„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kynnti sig og lagði byssuna á borðið

Björn Mekk­in­osson flutti til Los Angeles árið 2008 og hóf nám í hljóð­upp­töku­stjórn. Í dag rekur hann sitt eigið hljóð­upp­töku­ver og vinnur nú með stærstu stjörn­unum í tón­list­ar­geir­anum vest­an­hafs.

Kynnti sig og lagði byssuna á borðið

„Mér fannst bara voða lítið við að vera hérna, lítið til að hlakka til þannig að eitt­hvað varð maður að gera,“ segir Björn hrein­skil­inn um þá ákvörðun að taka stökkið og flytja til Los Angeles árið 2008. „Ég fór reyndar ekki strax til LA,“ flýtir hann sér að útskýra, „heldur byrj­aði ég í Kanada og fór þaðan til Seattle. Svo færði ég mig yfir til LA og byrj­aði í námi í hljóð­upp­töku­tækni við Cal-Arts í Santa Monica.“

Stuttu eftir nám stofn­aði Björn fyr­ir­tæki sitt, The Esenz Of Sound Inc. Í dag er hann sjálf­stæður hljóð­upp­töku­stjóri sem hefur ekki aðeins starfað í nokkrum af bestu og stærstu stúd­íóum heims heldur með mörgum af stærstu nöfn­unum í tón­list­ar­brans­anum. Wu Tang Clan, Maroon 5, John Legend, Busta Rhymez og Juicy J og fleirum. Aðspurður hvernig sé að vinna með svona stjörnum segir hann að fyrir sig hafi það verið mjög merki­legt að vinna til dæmis með Wu-Tang Clan.

„Ég hlust­aði mikið á þá í æsku og þegar ég fékk að hitta flesta þeirra og vinna með þeim þá fannst mér ég hafa afrekað mikið.“

„Einu sinni tók það svo langan tíma fyrir hann að ná í byss­una aftur að ég þurfti að gefa lög­regl­unni hana. Good times.“

Hann bætir við að honum þætti gaman að fá tæki­færi til að vinna með hljóm­sveit­inni Red Hot Chilli Peppers, hún hafi alltaf átt sér­stakan stað hjá honum. „Ég hef reyndar hitt Antony og Flea og það var svo­lítið epískur dagur. Ég var að vinna með Steven Tyler kringum American Idol og þá mættu þeir kappar óvænt í kaffi. Sem var skemmti­leg til­viljun.“

Eyðilagði gítarinn hjá Korn

Björn segir að ýmis­legt áhuga­vert hafi komið upp á ferl­inum og að kynnin við sumar stjörn­u­rnar séu skraut­leg, væg­ast sagt. „Ég get nefnt sem dæmi að í fyrsta skipti sem ég vann með rapp­ar­anum The Game,“ lýsir hann, „þá kynnti hann sig, horfði beint í augun á mér og tók út Glock byssu sem hann lagði á borðið alveg salla rólegur.“ Hann segir að rapp­ar­inn YG geri þetta alltaf líka og hafi gleymt byss­unni sinni nokkrum sinnum. „Einu sinni tók það svo langan tíma fyrir hann að ná í byss­una aftur að ég þurfti að gefa lög­regl­unni hana. Good times.“

Björn rifjar líka upp atvik þegar hann var fyrir skemmstu að vinna með hljóm­sveit­inni Korn að nýj­ustu plötu þeirra í Paramount Studios. „Þeir voru þar í um þrjár vikur í „lock-out,“ sem þýðir að stúd­íóið er þeirra og eng­inn getur notað það á meðan. Það þýðir líka að þeir skilja hljóð­færin sín eftir yfir nótt. Einn hljóð­upp­töku­mað-urinn sem var að vinna að öðru verk­efni ákvað að hella sig fullan og fór svo aftur í vinn­una eftir bar­inn með vini sína, aðeins til að sýna sig. Eftir ein­hvern tíma hljóp eitt­hvað í mann­inn og hann brjál­að­ist í ver­inu sem Korn var með á leigu og eyði­lagði gít­ar­inn hans Munky. Það end­aði með því að hann þurfti að borga fyrir „sessionið,“ gít­ar­inn og biðj­ast afsök­unar.“
Björn seg­ist hafa séð upp­töku af atvik­inu og ætl­aði varla að trúa eigin augum, þetta hafi verið svo rosa­legt.

En hvernig skyldi venju­legur dagur vera? „Maður byrjar á því að fara í stúd­íóið, setja upp það sem ég ætla að nota yfir dag­inn, hljóð­nema og upp­töku­for­rit. Þegar ég hef testað allt og fengið gott „sound“ er ég til­bú­inn fyrir dag­inn. Þegar kúnn­inn kemur síðan inn tekur maður sér smá tíma í að kynn­ast aðeins áður en það er byrjað að taka upp,“ svarar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

albumm

Reykjanesskaginn rís og skelfur og íbúar varaðir við: Almannavarnir boða til fundar í morgunsárið
Menning

Reykja­nesskag­inn rís og skelfur og íbúar varaðir við: Almanna­varnir boða til fundar í morg­unsárið

Hætta er á því að enn eitt eld­gosið sé að hefj­ast á Reykja­nesi. Jörð skelfur á svæð­inu við Fagra­dals­fjall og land hefur risið á Reykja­nesskaga. Þetta þýðir að hætta á eld­gosi er yfir­vof­andi. Á annað þús­und jarð­skjálfta hafa mælst síðan jarð­skjálfta­hrinan hófst í gær. Sá stærsti, 3,7 á Richter varð seint í gær­kvöld. Alls hafa átta skjálftar mælst yfir 3....
Logi Bergmann til Heiðrúnar
Menning

Logi Bergmann til Heiðrúnar

Sjón­varps­mað­ur­inn Logi Bergmann Eiðsson hefur gengið í erf­iða tíma eftir að Vitalía Lazerova sak­aði hann um kyn­ferð­is­brot í sam­vinnu við Arnar Grant á hót­el­her­bergi í Borg­ar­firði. Logi starf­aði á Mogganum og útvarps­stöð­inni K 100 þegar málið var opin­bert. Hann var lát­inn víkja úr starfi fyrir ári síðan. Nú hefur aftur rofað til hjá honum. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka í...
Plötuverslanir halda tónlistarveislu til að bregðast við áhrifum COVID-19
Menningalbumm

Plötu­versl­anir halda tón­list­ar­veislu til að bregð­ast við áhrifum COVID-19

Hljóm­plötu­versl­anir í Reykja­vík bjóða upp á tón­list­ar­veislu í sumar undir slag­orð­inu Elskum plötu­búðir. 12 Tónar, Lucky Records, Smekk­leysa, Reykja­vík Record Shop og Geisla­diska­búð Valda(tekur þátt einn dag) standa fyrir tón­list­ar­veislu 15. og 29. ágúst. Hver við­burð­ur­inn rekur annan þannig að fólk getur gengið á milli versl­ana og notið allra tón­list­ar­at­rið­anna, svo­lítið eins og að vera á lít­illi tón­list­ar­há­tíð. Verk­efnið er...
Sólborg sýnir sínar viðkvæmustu hliðar
Menning

Sólborg sýnir sínar við­kvæm­ustu hliðar

Tón­list­ar­konan Sólborg Guð­brands­dóttir, eða SUNCITY, var að senda frá sér nýtt lag, Naked. Lagið er samið af Ölmu Goodman, Klöru Elias, Glashaus bræðrum og Jóhann­esi Ágústi. Albumm náði tali af Sólborgu og fékk að for­vitn­ast um fer­il­inn, tón­list­ina, draumana og nýlega und­ir­rit­aðan samn­ing við banda­rískan tón­list­arrisa. Blaða­maður Albumm byrjar á að spyrja út í nýja lagið og Sólrun brosir og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins