„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Trufluð túnfiskbrauðterta með nýju tvisti

Tún­fiskur er frá­bær til­breyt­ing frá rækjum og skinkum á brauðtert­una enda bæði bragð­góður og hollur.

Trufluð túnfiskbrauðterta með nýju tvisti

Í þessu brauðtertu-víd­eói sem er það síð­asta í brauðtertuser­í­unni hjá okkur í bili erum við með skemmti­legt tvist og maukum ferskar krydd­jurtir með töfra­sprota og setjum út í sal­atið.

Skemmst er frá því að segja að brauðtertan bragð­ast ein­stak­lega vel, svo vel að hún klár­ast yfir­leitt á mjög skömmum tíma. Sérlega gaman er að bjóða upp á bubblur með brauðtertum enda er þessi allt of fín­leg til að sporð­renna með kaffi eða gosi og því pörum við hana hér með ekta kampa­víni, Nicolas Feuillatte brut sem kemur ein­stak­lega vel út.

Brauðterta með túnfisksalati, ferskum kryddjurtum og sítrónu

Túnfisksalat

30 g basi­líka
30 g stein­selja, stilkar fjar­lægðir að mestu
300 g Gunnars majónes
100 g grísk jógúrt frá Örnu
2 msk. fínt rifin sítrónu­börkur
4 msk. sítrónu­safi
4 msk. ólífu­olía
600 g tún­fiskur í vatni
4 harðsoðin egg, skorin smátt
2 stönglar sell­erí, fínt saxað
3 skalot­laukar, fínt saxaðir
2 hvít­lauks­geirar, saxaðir fínt
1-1 ½ tsk. sjáv­ar­salt
½-1 tsk. nýmal­aður svartur pipar

Setjið basil, stein­selju, majónes, sýrðan rjóma, sítrónu­börk, sítrónusafa og ólífu­olíu í mat­vinnslu­vél og maukið þar til allt hefur sam­lag­ast vel. Setjið sós­una í skál og blandið tún­fiski saman við með gaffli og brjótið hann niður. Blandið eggjum, sell­erí, skalot­lauk, hvít­lauk saman við og bragð­bætið með sjáv­ar­salti og svörtum pipar eftir smekk.

Brauðterta

1 brauðtertu­brauð
tún­fisksalat, upp­skrift hér að ofan
½ dl grísk jógúrt frá Örnu
1 ½ dl Gunnars majónes
1 tsk. sítrónu­safi

Skerið endana af brauð­inu og leggið einn brauð­botn á fat eða bretti. Smyrjið brauð­botn­inn með tún­fisksal­at­inu og leggið annan botn ofan á. End­ur­takið ferlið þar til botn­arnir eru búnir. Ekki setja tún­fisksalat ofan á sein­asta brauðið. Blandið saman í skál sýrðum rjóma, majónesi og sítrónusafa. Smyrjið brauðtert­una á öllum hliðum með blönd­unni.

Skraut

gúrka, skorin í sneiðar og langsum
radísur, sneiddar
vín­ber, skorin í tvennt
blæju­ber, skorin í tvennt
rauð paprika, mjög smátt söxuð
sítróna, skorin smátt
stein­selja
spírur
svartur pipar

Skreytið eins og í mynd­bandi eða gefið hug­mynda­flug­inu lausan taum­inn og berið fram með góðu kampa­víni.

Mat­reiðsla / Folda Guð­laugs­dóttir
Stílis­er­ing og rit­stjórn / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynda­taka og klippin / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

brauðterta

Myndband: Unaðsleg brauðterta með reyktum laxi og eplum
Mannlífið

Myndband: Unaðsleg brauðterta með reyktum laxi og eplum

Brauðtertur eru afar vin­sælar á Íslandi enda frá­bærar á veislu­borð, í afmæli eða bara í föstu­dags­kaffið í vinn­unni. Mögu­leik­arnir eru enda­lausir þegar kemur að útfærslum bæði á sal­at­inu innan í brauð­inu og skreyt­ing­unum og hver og einn getur fengið útrás fyrir sköp­un­ar­kraft­inn í gegnum agúrkur, radísur og annað brauðtertu­hrá­efni. Við hér á Gest­gjaf­anum skelltum í eina afar góm­sæta brauðtertu þar sem epli leika skemmti­legt hlut­verk.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður