„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Við lifðum af og fyrir það erum við þakklátir“

Íslenskur karl­maður og 15 ára sonur hans voru hætt komnir þegar þeim var byrlað ólyfjan og þeir rændir um hábjartan dag á Tenerife fyrir skemmstu. Þeir rönk­uðu við sér lemstraðir og minn­is­lausir við ruslagám nokkru síðar.

„Við lifðum af og fyrir það erum við þakklátir“

Mannlíf ræddi við mann­inn sem féllst á að segja sögu sína en óskaði þess að nöfn þeirra feðga kæmu ekki fram að til­lit­semi við son hans. Maðurinn segir að um ósköp venju­legan dag hafi verið að ræða, þeir hafi verið að rölta í róleg­heit­unum heim af strönd­inni þegar þeir ákváðu að tylla sér á mat­sölu­stað og fá sér hress­ingu. „Við gengum eftir götu sem heitir Veronicas en þar eru til dæmis mat­sölu­staðir og skemmti­staðir,“ útskýrir mað­ur­inn.

Feðgarnir stöldr­uðu við á mat­sölu­stað sem heitir Joyce og sett­ust við borð á úti­svæði stað­ar­ins og pönt­uðu sér gos­drykki. Maðurinn segir að næstu staðir hafi til dæmis verið Subway og KFC, þarna hafi verið fólk á öllum aldri, niður í sjö ára börn, og þeim hafi því ekki þótt ástæða til að ótt­ast. Ekkert hafi bent til ann­ars en að þeir væru á öruggum stað. Það hafi þó breyst á auga­bragði.

„Þegar við höfðum fengið okkur sopa af drykkj­unum þá munum við ekki eftir að hafa lagt glösin aftur niður og það verður bara allt svart í minn­inu. Við munum þó báðir eftir fjólu­bláu ljósi þar sem við liggjum á dýnum.“

„Við keyptum gler­augu af götu­sala beint fyrir framan stað­inn. Síðan sett­umst við og fengum drykk­ina okkar,“ segir mað­ur­inn og bætir við að skyndi­lega hafi allt orðið svart. „Þegar við höfðum fengið okkur sopa af drykkj­unum þá munum við ekki eftir að hafa lagt glösin aftur niður og það verður bara allt svart í minn­inu. Við munum þó báðir eftir fjólu­bláu ljósi þar sem við liggjum á dýnum,“ útskýrir hann en hvor­ugur þeirra feðga gat hreyft legg eða lið meðan á þessu stóð. Maðurinn segir að eina hugs­unin sem komst að hjá sér hafi verið hvar sonur hans væri. Hann hafi reynt að lyfta upp hönd­unum en ekki getað það. „Svo man ég að það kom ein­hver og sagði mér að halda áfram að sofa.“

Þegar feðgarnir komust til með­vit­undar um fjórum klukku­stundum seinna hafði þeim verið kastað eins og hverju öðru rusli á bak við ruslagám, búið að taka af þeim um 80 þús­und í pen­ingum, greiðslu­kort sem þjófarnir náðu að taka 50 þús­und út af, síma og önnur verð­mæti. Þeir voru mjög illa átt­aðir þegar þeir rönk­uðu við sér. „Strák­ur­inn minn var með sár á lík­am­anum, risp­aður í framan og bólg­inn á höndum eins og hann hafi eitt­hvað reynt að verj­ast,“ rifjar mað­ur­inn upp og segir þá feðga í kjöl­farið hafa farið á hót­elið. Lögregla hafi verið kölluð á vett­vang, en þeir feðgar hafi hins vegar verið svo ringl­aðir þegar þeir til­kynntu árás­ina að lög­reglan taldi að þeir væru í vímu og bað þá um að koma síðar í skýrslu­töku.

„Lög­reglan útskýrði fyrir okkur að okkur hefði verið byrlað eitur sem kall­ast burund­anga og setti allt af stað til að finna ódæð­is­menn­ina.“

„Við fórum þá á sjúkra­húsið í blóð­tökur og mynda­tökur þar sem stað­fest var að okkur hafði verið byrlað eitur. Starfs­fólk sjúkra­húss­ins leit málið alvar­legum augum og vildi í kjöl­farið halda okkur í sól­ar­hring. Við fórum því aftur á fund lög­regl­unnar sem tók málið einnig mjög alvar­lega. Lög­reglan útskýrði fyrir okkur að okkur hefði verið byrlað eitur sem kall­ast burund­anga og setti allt af stað til að finna ódæð­is­menn­ina. Þetta var umfangs­mikil aðgerð, við sáum það,“ lýsir mað­ur­inn hrærður. Hann bætir við að Sigvaldi Kalda­lóns og Halla Birg­is­dóttir, far­ar­stjórar hjá VITA-ferða­skrif­stofu, hafi aðstoðað þá feðga í gegnum allt ferlið, útvegað túlk og veitt þeim góðan stuðn­ing. „Við lifðum af og fyrir það erum við þakk­látir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árás

Norska vinnueftirlitið skilað skýrslu um hnífaárásina í Oslóarháskóla – Vinnuumhverfislög brotin
Innlentárás

Norska vinnu­eft­ir­litið skilað skýrslu um hnífa­árás­ina í Osló­ar­há­skóla – Vinnu­um­hverf­is­lög brotin

Norska vinnu­eft­ir­litið hefur skilað skýrslu um hnífa­árás­ina í Osló­ar­há­skóla en þar réðst nem­andi við skól­ann á tvo starfs­menn skól­ans en annar þeirra var hin íslenska Ingunn Björns­dóttir, kenn­ari við skól­ann en hún slas­að­ist alvar­lega í árásinni. Nem­and­inn hefur nú verið ákærður fyrir til­raun til mann­dráps og fyrir grófar lík­ams­meið­ingar. Vinnu­eft­ir­lit Noregs telur í skýrslu sinni að háskól­inn hafi brotið nokkur...
Lögreglan skaut hund sem réðst á eiganda sinn: „Var með mjög saklaust andlit“
Heimur

Lög­reglan skaut hund sem réðst á eig­anda sinn: „Var með mjög sak­laust and­lit“

Hundur með „lítið og sak­laust and­lit“ var skot­inn til bana af lög­regl­unni, stuttu eftir að hann hafði gert grimmi­lega árás á tvo menn. Zeus, sem er af teg­und­inni XL Bully, sést í örygg­is­mynda­vél, sleifla ánægður skotti sínu og hoppa upp á afgreiðslu­borð í sjoppu í Hamilton, Southlanarks-skíri, þar sem eig­andi hans gaf honum hunda­kex. Hið sæta augna­blik breytt­ist skyndi­lega og...
Óeirðir í Dyflinni eftir hnífaárás á börn – Brasilískur matarsendill stöðvaði árásarmanninn
Heimurárás

Óeirðir í Dyflinni eftir hnífa­árás á börn – Brasil­ískur mat­ar­send­ill stöðv­aði árás­armann­inn

Hrotta­fengin hnífa­árás í Dyflinni í hádeg­inu í gær, olli óeirðum í írslu höf­uð­borg­inni, þar sem versl­anir voru rændar, bílar brenndir og árásir gerðar á lög­reglu­menn. Þrjú ung börn eru meðal fimm sem slös­uð­ust í sjokker­andi árás á Parnell-torgi, norður af mið­borg Dyfl­innar, rétt eftir 13:30 í gær. Maður á sex­tugs­aldri, er nú í haldi írsku Garda-lög­regl­unni, grun­aður um verkn­að­inn en...
Ingunn ekki reið árásarmanninum sem stakk hana: „Það kom eiginlega sjálfri mér á óvart”
Innlentárás

Ingunn ekki reið árás­armann­inum sem stakk hana: „Það kom eig­in­lega sjálfri mér á óvart”

Ingunn Björns­dóttir ber ekki kala til árásmanns­ins sem stakk hana að minnsta kosti 16 sinnum. Eins og Mannlíf fjall­aði um var Ingunn Björns­dóttir, dós­ent í lyfja­fræði við Osló­ar­há­skóla, stungin ítrekað af nem­anda sínum í ágúst. Var talið að hún hafi verið lífs­hættu og segja margir það hafa verið krafta­verk að hún hafi lifað árás­ina af. Ingunn segir hins að hún...
Nemandinn sem stakk Ingunni féll nýlega á prófi: „Hann er meðvitaður um alvarleika málsins“
Innlentárás

Nem­and­inn sem stakk Ingunni féll nýlega á prófi: „Hann er með­vit­aður um alvar­leika máls­ins“

Maðurinn sem réð­ist á Ingunni Björns­dóttur, dós­ent í lyfja­fræði við Osló­ar­há­skóla og sam­starfs­menn hennar, féll á prófi rétt fyrir hnífa­árás­ina. Karl­maður á þrí­tugs­aldri hefur verið ákærður fyrir hnífs­stungu­árás gegn tveimur konum í lyfja­fræði­deild Háskól­ans í Osló, í gær en önnur kvenn­anna er hin íslenska Ingunn Björns­dóttir, dós­ent í lyfja­fræði við skól­ann. Samkvæmt heim­ildum NRK voru kon­urnar báðar kenn­arar við skól­ann...
Íslensk kona þungt haldin eftir hnífaárás í Lundi – Hinum grunaða sleppt í gær
Heimurárás

Íslensk kona þungt haldin eftir hnífa­árás í Lundi – Hinum grun­aða sleppt í gær

Íslensk kona var flutt alvar­lega særð á sjúkra­hús eftir að hafa orðið fyrir stungu­árás á heim­ili í Lundi, Svíþjóð, á laug­ar­dag­inn. Skömmu eftir árás­ina var maður tengdur kon­unni hand­tek­inn á hverf­is­há­tíð í nágrenn­inu en sleppt í gær­kvöldi. Vísir segir að Joakim Nyberg, hjá sænsku lög­regl­unni stað­festi það við frétta­stofu að konan sé íslensk og um fimm­tugt. Kemur fram í frétt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins