„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erfitt að finna jólavinkil á Samherjamálið

Baggalúts­menn­irnir Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sig­urðs­son eru komnir í jólagír­inn og und­ir­búa árlega jólatón­leika hljóm­sveit­ar­innar. Þeir við­ur­kenna að það að verða feður hafi dregið úr glæfra­legri orða­notkun í textum en harð­neita því að vera orðnir minna bein­skeyttir og krítískir. Baggalútur hefur und­an­farin ár einmitt sent frá sér nýtt jóla­lag fyrir hver jól, verður það sama upp á ten­ingnum í ár?

Erfitt að finna jólavinkil á Samherjamálið
Bragi Valdimar Skúlason og Karl Sig­urðs­son

Bragi: „Já, við ætlum að hnoða saman einu lagi um köku­bakst­ur­inn og það kemur út í næstu viku.“

Ykkur hefur ekki dottið í hug að skella í jóla­lag um Sam­herj­a­málið?
Bragi: „Nei, það er ansi erfitt að finna jóla­vink­il­inn á því. Jólamakríll­inn? Ég veit það ekki. Kannski Helgi Seljan verði leynig­estur hjá okkur á tón­leik­unum í ár, mæti á sviðið og taki okkur í yfir­heyrslu. Maður veit aldrei.“

Eruð þið að verða minna beittir og krítískir með aldr­inum?
Bragi: „Já, við erum nátt­úr­lega orðnir ótta­lega væru­kærir og mjúkir með árunum. En það detta nú samt alltaf ein­hver skot inn öðru hverju.“

Karl: „Nei, ég myndi nú ekki segja það. Ég held að við séum nú enn þá að benda á eitt og annað sem aflaga fer. Meira svona almennt heldur en ein­stök til­vik eins og við gerðum í fyrra með lag­inu Sorrí með mig. Það er almennt skot á ákveðna hegðun og hugs­un­ar­hátt en það vildi svo til að stuttu eftir að lagið kom út kom upp sér­stætt atvik sem mátti dálítið heim­færa upp á þetta lag, þótt það væri ekki samið bein­línis til höf­uðs því.“

Þannig að þið eruð ekk­ert orðnir mjúkir og var­færnir?
Karl: „Nei, en ádeilan er kannski komin meira undir yfir­borðið. Orðfærið er orðið vand­aðra. Árið 2006 not­uðum við kannski ein­hver orð sem við myndum ekki endi­lega nota í dag. En það kraumar enn þá alveg sami broddur undir yfir­borð­inu.“
Baggalútur hefur verið óragur við að gera grín að ýmsum hita­málum í sam­fé­lag­inu í gegnum tíð­ina. Má gera grín að öllu?

Bragi: „Tja, já, á réttan hátt. Það má hins vegar ekki gera grín að öllu við alla. Við erum senni­lega bara orðnir miklu hrædd­ari í seinni tíð. Við létum nú ýmis­legt flakka með þeim for­merkjum að það væri fulli kall­inn að tala. Þá var skotið í ýmsar áttir. Ef maður les gamlar fréttir á baggalutur.is kross­bregður manni stundum. Við vorum að væna menn um mannát og ýmis­legt miður fal­legt. En það hefur eitt­hvað aðeins minnkað. Þótt við séum nátt­úr­lega ekk­ert á móti mann­áti, þannig.“

Bragi Valdimar er einn af eig­endum aug­lýs­inga­stof­unnar Brand­en­burg, er það ekki í and­stöðu við það sem hann hefur verið að yrkja um í textum Baggalúts í gegnum tíð­ina að vinna við það að hvetja til neyslu­hyggju?
„Jú, jú, ég er nátt­úr­lega afskap­lega tvö­faldur í roð­inu,“ segir hann og skellir upp úr. „En þetta hentar mér ágæt­lega og er svona hæfi­lega krea­tíft á köflum.“

Karl vinnur sem tölv­un­ar­fræð­ingur hjá Arion banka, er það ekki hræði­lega ósexí og lítið rokk­ara­legt starf?
„Það fer eftir því hvernig þú lítur á það,“ segir hann. „Ég er tölv­un­ar­fræð­ingur og hef alla mína hunds- og katt­ar­tíð verið að vinna sem slíkur. Þannig að þessi miss­erin vinn ég sem verk­taki í hug­bún­að­ar­brans­anum og vinnu­veit­andi minn þessa stund­ina er Arion banki. Ég held að það skaði ímynd­ina nú afskap­lega lítið.“

Lesa má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins