„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigurðu Ingi segir ekki hafa tekist að sannfæra meirihluta þjóðarinnar um fyrirvara við þriðja orkupakkann

„Þrátt fyrir álit fjöl­margra lög­spek­inga þá hefur ekki náðst að sann­færa meiri­hluta þjóð­ar­innar um að nóg sé að gert með þeim fyr­ir­vörum sem kynntir hafa ver­ið,“ skrifar Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu – og sveita­stjórn­ar­ráð­herra, í aðsendri grein á Kjarn­anum . „Hefur rík­is­stjórnin reynt að koma til móts við þá sem harð­ast hafa gagn­rýnt pakk­ann með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem og fleiru sem á að taka af allan vafa um að orku­auð­lindir Íslands verði undir yfir­ráðum Íslend­inga og engra ann­arra.“

Sigurðu Ingi segir ekki hafa tekist að sannfæra meirihluta þjóðarinnar um fyrirvara við þriðja orkupakkann

Sigurður segir að þrátt fyrir til­raunir rík­is­stjórn­ar­innar til að koma til móts við þá sem mestar efa­semdir hafi ekki tek­ist að ná sátt um málið. „Segja má að umræður um orku­pakk­ann séu hat­ramm­ar. Er það að mörgu leyti skilj­an­legt enda um eitt af fjöreggjum íslensku þjóð­ar­innar að ræða og lík­lega sú auð­lind sem á eftir að skipta mestu máli fyrir lífs­gæði kom­andi kyn­slóða. Það er því mik­il­vægt að leitað sé sáttar og nið­ur­stöðu sem almenn­ingur trúir og treystir að gæti hags­muna þjóð­ar­innar í bráð og lengd.“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins bendir á hrunið sem rót almenns van­trausts í sam­fé­lag­inu en um leið hafi fólk horft upp á Evr­ópu­sam­bandið taka sér stöðu með fjár­mála- og vðskipta­valdi. „Þótt ríf­lega ára­tugur sé lið­inn frá hruni þá hefur þjóðin ekki gleymt. Sárin eru ekki gró­in. Stofn­anir sam­fé­lags­ins, stjórn­mál og stjórn­sýsla, hafa ekki end­ur­heimt traust almenn­ings. Fólk hefur auk þess horft upp á til­hneig­ingu Evr­ópu­sam­bands­ins að taka sér stöðu með fjár­mála- og við­skipta­vald­inu gegn lýð­ræð­inu eins og við kynnt­umst í Ices­a­ve-­mál­inu og sést einnig vel í ofbeld­is­kenndri fram­komu Evr­ópu­sam­bands­ins gagn­vart grísku þjóð­inni. Það er því ekki skrýtið að íslenskur almenn­ingur vilji hafa varan á þegar kemur að sam­skiptum við þetta stóra veldi sem er reyndar drauma­land ein­staka stjórn­mála­hreyf­inga hér á Íslandi.“

Sigurður fer yfir stöðu stjórn­mál­anna og segir frá störfum sínum að und­an­förnu og bendir á að með sumr­inu komi önnur umræða. Þannig séu Íslend­ingar hættir að ræða um klukk­una af sama hita og áhuga og í vetur. „Og meðan sólar nýtur mestan hluta sól­ar­hrings­ins þá höfum við ekki áhyggjur af því hvort klukkan er hálf eitt eða hálf tvö á hádegi.“

Sigurður segir rík­is­stjórn­ina hafa unnið sam­hent af krafti og ábyrgð. Hann þakkar rík­is­stjórn­inni árangur vegna kjara­samn­inga. „Það hlýtur flestum að vera ljóst að sá árangur sem náð­ist með lífs­kjara­samn­ingi á almennum mark­aði með ábyrgri og fram­sýnni aðkomu stjórn­valda er stórt skref í því að bæta lífs­gæði á Íslandi og tryggja betri afkomu þeirra sem eru á lægstu laun­unum í sam­fé­lag­in­u. Flestum hlýtur einnig að vera ljóst að þessi árangur hefði ekki náðst án sterkrar rík­is­stjórnar sem spannar lit­róf stjórn­mál­anna frá vinstri til hægri með sterkri áherslu á miðj­una.“ Ráðherra fer yfir kjara­samn­inga og stefnu­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar. „Áherslu­mál Fram­sóknar í síð­ustu kosn­ingum eru áber­andi í aðgerðum stjórn­valda vegna kjara­samn­inga. Fyrst ber að nefna „sviss­nesku leið­ina“ sem felst í því að fyrstu kaup­endum sé gert kleift að nýta hluta af líf­eyr­is­sparn­aði sínum til að kaupa sér íbúð­ar­hús­næði. Sér­stakt bar­áttu­mál okkar í Fram­sókn í langan tíma, það að hús­næð­islið­ur­inn sé tek­inn út úr vísi­töl­unni, er að verða að veru­leika fyrir ný neyt­enda­lán og skref sem svo gott sem tryggja að verð­trygg­ingin sé úr Íslands­sög­unni verða að veru­leika á næstu miss­er­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Framsóknarflokkur

Ásmundur Einar: Ekkert óeðlilegt við það að skipa nefndir pólitískt
Heimur

Ásmundur Einar: Ekkert óeðli­legt við það að skipa nefndir póli­tískt

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur stýrt félags­mála­ráðu­neyt­inu í 17 ár, frá árinu 1997. Fjöl­margir aðilar tengdir flokknum gegna trún­að­ar­störfum fyrir ráðu­neytið. Í sam­tali við Kjarnann segir Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra að þegar um er að ræða nefndir, ráð og hópa á vegum ráðu­neyt­is­ins sem taka stefnu­mót­andi ákvarð­anir sem tengj­ast póli­tík þá séu for­menn nefnd­anna póli­tískt skip­aðir. „Þegar póli­tískar nefndir eru skip­aðar þá er...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins