„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kosningum um kjarasamninga lýkur í dag og niðurstaða verður kynnt á morgun

Atkvæða­greiðslu vegna kjara­samn­inga líkur í dag hjá Eflingu og aðild­ar­fé­lögum Starfs­greina­sam­bands­ins. VR hefur þegar lokið sinni kosn­ingu en beðið var með birt­ingu nið­ur­stöð­unnar þar til önnur félög hafa klárað kosn­ingu. Vænta má nið­ur­stöðu á morgun frá Starfs­greina­sam­band­inu, Eflingu og VR. Kosningu líkur klukkan 16.00 í dag.

Kosningum um kjarasamninga lýkur í dag og niðurstaða verður kynnt á morgun

Kjara­samn­ingar versl­unar- og verka­fólks eru til rúm­lega þriggja ára. Þeir gilda frá 1. apríl 2019 til 1. nóv­em­ber 2022, verði þeir sam­þykktir. Lægstu laun munu hækka mest en sú hækkun nemur 30% á lægstu taxta. Útfærsla er í samn­ingnum til styttri vinnu­viku. Þá fylgir þeim ein­greiðsla upp á kr. 26 þús­und sem greidd er út í byrjun maí 2019. Ein for­senda samn­ing­anna er að skatt­byrði tekju­lægstu hópa lækkar um kr. tíu þús­und á mán­uði.

Nokkur fyr­ir­tæki hafa þegar til­kynnt verð­hækk­anir verði samn­ing­arnir sam­þykktir. Þetta hefur vakið hörð við­brögð frá for­ystu stétt­ar­fé­lag­anna. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, gagn­rýndi for­stjóra Ísam harka­lega fyrir boð­aðar hækk­anir fyr­ir­tæk­is­ins en þakk­aði honum um leið fyrir að „afhjúpa sig og sinn þanka­gang svona rösk­lega“.

„ÍSAM auð­valdið útvegar kennslu­efnið í við­var­andi kennslu­stund­ina sem við sitjum öll um þessar mundir,“ skrif­aði Sólveig Anna á Facebook. „Hug­mynda­fræði nýfrjáls­hyggj­unnar sem hefur verið troðið ofan í okkur eins og kássu búinni til úr grænum baunum, sírópi, fransk­brauði, kexi, síld og tann­kremi (og argað um leið og við kúg­umst: Þetta er víst gott, aum­ingi!) hefur sem grund­vall­ar­lygi að ekk­ert sé betra fyrir lýð­ræðið en óheft mark­aðs­frelsi.“

„Mér finnst eins og fyr­ir­tæki inn­an Sam­taka at­vinnu­lífs­ins séu að hvetja til þess að kjara­samn­ing­arn­ir séu felld­ir. Það er eins og það sé ákveð­inn klofn­ing­ur inn­an sam­tak­anna,“ sagði Björn Snæ­björns­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, við Morg­un­blaðið í kjöl­far til­kynn­inga vegna boð­aðra verð­hækk­ana. Björn sagði við blaðið að fram­setn­ing þeirra sem til­kynnt hafa um hækk­anir sé ósmekk­leg. Ríki og sveit­ar­fé­lög hafa þegar gefið út að þau muni halda aftur af verð­hækk­unum.

Frétta­blaðið sagði frá því að Ísam, heild­sölu og fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem á Mylluna, Ora, Kex­verk­smiðj­una Frón og Kexsmiðj­una boði nú verð­hækk­anir á öllum vörum fyr­ir­tækj­anna ef samn­ingar verða sam­þykktir.

Þá sagði Frétta­blaðið frá fyr­ir­hug­aðri hækkun Gæða­bakst­urs vegna samn­ing­anna, en fyr­ir­tækið boðar 6.2% hækkun geng­is­hækk­unar á hveiti. Í frétt­inni kemur fram að hækkun vegna hveitis sé um þrjú pró­sent.

„Ég er ekki að segja það að fólk eigi ekki skilið það sem það fær í laun. En ef við fáum á okkur þessa hækkun þá verðum við að setja það út í verð­lagið til að mæta þessu,“ segir Vil­hjálmur Þor­láks­son, fram­kvæmda­stjóri Gæða­bakst­urs, við Frétta­blaðið.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, sagði við RÚV það vera eins­dæmi að fyr­ir­tæki boði verð­hækk­anir ef kjara­samn­ingar verði sam­þykktir, líkt og ÍSAM gerði í gær. „Við erum með end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði sem snúa að því að kaup­máttur launa verði tryggður og vextir lækki. Ég tel að þetta ógni því að svo geti orðið. Þá munu kjara­samn­ingar vænt­an­lega losna og við munum sækja þær kaup­mátt­ar­krónur, eða þær kjara­bætur sem við töldum okkur gefa eftir til þess að ná niður vöxtum, af mik­illi hörku ef það kemur til þess að samn­ingar losni,“ segir Ragnar.

Formaður Starfs­greina­sam­bands­ins segir við Morg­un­blaðið að Brauð­gerð Krist­jáns Jóns­sonar á Akureyri hafi til­kynnt sam­band­inu að þeirra vörur muni hækka um 6.2%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins