
Jennifer Lopez minnti á diskókúlu í hönnun Toms Ford á Óskarsverðlaunahátíðinni í febrúar.

Söngkonan Lizzo klæddist áberandi kjól frá Valentino á American Music Awards í nóvember. Handtaskan hennar vakti þó meiri athygli en kjóllinn en um agnarsmáa Garavani Vsling-tösku frá Valentino var að ræða.

Rihanna klæddist eigin hönnun á Fashion Awards fyrr í desember og fékk mikið hrós fyrir.

Katy Perry á eitt óvenjulegasta dress ársins. Ljósakrónukjóllinn frá Moschino vakti athygli á Met Gala í maí.

Lady Gaga var prinsessuleg í stærðarinnar kjól frá Valentino á Golden Globe-hátíðinni í janúar. Hárið var svo litað fölblátt, alveg í stíl við kjólinn.

Tónlistamaðurinn Harry Styles er óhræddur við að fara nýjar leiðir þegar kemur að klæðaburði. Það sýndi hann og sannaði þegar hann klæddist óvenjulegu Gucci-dressi á Met Gala.
Myndir / EPA


























Athugasemdir