„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fljótfærnisleg ákvörðun og erfiður tími

Fljótfærnisleg ákvörðun og erfiður tími

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég var rétt búin að jafna mig eftir skilnað við manninn minn til 15 ára þegar ég kynntist afar sjarmerandi manni í gegnum einkamálasíðu á Netinu. Eftir að hafa tekið fljótfærnislega ákvörðun upplifði ég einn furðulegasta tíma lífs míns.

Erf­ið­leik­arnir í hjóna­band­inu hófust fljót­lega eftir að við hjónin keyptum fal­lega íbúð í Vest­ur­bænum í Reykja­vík, drauma­í­búð­ina okkar. Við höfðum hlakkað mikið til að búa þar með börn­unum okkar þremur en eftir að við vorum flutt inn fannst mér mað­ur­inn minn breyt­ast í fram­komu. Eftir aðeins fjóra mán­uði á nýja staðnum til­kynnti hann mér að hann væri orð­inn ást­fang­inn af annarri konu og vildi skilnað. Þetta var gríð­ar­legt áfall, mig hafði ekki grunað neitt í þessa ver­una. Við reyndum okkar besta til að skilja í góðu, barn­anna vegna, og þau fengu að ráða því hjá hvoru okkar þau vildu búa. Elsta barnið okkar, algjör pabbastelpa, flutti með pabba sínum en þau yngri vildu vera hjá mér. Ég fékk íbúð­ina í minn hlut við skiln­að­inn en mað­ur­inn minn fyr­ir­tækið sem við höfðum rekið í nokkur ár. Mig lang­aði ekki að búa í þess­ari íbúð sem svo margir draumar höfðu verið bundnir við svo ég setti hana á sölu fljót­lega eftir skiln­að­inn. Hún seld­ist þó ekki fyrr en eftir tæp tvö ár en þá fékk ég gott verð fyrir hana og keypti mér nota­lega íbúð sem hent­aði okkur vel.

Sálufélagi

Þegar ég kynnt­ist Guðmundi var ég sann­ar­lega ekki í leit að maka. Vinkona mín hafði hvatt mig til að skrá mig á Einkamál.is og sagði að ég hefði gott af því að eign­ast vin. Um þrjú ár voru liðin frá skiln­að­inum og ég var stundum ein­mana. Ég skráði mig inn og leist ekki á blik­una í fyrstu, enda fékk ég nokkur gróf bréf frá mönnum, sumum giftum, sem voru í leit að skyndikynnum. Ég hafði þó skráð mig á „vin­átta/spjall“ en það skipti þessa menn engu máli.

Þegar Guð­mundur sendi mér bréf leist mér strax afskap­lega vel á hann. Hann var kurt­eis og kom vel fyrir og eftir að ég sam­þykkti að hitta hann, breytt­ist það álit mitt ekk­ert, nema síður væri. Hann var mynd­ar­maður og í góðu starfi en sagð­ist vera í sjúkra­leyfi. Hann sagði mér að hann væri í með­ferð vegna þung­lyndis og allt væri á upp­leið hjá honum. Ég þekki þung­lyndi úr fjöl­skyldu minni, bróðir minn þjáð­ist af því um tíma. Mér fannst fínt hjá Guðmundi að leita sér hjálpar, eins og bróðir minn gerði.

Samband okkar þró­að­ist hratt og þegar Guð­mundur bauð mér að flytja til sín var ég alveg til í það. Ég var viss um að allt gengi vel hjá okkur.

Sjaldan hafði ég séð fal­legra og snyrti­legra heim­ili en hjá honum. Allt var í röð og reglu sem ég kunni vel að meta. Sjálfri líður mér alltaf best þegar fínt er í kringum mig.

Ég var yfir mig ást­fangin og hlakk­aði til að verja ævinni með Guðmundi. Mér fannst ég hafa hitt sálu­fé­laga minn. Vel gekk að leigja út íbúð­ina og skyn­sam­leg­asta sem ég gerði í öllu þessu ferli var að leigja hana bara út til árs.

Strangar húsreglur

Það sem ég vissi ekki þegar ég flutti til Guð­mundar var að hann hætti að taka geð­lyfin sín um svipað leyti. Það amaði reyndar mun meira að honum en þung­lyndi, ég átt­aði mig á því næstu mán­uð­ina og mér fannst mjög ólík­legt að hann ætti aft­ur­kvæmt í starf sitt sem reynd­ist vera rétt hjá mér.

Hann var góður við börnin mín, sjö og tíu ára, og það kunni ég að meta en hann var barn­laus sjálfur.

Guð­mundur átti ekki bara fal­legt heim­ili, það var óað­finn­an­legt og þannig vildi hann halda því jafn­vel þótt börn væru flutt inn. Hann var auð­vitað mikið heima og snurfus­aði sífellt og dytt­aði að.

Fyrsta rifr­ildið okkar tengd­ist umgengni barn­anna. Hann skamm­aði mig fyrir að dóttir mín setti ekki alltaf skóna sína á réttan stað í skó­hill­unni. Skórnir fóru í hill­una en dóttir mín rað­aði þeim hvorki vel né setti þá í hvert skipti á „rétta“ stað­inn sem var ætl­aður henni. Hand­klæðin á bað­inu urðu líka of óhrein, að mati Guð­mundar, og hann reyndi mikið að fá börnin til að þvo sér betur um hend­urnar. Loks bað hann þau um að nota papp­írs­þurrkur en varð síðan fúll þegar börnin settu þurrk­urnar ekki nógu vand­lega ofan í rusla­föt­una. Ég reyndi að segja honum að slaka á, við byggjum ekki á dauð­hreins­aðri skurð­stofu.

Eina nótt­ina gat Guð­mundur ekki farið að sofa af því að einn gólf­lamp­inn hans var bil­aður. Það tók hann nokkra klukku­tíma að fikta í lamp­anum þar til hann komst í lag og þá loks­ins, eða um fjög­ur­leytið um nótt­ina, treysti hann sér til að fara að sofa. Allt þurfti að vera full­komið. Skápum og skúffum varð að loka alla leið, ann­ars leið honum illa og hann nöldr­aði stöðugt í börn­unum um að þau yrðu að setja kló­sett­set­una niður og mér ef honum fannst snyrti­dótið mitt verða of fyr­ir­ferð­ar­mikið á bað­hill­unni. Hann hafði látið mig fá pláss fyrir snyrti­vör­urnar inni í lok­uðum skáp á bað­inu en mér fannst þægi­legra að geyma það nauð­syn­leg­asta á hill­unni. Ég var vön því heiman frá mér og það var ekk­ert ósnyrti­legt að hafa það þar.

„Allt þurfti að vera full­komið. Skápum og skúffum varð að loka alla leið, ann­ars leið honum illa og hann nöldr­aði stöðugt í börn­unum um að þau yrðu að setja kló­sett­set­una niður.“

Guð­mundur minnti mig stundum á per­sónu úr bíó­mynd, skelfi­legan mann með full­komn­un­ar­áráttu sem tryllt­ist ef t.d. merktu hand­klæðin „His/Hers“ voru ekki bein og jöfn á hand­klæða­stöng­inni. Eig­in­kona per­són­unnar setti dauða sinn á svið til að sleppa frá honum. Guð­mundur var þó ekki ógn­vekj­andi á nokkurn hátt en það gat verið erfitt og sífellt meira þreyt­andi að búa við þetta.

Skilaboð frá almættinu

Guð­mundur jók drykkju sína og var yfir­leitt kenndur á kvöldin. Ég fékk mér stundum í glas með honum en svo hætti það að vera gaman. Smám saman átt­aði ég mig á því hvað hann var veikur og hve lyfja­leysið og drykkjan gerðu honum illt. Hann fór að fá miklar rang­hug­myndir og var ýmist hátt uppi eða langt niðri. Í einni upp­sveifl­unni sagði hann mér að hann tæki lyfin sín ekki lengur, hann þyrfti ekki á þeim að halda því líf hans væri orðið full­komið með mig og börnin inn­an­borðs. Mér varð virki­lega órótt þegar hann sagði mér þetta og hvatti hann ein­dregið til að halda áfram að taka lyfin en án árang­urs.

Yfir­leitt var ástandið nokkuð gott en þegar það var slæmt, var það virki­lega slæmt og hann hafði allt á hornum sér varð­andi umgengni mína og barn­anna. Við gengum mjög vel um en að sjálf­sögðu var ekki hægt að hafa heim­ilið full­komið öllum stundum. Ég fór að finna fyrir streitu og börnin mín líka.

Þótt ég bæri enn til­finn­ingar til Guð­mundar treysti ég mér ekki til að búa með honum lengur og vildi alls ekki bjóða börn­unum upp á svona líf. Við vissum aldrei hvað Guðmundi dytti næst í hug. Hann tók skyndi­á­kvarð­anir, til dæmis að fara í úti­legu með engum fyr­ir­vara og ef ég var ekki til í það fór hann í margra daga fýlu.

Þegar leigj­and­inn minn spurði mig hvort hann gæti sagt upp íbúð­inni með skömmum fyr­ir­vara vegna breyttra aðstæðna, fannst mér það nán­ast vera skila­boð frá almætt­inu um að nú væri nóg komið.

Með góðu eða illu

Guð­mundur tók því illa þegar ég sagði honum að ég ætl­aði að fara frá honum. Hann reyndi mikið til að fá mig til að breyta ákvörðun minni en ég stóð við hana og flutti í íbúð­ina mína aftur. Þá hafi sam­búðin staðið í tæpt ár.

Það var gíf­ur­legur léttir að kom­ast heim aftur eftir þennan furðu­lega tíma og ég fann að börnin urðu mun rólegri. Þau höfðu lengi verið eins og hengd upp á þráð.

Guð­mundur reyndi sitt besta til að fá mig aftur til sín. Þegar ég kom heim úr vinn­unni einn dag­inn, ekki löngu eftir að ég var flutt frá honum sá ég risa­stóran blóm­vönd standa á borð­stofu­borð­inu. Búið var að taka til í íbúð­inni, vaska upp morg­un­verð­ar­disk­ana og allt var orðið svo fínt að ég vissi hver hafði verið í íbúð­inni. Ekkert kort fylgdi blóm­vend­inum en ég hringdi strax í Guðmund og spurði hvort hann hefði sent mér þau. Hann sagð­ist hafa viljað sýna mér hve mikið hann elskaði mig. „Hvernig komstu inn?“ spurði ég. „Þú gleymdir að læsa,“ svar­aði Guð­mundur að bragði. Mér fannst það ekki lík­legt en það voru engin ummerki um inn­brot. Ég bað hann vin­sam­leg­ast að láta mig í friði, sam­bandi okkar væri lokið. Svo skellti ég á og tók sím­ann úr sam­bandi.

Ég fékk frið í tvo mán­uði, að vísu reyndi hann oft að hringja í mig, bæði úr eigin núm­eri og leyni­núm­eri en ég svar­aði bara þeim núm­erum sem ég þekkti.

Næst lét hann til sín taka á föstu­degi. Ég var dauð­þreytt eftir vinnu­vik­una og hlakk­aði mikið til að slaka á heima alla helg­ina. Börnin voru farin til pabba síns og planið var að dorma fyrir framan sjón­varpið um kvöldið. Þegar ég kom inn á heim­ili mitt mætti mér hræði­leg sjón. Búið var að möl­brjóta alla vasa og styttur í stof­unni, leir­tauið mitt lá í hrúgu á eld­hús­gólf­inu, allt brotið. Það sem var uppi á veggjum, eins og ljós­myndir, lágu einnig í brotnum römmum í hrúg­unni. Ég skil ekki enn í dag af hverju nágrannar mínir urðu ekki varir við neitt. Sófa­settið mitt var skorið þvers og kruss og algjör­lega ónýtt. Svefn­her­bergin höfðu sem betur fer verið látin í friði.

Í algjöru áfalli hringdi ég í lög­regl­una. Þrír ljúfir lög­reglu­menn mættu á svæðið. Ég sagði þeim að mig grun­aði fyrrum sam­býl­is­mann, hann væri ekki sáttur við sam­bands­slitin.

Guð­mundur ját­aði fyrir lög­regl­unni að hafa gert þetta og að hann hefði verið með lykil að íbúð­inni síðan ég flutti til hans á sínum tíma. Ég var búin að stein­gleyma því. Hann kom örugg­lega oftar í íbúð­ina því mér fannst stundum eins og ein­hver annar hefði verið þar, hlut­irnir mínir voru á öðrum stöðum en ég hafði skilið þá eftir á en ég hélt að börnin hefðu fært þá til. Ég var líka alveg grun­laus. Mér skilst að Guð­mundur hafi gert þetta til að ég yrði hrædd og flytti aftur til hans en honum datt víst ekki í hug að ég hringdi beint í lög­regl­una. Hann var löngu hættur að geta hugsað rök­rétt.

Ég fékk tjónið bætt en ég treysti mér ekki lengur til að búa í þess­ari íbúð svo ég seldi hana og keypti mér aðra á efstu hæð í blokk. Þar upp­lifði ég meira öryggi en í þrí­býl­is­hús­inu sem ég hafði áður búið í.

Mörg ár eru liðin síðan þetta gerð­ist og ég hef fengið algjöran frið fyrir Guðmundi. Hann býr með konu núna og von­andi er hann far­inn að taka lyfin sín á nýjan leik. Ég held að allt þetta rugl sem gerð­ist á sínum tíma sé vegna þess að hann taldi sig geta verið án þeirra.

Sjálf er ég komin í sam­búð með góðum manni. Hann gengur hræði­lega illa um miðað við Guðmund en ég er alveg sátt við það eftir fyrri reynslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu