„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þórdís Kolbrún hjólar í andstæðinga þriðja orkupakkans og segir þá fara með „hrein ósannindi“

Iðnaðar-, og nýsköp­un­ar­ráð­herra segir áhyggjur fólks vegna þriðja orku­pakk­ans meðal ann­ars til­komnar vegna þess að „menn með mál­efna­lega inni­stæðu í gegnum ára­tug­ina eru að halda ein­hverju fram sem að sjálf­sögðu hræðir fólk.“

Þórdís Kolbrún hjólar í andstæðinga þriðja orkupakkans og segir þá fara með „hrein ósannindi“
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir.

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir var gestur í Silfrinu á RÚV í morgun og ræddi þar meðal ann­ars ólgu vegna þriðja orku­pakk­ans. Hún sagði and­stæð­inga orku­pakk­ans fara fram með „hrein ósann­indi“ og tók undir með þátta­stjórn­anda að málið væri „ótrú­lega skrítið“.

Hún sagði inn­leið­ingu orku­til­skip­ana Evr­ópu­sam­bands­ins eiga sér langan aðdrag­anda. „Í grunn­inn eru allar þessar þrjár raf­orku­til­skip­anir – þessir þrír pakkar –  svip­aðir í eðli sínu. Þeir snúa ekki að aðgangi að auð­lindum heldur að aðgangi að innviðum. Við erum að tala um jafnan aðgang að flutn­ings­innviðum í þágu frjálsra við­skipta. Það er ferli sem hófst löngu löngu fyrir mína tíð.“ – Jafnvel í tíð þeirra sem berj­ast hvað hat­ram­ast gegn þessu núna? „Það er nákvæm­lega þannig. Þessir pakkar skilda engan til að byggja ákveðna inn­viði. Bara alls ekki. Að halda því fram að þetta snúi að því, einka­væð­ingu Lands­virkj­unar eða sölu á ein­hverjum auð­lindum eru bara hrein ósann­indi,“ sagði ráð­herra.

Sjá einni: Orku­pakk­inn skekur stjórn­málin

Aðspurð hvort hún væri að halda því fram að and­stæð­ingar pakk­ans fari fram með rang­færslur sagði ráð­herra svo vera. „Já, já, þeir eru það. Þegar sagt er; næsta skref er að einka­væða Lands­virkjun og skipta henni upp. Það er ekki rétt. Þegar sagt er; næsta skref er bara að leggja sæstreng eða við munum vera skyldug til að leggja sæstreng. Það er ekki rétt. Þegar sagt er; við munum missa for­ræði á auð­lindum okkar. Það er ekki rétt. Það er alveg sama hversu oft hetjur lykla­borðs­ins halda ein­hverju fram. Það verður ekk­ert satt fyrir vikið. Það er þetta sem mér finnst við þurfa að svara.“

„Mikilvægasti alþjóðasamningur sem við höfum gert.“

Ráðherra sagði málið efn­is­lega lítið en að það snerti á miklum hags­munum í tengslum EES-samn­ing­inn. „Það mun eng­inn eftir ár sitja og segja heyrðu rosa­leg snilld var þessi þriðji orku­pakki það er bara allt annað líf á Íslandi í dag. Það er heldur ekki þannig að eftir ár muni fólk segja hvað varð um foss­ana okkar, hvað varð um lands­virkjun og stýr­ingu okkar á auð­lindum við það að sam­þykkja þennan þriðja orku­pakka. Hann er hluti af fjórða við­auka EES-samn­ings­ins sem mörg fyr­ir­tæki byggja mjög veru­lega á. Á aðgangi inn á Evrópu og hann er hluti af EES samn­ingnum sem skiptir okkur ótrú­lega miklu máli og er mik­il­væg­asti alþjóða­samn­ingur sem við höfum gert.“

„Sjálfstæðisflokkurinn er fremstur þegar kemur að alþjóðasamvinnu“

Aðspurð hvort hennar eigin flokkur hafi staðið sig nægi­lega vel í að tala fyrir alþjóða­sam­starfi og mik­il­vægi EES-samn­ings­ins og þá hugs­an­legum áhrifum þess sagði ráð­herra umræð­una sína að sumir hafi villst af leið. „Þetta er mjög góð spurn­ing. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur auð­vitað þurft – og þurft segi ég – að eyða mjög miklum tíma og orku í að tala gegn aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Það má spyrja hvaða áhrif það hefur haft á almenna umræðu um alþjóða­sam­vinnu og sam­vinnu innan Evrópu. Mér finnst þetta svo­lítið sýna að ein­hverjir hafa villst af leið í því. Þetta sýnir að við munum ekki bara núna, og þetta klár­ast ekki í þessu máli, að við munum þurfum að halda vel á lofti kostum þess að vera í þessu sam­starfi og hvað EES-samn­ing­ur­inn þýðir fyrir okkur. Saga Sjálf­stæð­is­flokks­ins sýnir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er fremstur þegar kemur að alþjóða­sam­vinnu og það er sú saga sem við eigum. Ég held að við séum núna á ákveðnum – ég segi kannski ekki kross­götum – en við munum þurfa að eyða mjög miklum tíma í að tala fyrir því. Og marka okkur þá skýru stöðu sem við höfum í gegnum sög­una verið í, til þess að tryggja bara lífs­kjör Íslend­inga hér. Þessi aðgangur að þessum mörk­uðum. Við erum útflutn­ings­þjóð. Þetta skiptir okkur öllu máli. Við erum að nýta full­veldi okkar til þess að vera í slíku sam­starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EES

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins