„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bakað úr maísmjöli: maísbrauð – arepas

Maísmjöl er frekar fín­kornað mjöl sem unnið er úr maískorni. Það er mjög algengt í Suð­ur­ríkjum Ameríku en einnig í Afríku, og Ítalir nota það í polentu­gerð. Á Íslandi er lítil hefð fyrir notkun þess en við þekkjum það einna helst í gegnum mexíkóska mat­ar­gerð því maís­mjöl er notað í tortillur og tacos og svo í ýmis­konar snakk sem við getum keypt í stór­mörk­uð­unum.

Bakað úr maísmjöli: maísbrauð – arepas

Maís­mjölið sem ég not­aði í brauðin fékk ég í Afrísku búð­inni í Efra-Breið­holti, Afrozone, en sams­konar teg­und fæst einnig í búð­inni Fisku og Mai Thai og eflaust ein­hverjum fleiri búðum. Best er að nota svo­kallað Masa-maís­mjöl í brauð­gerð, eins og þessa sem hér er gerð, slíkt mjöl er einnig notað í tortillu­gerð.

Oftast þarf að leggja leið sína í sér­búðir til að finna það en það er alveg þess virði, svo er líka gaman að hvíla sig frá hveit­inu og nota eitt­hvað annað í stað­inn og kynn­ast hefðum og annarri mat­ar­menn­ingu í leið­inni.

Maís­brauð – arepas
8-10 stykki

Arepas eru brauð sem eiga rætur að rekja til Venes­ú­ela og Kólumbíu og eru mjög vin­sæl þar. Ég þekki unga stelpu sem fór sem skiptinemi til Venes­ú­ela og segir hún að brauðin séu nær und­an­tekn­inga­laust borin fram með öllum mat.

Ann­að­hvort eru brauðin skorin eins og pítu­brauð og álegg sett inn í brauðin eða eitt­hvað er sett ofan á þau. Við fylltum þau með sal­ati, avókadó, skinku, lauk, tómötum og chili-majónessósu og kom það vel út en hægt er að fylla þau með hverju sem er.

500 ml heitt vatn
1 tsk. salt
250 g  P.A.N hvítt masa-maís­mjöl eða Ma Se Ca
olía til að steikja upp úr

Blandið vatni og salti saman og hrærið þar til saltið leys­ist upp. Blandið maís­mjöl­inu saman við í skömmtum og vinnið með hönd­unum þar til deigið verður að frekar mjúku og blautu deigi.

Skiptið því í 8 hluta á stærð við gólf­kúlur og fletjið út í litlar kökur sem eru um 1 cm að þykkt. Steikið á t.d. pönnu­kökupönnu í 4-5 mín. á hvorri hlið við með­al­hita eða þar til kakan er orðin gull­in­brún að lit.

Hægt er að nota brauðin sem sam­lokur, grunn í pít­su­botn eða eins og pítu­brauð og fylla með alls­konar fyll­ingum eins og gert er hér.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður