„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gísli Marteinn skerst í leikinn: „PLEASE! Ertu að djóka Sigmar?“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Gísli Marteinn Bald­urs­son blandar sér í rök­ræður Sóleyjar Tóm­as­dóttur og Sigmars Vil­hjálms­sonar á Twitter.

Gísli Marteinn skerst í leikinn: „PLEASE! Ertu að djóka Sigmar?“
Myndir sem Elísabet birti á Twitter.

Færsla sem Sóley Tóm­as­dóttir birti á Twitter á fimmtu­dag­inn fór fyrir brjóstið á mörgum. Í færsl­unni ýjar Sóley að því að ofvaxið egó Skúla Mogensen hafi valdið gjald­þrot WOW air. Sóley birti færsl­una undir myllu­merkj­unum #wow og #karl­mennskan.

Síðan færslan birt­ist hefur fjöl­miðla­mað­ur­inn Sigmar Vil­hjálms­son og Sóley Tóm­as­dóttir tek­ist á um inni­hald færsl­unnar og femín­isma á Twitter.

„Áttu erfitt með að sætta þig við að ein­hver sé ósáttur við fram­setn­ingu þína? Þú gerir þér grein fyrir því að ég er ein­göngu ósáttur við teng­ingu þína á Wow Air og Karl­mennsku Egói. Burt séð frá því hver skoðun þín á Skúla sé og hvernig hann er. Hef ekki skoðun a því,“ skrif­aði Sigmar meðal ann­ars.

…ég á erfitt með að karlar sem aldrei hafa sýnt femín­isma áhuga spretti fram sem málsvarar mál­stað­ar­ins.

Sóley svar­aði þá: „Nei. En ég á erfitt með að karlar sem aldrei hafa sýnt femín­isma áhuga spretti fram sem málsvarar mál­stað­ar­ins í stað þess að spyrja bara í ein­lægni hvernig standi á þess­ari teng­ingu.“

Þátta­stjórn­and­inn Gísli Marteinn hefur þá skorist í leik­inn og við­ur­kennir að upp­runa­leg færsla Sóleyjar hafi „stuðað“ hann en tekur fram að með slíku „stuði“ hafi femínistar „bylt sam­fé­lag­inu til batn­aðar“.

„Kommentið um Skúla stuð­aði mig líka eins og fjöl­margt sem femínistar hafa sagt sl. ár. En ég hef séð að með slíku ‘stuði’ hafa þær bylt sam­fé­lag­inu til batn­aðar. Mér dettur því ekki í hug að kenna þeim hvað er mál­staðnum gott. Yfir og út,“ skrif­aði Gísli í svari sínu til Sigmars.

Þegar Sóley gerir til­raun til að enda rök­ræð­urnar sem hafa staðið yfir í nokkra daga virð­ist Sigmar ekki vera til­bú­inn til að sleppa tak­inu og skrifar: „En svona aftur að upp­haf­inu, hvert er þitt mat á ábyrgð stjórn­ar­for­manns og stjórnar fyr­ir­tækja.“

Gísli svara þá „PLEASE! Ertu að djóka Sigmar? Farðu með þetta yfir á Facebook. Ertu ekki hvort sem er að fjalla um Sóleyju þar?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Feminíski aðgerðarhópurinn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar framlagi“
Innlent

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur: „Við erum stoltar af okkar fram­lagi“

Fem­iníski aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar er hættur. Stjórn­endur Öfga sendu frá sér til­kynn­ingu á Instagram þar sem sagt er frá því að hóp­ur­inn sé hættur. Hópurinn hefur inni­haldið ýmsar konur en sem dæmi má nefna um þær sem hafa komið fram undir nafni Öfga má nefna Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, Helgu Bene­dikts­dóttur, Ninnu Körlu Katrín­ar­dóttur, Huldu Hrund Guðrúnar Sig­munds­dóttur, Tönju Mjöll Ísfjörð Magn­ús­dóttur...
Femínismi – um hvað ræðir?
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

Femín­ismi – um hvað ræðir?

„Femínisti er mann­eskja sem veit að jafn­rétti kynj­anna hefur ekki verið náð og vill gera eitt­hvað í því.“ Þessa skil­grein­ingu er að finna á heima­síðu Femínista­fé­lags­ins. Mikið hefur verið rætt um femín­isma síð­ustu ára­tugi, en hvað stendur þessi póli­tíska og hug­mynda­fræði­lega stefna fyrir? Einhvers staðar voru umræður á þessa leið: „þeir eru leið­in­legir og gera lítið úr konum með öfga...
„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“
Innlent

„Ef þú kallar sjálfan þig ekki femínista og þú ert ekki femínisti, hvað ertu þá?“

„Hvernig held­urðu í heil­indi þín sem femínisti, þegar það er auð­veld­ara að skil­greina sig opin­ber­lega sem femínista heldur en að gera það ekki?“ var spurn­ing sem níger­íski rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Chimamanda Ngozi Adichie fékk, í opnum umræðum eftir fyr­ir­lestur sinn í Háskóla­bíói á föstu­dag­inn. „Virki­lega? Finnst þér í alvöru auð­veld­ara að skil­greina þig sem femínista heldur en að gera það...
Feminískar stúdínur knýja fram ókeypis tíðavörur fyrir stúlkur
Innlentfemínismi

Fem­inískar stúd­ínur knýja fram ókeypis tíða­vörur fyrir stúlkur

Þrjár tíundu bekkjar stúd­ínur sem saman stofn­uðu Femínista­fé­lag Grunn­skól­ans í Hvera­gerði og hrundu af stað styrkja­leit fyrir dömu­bindum og tíða­vörum síð­ast­liðið haust hafa sann­fært bæj­ar­stjórn um nauð­syn þess að bjóða ókeypis tíða­vörur í skól­anum og félags­mið­stöð­inni frá og með næsta hausti. Rannveig Arna Sig­ur­jóns­dóttir, sem lauk tíunda bekk nú í vor segir í við­tali við Frétta­blaðið að stelpur eigi ekki...
„Lúserar landsins“ reyna að stöðva samfarakennslu Sólborgar
Innlentfemínismi

„Lúserar lands­ins“ reyna að stöðva sam­fara­kennslu Sól­borgar

„Einhver segja útópía. Þetta er hins vegar 100% mögu­leg staða. Snýst bara um for­gangs­röðun fjár­magns og að drulla þessu af stað. Getið þið plís verið fólkið sem tekur þetta risa­stóra skref til að vernda næstu kyn­slóðir?“ tísti Sólborg Guð­brands­dóttir tón­list­ar­kona, fyr­ir­les­ari, bar­áttu­kona gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi og stofn­andi Instagram-síð­unnar Fávitar fyrir fáeinum dögum en tíst Sól­borgar rataði í fjöl­miðla og vakti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins