„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég get ekki hatað bróður minn“

Heiða Þórð­ar­dóttir segir sorg­ina eftir að bróðir hennar, Gísli Þór Þór­ar­ins­son, var skot­inn af bróður þeirra, Gunnari Jóhanni Gunn­ars­syni, hafa verið þá þyngstu sem hún hefur upp­lifað. Hún trúir þó að þetta hafi verið óvilja­verk og er afskap­lega ósátt við rang­færslur í frétta­flutn­ingi af mál­inu.

„Ég get ekki hatað bróður minn“
||||||

„Þetta hefur nátt­úr­lega verið alveg svaka­lega erf­iður tími,“ svarar Heiða aðspurð hvernig henni hafi liðið þessa mán­uði síðan mann­drápið átti sér stað. „Ég er að koma til en þetta hefur verið ansi töff, sér í lagi vegna þess að ég var í svo miklum sam­skiptum við Gísla alla hans ævi. Ég pass­aði hann alveg frá því að hann fædd­ist og við vorum mjög náin alla tíð. Hann trúði mér fyrir öllu í aðdrag­anda máls­ins og ég var eig­in­lega þátt­tak­andi í þessu öllu með honum.“

Aðdrag­andi máls­ins var sá að Gísli og fyrr­ver­andi kona Gunnars fóru að draga sig saman á meðan Gunnar og kona hans stóðu í skiln­að­ar­ferli. Heiða segir Gísla hafa heim­sótt Gunnar nokkrum dögum áður en mann­drápið átti sér stað til að segja honum að þau væru saman og myndu hugs­an­lega fara að búa saman í fram­tíð­inni.

„Gunnar og konan hans skildu að borði og sæng fyrir tveimur árum og í ágúst á síð­asta ári fór Gunnar í með­ferð til að vinna sínum málum og koma lífi sínu á réttan kjöl. Hann stóð í þeirri mein­ingu að ef honum tæk­ist það myndu þau hjónin taka saman aftur. Hann er faðir barn­anna sem gjarnan eru kölluð stjúp­börn Gísla í fréttum af mál­inu sem er auð­vitað algjör vit­leysa. Gísli og fyrr­ver­andi kona Gunnars bjuggu ekki saman og þessi börn voru ekk­ert á hans vegum. Gísli hringdi í mig 19. apríl, nokkrum dögum áður en þetta gerð­ist, og sagði mér að hann hefði farið til Gunnars fáeinum dögum fyrr og sagt honum að hann og fyrr­ver­andi kona Gunnars væru að draga sig saman. Gunnar varð auð­vitað alveg brjál­aður því að hann hélt að þau hjónin væru að vinna að því að taka saman aftur. Þar fyrir utan voru Gísli og Gunnar alltaf góðir og nánir vinir þannig að Gunnar upp­lifði þetta sem svik frá bæði kon­unni sinni og besta vini. Í kjöl­farið leit­aði hann til sál­fræð­ings vegna þess að hann var gjör­sam­lega nið­ur­brot­inn og var hræddur um að hann myndi fyr­ir­fara sér. Hann lét svo leggja sig inn á geð­deild þar sem hann réði ekk­ert við aðstæð­urnar.“

„Þessa fjóra daga sem hann var á geð­deild, algjör­lega nið­ur­brot­inn, og ég var að reyna að tala hann til datt mér aldrei í hug að þetta myndi enda svona hræði­lega.“

Í fréttum hefur komið fram að Gunnar hafi hótað því að drepa Gísla eftir að hann komst að sann­leik­anum en Heiða seg­ist ekki hafa tekið neitt mark á því á þeim tíma, það hafi bara verið mark­laus upp­hrópun eins og fólk láti gjarnan frá sér þegar það er í miklu upp­námi.

„Ég var í miklu sam­bandi við þá báða á þessum tíma,“ segir hún. „Við Gunnar vorum líka náin, nema auð­vitað þegar hann var á kafi í ein­hverju rugli. Þannig að það má segja að við höfum öll þrjú verið nánir vinir og staðið saman í gegnum lífið enda þurftum við öll hvert á öðru að halda.“

Aðspurð hvort hún hafi átt von á því að Gunnar gæti látið verða af þeirri hótun sinni að drepa Gísla, miðað við langa ofbeld­is­sögu hans, svarar Heiða að hún hafi aldrei trúað því. Mynd/Hallur Karlsson

Öll mörkuð af upp­eld­inu
Komið hefur fram í fréttum af mál­inu að þau systk­inin hafi átt erfitt í æsku vegna alkó­hól­isma og geð­rænna vanda­mála móður þeirra. Ólust þau öll upp hjá henni?

„Nei, elskan mín góða,“ segir Heiða og hristir höf­uðið. „Mamma átti sex börn með fjórum mönnum og pabbi átti fjögur börn með þremur konum og svo áttu allir hinir feður þess­ara barna fullt af börnum með fullt af konum. Þetta er alveg óskap­lega flókið fjöl­skyldumunstur. En ég, Gísli og alsystir hans ólumst öll upp hjá mömmu. Gunnar ólst hins vegar upp hjá föður sínum, en kom mikið til okkar og sótti mikið í mömmu. Hann var óskap­lega orku­mik­ill og ég kall­aði hann alltaf vill­ing­inn, en mér þótti samt afar vænt um hann og hann er alveg jafn­mik­ill bróðir minn og Gísli var.“

Bræð­urnir Gísli og Gunnar með móður sinni en komið hefur fram í fréttum að þau systk­inin hafi átt erfitt í æsku vegna alkó­hól­isma og geð­rænna vanda­mála móður þeirra.

Heiða segir óvíst hvort hafi komið á undan hjá móður þeirra, alkó­hól­ism­inn eða geð­rænu vanda­málin en auð­vitað hafi ástand hennar haft mikil áhrif á þau systk­inin.

„Mamma byrj­aði að taka kvíða­still­andi lyf þegar hún var sextán ára,“ útskýrir hún. „Þannig að mögu­lega var það upp­hafið. Hún lét við­gang­ast hluti sem eru algjör­lega absúrd og þekkj­ast ekki á „eðli­legum“ heim­ilum. Það setti mark sitt á okkur öll systk­inin, líka þau sem ólust ekki upp hjá henni. Þar fyrir utan áttum við fleiri fóst­urpabba en ég get talið á fingrum beggja handa og þeir voru nátt­úr­lega mis­góðir, eins og gengur.“

Hver næstu skref verði til að ná aftur tökum á lífi sínu segir Heiða að það sé nú ýmis­legt í bígerð. Mynd/Hallur Karlsson

Trúir ekki að þetta hafi verið vilja­verk
Spurð hvort hún hafi átt von á því að Gunnar gæti látið verða af þeirri hótun sinni að drepa Gísla, miðað við langa ofbeld­is­sögu hans, svarar Heiða að hún hafi aldrei trúað því og hún trúi því ekki enn að það hafi verið ætlun hans.

„Þessa fjóra daga sem hann var á geð­deild, algjör­lega nið­ur­brot­inn, og ég var að reyna að tala hann til, datt mér aldrei í hug að þetta myndi enda svona hræði­lega,“ segir hún. „Hann sagð­ist myndu loka á sam­skipti við mig ef ég tæki afstöðu með Gísla en ég tók enga afstöðu, sagði honum bara að jafna sig, þessi kona væri ekki þess virði að splundra sam­stöðu okkar þriggja. Varðandi fyrri brot hans þá vil ég taka fram að þau áttu sér alltaf stað þegar hann var í harðri neyslu. Ekki að það sé afsökun, en það er skýr­ing. Eftir að hann kom út af geð­deild­inni féll hann og fór heim til Gísla með kunn­ingja sínum og þeim bræðr­unum lenti saman sem lauk með því að Gunnar skaut Gísla í lærið, skotið fór í slagæð og honum blæddi út. Sjúkra­flutn­inga­menn­irnir sem komu á vett­vang voru með bundnar hendur vegna þess að þeir máttu ekki fara inn á undan lög­regl­unni og því fór sem fór.“

„Þótt ég syrgi auð­vitað Gísla bróður minn óskap­lega mikið þá er Gunnar líka bróðir minn og ég get ekki hatað hann fyrir þetta slys.“

Spurð hvort hún sé reið yfir því að Gísli hafi verið lát­inn liggja einn þar til honum blæddi út tekur Heiða sér örlít­inn umhugs­un­ar­tíma til að svara.

„Jú,“ segir hún svo. „Ég er reið, það hefði verið hægt að bjarga honum. En samt hef ég eig­in­lega ekki orðið reið í þessu sorg­ar­ferli, nema auð­vitað við fólkið í kringum mig sem sýndi af sér virki­legan ótukt­ar­skap gagn­vart mér vegna þess að ég vildi ekki taka þá afstöðu að kalla Gunnar morð­ingja. Ég þekki hann ekki sem slíkan. Ég veit auð­vitað að hann hefur gert hræði­lega hluti, þótt ég hafi ekki lesið öll máls­skjöl í þeim málum sem hann hefur verið dæmdur fyrir en mér finnst það ekki vera mitt að dæma hann. Ég get ekki einu sinni verið reið við hann í þessu til­felli, hann þarf að lifa með því alla sína ævi að hafa drepið bróður sinn og besta vin. Þeir höfðu búið saman, unnið saman og áttu mjög vel saman þegar Gunnar var í topp­standi, sem hann var miklu oftar en í neyslu. Þótt ég syrgi auð­vitað Gísla bróður minn óskap­lega mikið þá er Gunnar líka bróðir minn og ég get ekki hatað hann fyrir þetta slys. Ég er bara svo ofboðs­lega sorg­mædd. Ég er búin að missa alla þá sem hafa verið mér kær­komn­astir, mömmu, pabba, vini og ömmur en þetta er mesta sorg sem ég hef upp­lifað. Þegar lög­reglan kom til að segja mér frá þessu var mér boðin hjálp sem ég afþakk­aði með þeim orðum að ég væri vön þessu en málið er að þetta er það svaka­leg­asta högg sem ég hef fengið. Sorgin var svo mikil að ég fann lík­am­legan sárs­auka. Ég svaf ekki, ég borð­aði ekki og ég get svarið að ég man ekk­ert eftir fyrstu dög­unum á eftir.“

Bræð­urnir Gunnar og Gísli voru góðir vinir og unnu meðal ann­ars saman við sjó­mennsku.

Atburð­ur­inn hefur tvístrað fjöl­skyld­unni
Þrátt fyrir þessa miklu sorg og van­líðan seg­ist Heiða ekki hafa leitað sér áfalla­hjálpar eða sál­fræði­að­stoðar, hún hafi haldið að hún kæm­ist í gegnum þetta hjálp­ar­laust. Það hafi senni­lega verið ofmat á eigin getu.

„Það er engan stuðn­ing að fá frá fjöl­skyldu minni,“ segir hún. „En hins vegar hef ég fengið ótrú­leg­ustu hjálp frá alls konar fólki sem jafn­vel þekkir mig ekki neitt. Ég er líka mikið í félags­störfum, er í stjórn stjórn­mála­flokks og þar að auki sam­frí­múr­ari og þaðan hef ég fengið mestu hjálp­ina. Þau komu fær­andi hendi með blóm og fal­legar kveðjur og vilja allt fyrir mig gera. En að öðru leyti hef ég ekki fengið neina hjálp.“

Aðrir í fjöl­skyld­unni hafa tekið harða afstöðu gegn Gunnari og for­dæmt hann fyrir verkn­að­inn, að sögn Heiðu, og atburð­ur­inn hefur tvístrað fjöl­skyld­unni enn frekar.

„Þau for­dæma hann og sumir hafa skrifað virki­lega ógeðs­lega hluti um hann á Facebook, meira að segja fólk sem er óvirkir alkó­hólistar og ætti að hafa skiln­ing á því að fík­ill undir áhrifum alls kyns efna fremur ein­hvern við­bjóð þegar hann er ekki með sjálfum sér. Mér hafa sárnað þessi ummæli óskap­lega. Dóm­harkan var svo svaða­lega mikil án þess að fólk vissi neitt um málið eða til­drög þess. Enginn reyndi að setja sig í spor Gunnars eða reyna að skilja hversu hræði­lega illa honum leið eftir að hafa upp­lifað þessi svik frá kon­unni sem hann elskaði og bróð­urnum sem hann leit á sem besta vin sinn. Mér finnst það ófyr­ir­gef­an­legt að dæma svona án þess að hafa neinar for­sendur.“

Dóm­harkan var svo svaða­lega mikil án þess að fólk vissi neitt um málið eða til­drög þess.

Lík Gísla var flutt heim, sem olli líka átökum innan fjöl­skyld­unnar, og jarð­ar­förin fór fram hér. Heiða seg­ist hafa barist fyrir því að fá hann heim en ýmsir aðrir innan fjöl­skyld­unnar hafi viljað láta brenna líkið í Noregi og flytja ösk­una heim til að spara kostnað. Þegar til kom hafi Icelandair flutt hann ókeypis sem hún sé mjög þakk­lát fyrir, svo þetta hafi ekki snú­ist um kostnað þegar upp var staðið. Þessi átök hafi hins vegar kostað það að hún hafi ekki treyst sér til að vera við jarð­ar­för­ina.

„Ég vildi fá hann heim í heilu lagi svo ást­vinir hans gætu kvatt hann,“ útskýrir hún. „Ég hafði það í gegn og hann fékk þá jarð­ar­för sem hann hafði óskað eftir, Liverpool-söng­ur­inn You Never Walk Alone var spil­aður og fleira. Síðan var hann brenndur að eigin ósk. Ég hins vegar gat alls ekki fengið mig til að fara í jarð­ar­för­ina, ég hafði bara ekki heilsu í það, var ekk­ert búin að borða í marga daga, með svima­köst og stöðugt grát­andi. Ég komst líka að því að maður sem teng­ist fjöl­skyld­unni hafði verið að skrifa alls konar óhróður um mig í Facebook-grúppu sem margir vina minna voru í. Ég ætla ekki að gefa þeim orðum líf með því að end­ur­taka þau en ég gat bara ekki hugsað mér að láta þetta fólk sjá mig brotna saman. Ég kvaddi bróður minn bara ein með sjálfri mér.“

„Ég hef svo smám saman náð því með bænum og hug­leiðslu að reyna að lifa sam­kvæmt sann­leika Gísla. Hann var alveg ofboðs­lega góð mann­eskja,“ segir Heiða um bróður sinn. Mynd/Hallur Karlsson

„Hvað myndi Gísli gera?“
Aðspurð hvernig hægt sé að halda áfram að lifa sínu venju­lega lífi eftir slíkt áfall svarar Heiða að hún sé ekki enn búin að finna út úr því.

„Ég bara veit það ekki,“ segir hún döpur. „Ég fór ekki út í margar vikur eftir að þetta gerð­ist, lét bara senda mér mat, kveikti á kertum og hugs­aði. Ég hef svo smám saman náð því með bænum og hug­leiðslu að reyna að lifa sam­kvæmt sann­leika Gísla. Hann var alveg ofboðs­lega góð mann­eskja. Talaði aldrei illa um neinn, var afskap­lega hlýr, traustur og tryggur og hjálp­aði öllum sem hann gat. Hann var alveg ótrú­legur. Þeir segja að þeir sem deyja ungir fari til himna en mikið rosa­lega var þetta ósann­gjarnt. Hann átti svo mikið eftir. Var tón­list­ar­maður með drauma og ofboðs­lega skemmti­legan húmor. Samt oft þungur, mjög mik­ill pæl­ari og mjög gaman að tala við hann um alls kyns mál­efni. Hann verður aldrei gleymdur. Ég finn sterkt fyrir honum og sný upp á mál­tækið „Hvað myndi Jesús gera?“ með því að spyrja sjálfa mig: „Hvað myndi Gísli gera?“ þegar ég þarf að taka erf­iðar ákvarð­anir. Ég er ekki trúuð í skiln­ingi trú­ar­bragð­anna en ég trúi á eitt­hvað okkur æðra. Ef ég gerði það ekki þá myndi ég ein­fald­lega trúa því að ég sé guð almátt­ugur og það er ég svo sann­ar­lega ekki,“ segir Heiða og kímir. „En ég reyni vissu­lega að vera betri með hverjum deg­inum og oft í gegnum þessar vikur hef ég hugsað með mér að ég verði að hringja í Gísla og spyrja hann um hitt og þetta, eins og ég gerði svo oft þegar ég var í ein­hverjum vafa. En nú get ég það ekki lengur, þannig að nú reyni ég bara að hugsa um hvernig hann myndi leysa málin. Hann var alltaf svo rólegur og yfir­veg­aður. Þannig að, já, það er stefnan að reyna að lifa í anda hans og borga illt með góðu, eða ef mér tekst það ekki að leiða það þá hjá mér og láta það ekki særa mig. Fyrstu vik­urnar eftir að hann dó var ég það aum að ég tók allt vont sem fólk sagði inn á mig og lét alls konar hluti fjúka á móti, sem er mér ekki eðl­is­lægt. Ég var bara gjör­sam­lega í sjokki, kannski í allt of langan tíma, ég veit það ekki, en ég bara þurfti þennan tíma til að vinna mig út úr þessu.“

Fyrstu vik­urnar eftir að hann dó var ég það aum að ég tók allt vont sem fólk sagði inn á mig og lét alls konar hluti fjúka á móti, sem er mér ekki eðl­is­lægt.

Hver næstu skref verði til að ná aftur tökum á lífi sínu segir Heiða að það sé nú ýmis­legt í bígerð. „Næstu skref, já,“ segir hún hugsi. „Góð spurn­ing. Nú er ég til dæmis í við­tali við þig, það er mjög stórt skref fyrir mig, og svo tek ég bara á þessu einn dag í einu. Ég hef verið með vef­inn speg­ill.is síðan 2011 og er að skipta um hýs­ing­ar­að­ila þessa dag­ana til að efla hann. Svo ætla ég að skrifa og er að hugsa um að þýða bók­ina Allra síð­asta ein­takið, sem ég gaf út 2011, yfir á ensku og reyna að koma henni á fram­færi erlendis. Bókin fjallar um kyn­ferð­is­lega mis­notkun og fyr­ir­gefn­ing­una og er voða sæt, þrátt fyrir efni­við­inn, hún kemur mér til að gráta og hlæja enn þá og er ekk­ert svaka­legt drama. Þar fyrir utan hef ég verið að taka að mér alls kyns verk­efni í skriftum, þýð­ingar og greina­skrif, en ann­ars hef ég bara verið í slökun. Ég hef verið að reyna að koma matar­æð­inu í lag aftur því þegar ég er undir álagi þá borða ég ekki, þannig að ég er orðin svo grönn að ég gæti málað ljósastaura að innan, svo maður grín­ist nú aðeins.“

Heiða Þórð­ar­dóttir. Mynd/Hallur Karlsson

„Þá á ég ekk­ert systk­ini eftir“
Heiðu er reyndar ekki grín í huga, hún seg­ist engan veg­inn vera búin að vinna úr þessu áfalli, það muni taka mun lengri tíma.

„Þetta ferli hefur verið alveg rosa­legt. Kannski var ég bara að taka allt sem á undan er gengið og fara í gegnum það í sam­bandi við þennan atburð. Ég fylgd­ist með þessu öllu, færði fréttir á milli þeirra bræðr­anna og við Gísli vorum alveg komin á þá skoðun að þetta væri bara í kjaft­inum á Gunnari, hann myndi ekki gera neitt. Svo hefur verið erfitt að fylgj­ast með öllum þessum rang­færslum í frétta­flutn­ingi, eins og til dæmis þegar kona Gunnars sagði að hann hefði barið allt húsið að utan þegar ég vissi að hann var inni á geð­deild, ég var nýbúin að tala við hann í síma. Það var líka erfitt að lenda í átökum við fjöl­skyld­una vegna heim­flutn­ings líks­ins og að treysta mér ekki í jarð­ar­för­ina og já, þetta hefur bara verið alveg óskap­lega erf­iður pakki.“

„Ég hef hringt nokkrum sinnum og skilið eftir skila­boð en hann hefur ekki svarað. Hann treystir sér vænt­an­lega ekki til að tala við mig strax.“

Rétt­ar­höldin í máli Gunnars munu hefj­ast 10. des­em­ber og Heiða seg­ist von­ast til að þar komi sann­leik­ur­inn í ljós. Hún ætli sér að minnsta kosti að trúa því að þetta hafi verið hræði­legt slys þangað til annað komi í ljós. Hefur hún verið í ein­hverju sam­bandi við bróður sinn á meðan hann hefur setið í gæslu­varð­haldi?

„Ég hef hringt nokkrum sinnum og skilið eftir skila­boð, en hann hefur ekki svarað,“ segir hún. „Hann treystir sér vænt­an­lega ekki til að tala við mig strax. Ég hins vegar verð til staðar þegar hann er til­bú­inn. Ég mun að sjálf­sögðu ekki ljúga að honum og segja að mér finn­ist þetta í lagi, ég mun segja honum sann­leik­ann og ef hann þolir það ekki þá á ég ekk­ert systk­ini eftir. Ég vona að til þess komi ekki.“

Myndir/Hallur Karlsson
Förðun/Hildur Emils­dóttir förð­un­ar­fræð­ingur Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins