um fullorðið fólk“
Innlent

Helgi Grímsson stingur upp á sam­ræmdu stúd­ents­prófi: „Þar erum við þó að ræða um full­orðið fólk“

Helgi Grímsson, sviðs­stjóri skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­víkur tekur undir með Kenn­ara­sam­bandi Íslands um að sam­ræmd próf í grunn­skóla séu vara­söm en stingur upp á slíkum prófum í fram­halds­skólum. Helgi skrif­aði athuga­semd við frétt RÚV þar sem rætt var við Magnús Þór Jónsson, for­mann Kenn­ara­sam­bands Íslands um hug­myndir Við­skipta­ráðs um að taka þurfi aftur upp sam­ræmd próf í grunn­skólum. Kenn­ara­sam­bandið tekur...
MH vann Gettu Betur eftir öruggan sigur á MR: „Pass“
Innlentframhaldsskólar

MH vann Gettu Betur eftir öruggan sigur á MR: „Pass“

Mennta­skól­inn við Hamra­hlíð sigr­aði í gær Mennta­skól­ann í Reykja­vík með 32 stig gegn 24 sit­gum í úrslita­viður­eign Gettu Betur og er þetta í annað skipti sem MH vinnur keppn­ina. Kepp­endur MR voru þau Áslaug Edda Krist­jáns­dóttir, Davíð Birg­is­son og Björn Diljan Hálf­dán­ar­son og sig­ur­lið MH skipa þau Atli Ársæls­son, Una Ragn­ars­dóttir og Hálfdan Árni Jónsson. MH bæt­ist í hóp þeirra...
Kristinn skólameistari sendir nemendum og foreldrum póst vegna Páls: „Ég veit ekki hvar línan er“
Innlent

Kristinn skóla­meist­ari sendir nem­endum og for­eldrum póst vegna Páls: „Ég veit ekki hvar línan er“

„Það fer tölvu­póstur til nem­enda og for­eldra á morgun,“ sagði Kristinn Þor­steins­son, skóla­meist­ari Fjöl­brauta­skól­ans í Garðabæ. Fundur var hald­inn í Fjöl­brauta­skól­anum í Garðabæ í dag og lauk honum skömmu fyrir hádegi. Fund­ur­inn sem um ræðir var vegna Páls Vil­hjálms­sonar, kenn­ara við skól­ann. For­eldrar hafa kraf­ist þess að Páll láti af störfum vegna ummæla hans í blogg­færslu. Kristinn Þor­steins­son skóla­meist­ari sagði...
Rektorar blása útskriftarferðir og dansleiki af borðinu: „Því miður er ég ekki að sjá það gerast“
Innlent

Rektorar blása útskrift­ar­ferðir og dans­leiki af borð­inu: „Því miður er ég ekki að sjá það ger­ast“

Rektorar fram­halds­skóla hafa stórar áhyggjur af félags­legum áhrifum Covid-19 á nem­endur. Nú er orðið ljóst að þeir sjá ekki fram á að útskrift­ar­ferðir verði farnar í vor og mennta­skóla­böll fara ekki fram á næst­unni. ,, Maður veit ekki lang­tíma­á­hrifin, þau verða eflaust ekki góð, sér­stak­lega fyrir þá sem eru veikir fyrir félags­lega. Það er ómögu­legt að segja hvað fram­tíðin felur...
Nemendur Kvennó mæta þriðju hverju viku í skólann
Innlent

Nemendur Kvennó mæta þriðju hverju viku í skól­ann

Nemendur Kvenna­skól­ans í Reykja­vík fá kennslu í skól­anum þriðju hverju viku í vetur. Hinar vik­urnar verðar nem­end­urnir í fjar­námi. Skóla­starfið hefst þar í fyrr­málið þar sem nýnemar skól­ans mæta til leiks. Vegna Covid-19 og sótt­varns­reglna verður starf­semi skól­ans með breyttu sniði þennan skóla­vet­ur­inn. Bekkir skól­ans munu hafa sína kennslu­stofu til umráða í stað þess að flakka á milli stofa eftir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins