„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dásamlegt bakkelsi á köldum vetrardögum

Þegar kalt er úti er upp­lagt að finna sér eitt­hvað til dund­urs í eld­hús­inu. Einnig er vel hægt að hafa það nota­legt í bústað­ar­ferðum vetr­ar­ins, kveikja á kertum, setja þægi­lega tón­list undir og útbúa eitt­hvað ein­falt og góm­sætt, sér­stak­lega þegar veðrið er slæmt.

Dásamlegt bakkelsi á köldum vetrardögum
Mynd/Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Það er ákveðin ró í því að vinna með deig. Þessir snúðar eru æðislegir og vanillusósan dásamleg með. Eitthvað sem flestir falla fyrir.

Snúðar eða snúður

Heitið er oft­ast haft um bakk­elsi sem búið er til annað hvort úr ger­deigi eða öðru deigi og er flatt út, smurt með smjöri og t.d. kanil­sykri eða sultu, rifnum osti, skinku­bitum og krydd­jurtum svo eitt­hvað sé nefnt. Deiginu rúllað upp í lengju með fyll­ing­unni og síðan skorin í sneiðar. Með því að leggja sneið­arnar flatar á plötu og baka, fæst góð lyft­ing í miðju snúðs­ins. Hér er aftur á móti búnar til lengjur, þeim dýft í bráðið smjör og sykur, snúið upp á þær og búin til hnútur úr þeim sem myndar snúð.

Kanilsnúðar með vanillusósu (12 snúðar)

Deig

600 g hveiti

1 tsk. malað kar­dimommu­duft

½ tsk. salt

100 g smjör

250 ml mjólk

2 msk. þurr­ger

2 msk. hun­ang

1 egg

Blandið saman hveiti, kar­dimommum og salti. Bræðið smjörið og bætið mjólk­inni saman við og hitið að 37°C. Takið af hit­anum og bætið ger­inu og hun­ang­inu saman við. Látið kólna í 2-3 mín. Bætið eggi út í og blandið síðan saman við hveiti­blönd­una. Hnoðið saman í deig og skiptið því svo í 12 bita og rúllið út í u.þ.b. 20 cm langar lengjur. Geymið lengj­urnar undir visku­stykki á meðan þið útbúið kanil­syk­ur­inn.

Kanilsykur og smjör

5-6 msk. hrá­sykur

1 msk. kanill

1 tsk. malað kar­dimommu­duft, má sleppa

50 g bráðið smjör

Hrærið saman sykur, kanil og kar­dimommur og hafið bráðið smjör í annarri skál. Dýfið lengj­unum í smjörið og svo í syk­ur­blönd­una og búið til snúða úr lengj­unum með því að búa til hnút og skeytið svo endana saman undir hverjum snúð. Raðið á ofn­plötu og látið hvíla í 20 mín. undir visku­stykki. Bakið 9-12 mín. eða þar til snúð­arnir eru orðnir gull­in­brúnir. Dreypið vanillusós­unni yfir þegar snúð­arnir hafa kólnað örlítið og berið afgang­inn af sós­unni fram með snúð­unum í skál.

Vanillusósa

150 ml mjólk

1 vanillu­stöng

3 eggja­r­auður

60 g sykur

1 ½ dl rjómi, þeyttur

Hitið mjólk­ina, kljúfið vanillu­stöng­ina og skafið fræin úr, setjið þau út í mjólk­ina ásamt stöng­inni og látið malla í 5 mín. Hrærið eggja­r­auður og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós. Takið vanillu­stöng­ina upp úr mjólk­inni. Blandið eggja­hrærunni saman við og hrærið stöðugt í á meðan. Takið af hit­anum þegar sósan hefur þykknað tölu­vert. Látið kólna og blandið þeytta rjóm­anum saman við.

Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Ljós­mynd­ari / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður