„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lærði meira í gegnum félagsstarfið en bóknámið

Pétur Már Sig­urðs­son, 19 ára nem­andi í Verzlunarskóla Íslands, gaf nýlega út kverið Fundur er settur, ásamt Birni Jóni Braga­syni, kenn­ara sínum í skól­anum. Kverið fjallar um félags­störf, fund­ar­sköp og ræðu­mennsku, sem er sam­eig­in­legt áhuga­mál nem­and­ans og kenn­ar­ans.

Lærði meira í gegnum félagsstarfið en bóknámið
Björn Jón og Pétur Már afhenda dr. Inga Ólafs­syni

„Björn Jón átti hug­mynd­ina að kver­inu og bar hana undir mig þegar ég var hjá honum í lög­fræði­tíma,“ segir Pétur Már aðspurður um kverið. „Ástæðan var sú að hann vissi að ég hafði mikla inn­sýn í heim félags­starfa ung­menna í dag og vildi fá það stað­fest að það væri þörf á þessu. Þá var það ekk­ert inni í mynd­inni að ég myndi vinna hana með honum. Í kjöl­farið fórum við þó að ræða þetta meira og meira og eftir nokkrar vikur bauð Björn mér að vera með­höf­undur. Ég er mjög þakk­látur fyrir það tæki­færi.“

Pétur Már seg­ist ekki vita um önnur dæmi þess að nem­andi og kenn­ari gefi út rit saman, að minnsta kosti ekki hér á landi.

Með ofboðslega vítt áhugasvið

Pétur Már er 19 ára og býr á Selfossi. Að eigin sögn er hann með ofboðs­lega vítt áhuga­svið, mik­inn áhuga á félags­starfi og list, sér­stak­lega mál­ara­list. „Ég hef líka alltaf verið hrif­inn af tækni og hef nýtt frí­tím­ann minn í að læra for­ritun síð­ustu átta ár. Í dag for­rita ég hjá fyr­ir­tæk­inu SalesCloud sem þróar sveigj­an­legt sölu­kerfi bæði til þess að selja vörur á Netinu og í verslun.“

Hann fékk áhuga á félags­störfum strax í átt­unda bekk, þegar honum bauðst að vera í félags­mið­stöðv­ar­ráði Zelsíuz á Selfossi. „Út frá því bauð ég mig fram í ung­menna­ráð Árborgar þar sem ég sat í fjögur ár og hef grúskað í þessu öllu saman meira og minna síðan,“ segir Pétur Már. En hvað er það við félags­störfin sem heillar hann? „Ég á mjög erfitt með að setja punkt á það hvað það er sem höfðar til mín við þetta, en ætli það sé ekki bara sam­staðan sem mynd­ast þegar margt fólk vinnur að sam­eig­in­legu verk­efni af ein­skærum áhuga og býst ekki endi­lega við neinu í stað­inn.“

Áhersla á félagsstörf frekar en bóknám

Eftir að Pétur Már hóf nám við Verzlunarskóla Íslands ákvað hann að leggja áhersl­una frekar á félags­starfið en bók­námið, og hefur hann verið ötull í félags­starfi allan tím­ann. „Ég upp­götv­aði snemma á fyrsta ári að Verzlunarskólinn getur kennt manni mun meira í gegnum félags­starfið en bók­námið og boðið upp á fleiri tæki­færi,“ segir Pétur Már. „Ég fékk að taka þátt í ræðulið­inu öll þrjú árin mín ásamt því að sitja í mál­fund­ar­fé­lag­inu, leika í bæði leik­rit­inu og söng­leiknum, keppa í Vælinu, söng­keppni skól­ans og á síð­asta árinu mínu gegndi ég starfi sem for­seti nem­enda­fé­lags­ins.“

En hvernig hefur nýjasta hlut­verk­inu verið tekið, bóka­út­gef­andi?

„Mót­tök­urnar fóru fram úr öllum vænt­ingum og við höfum verið að fá fyr­ir­spurnir úr ofboðs­lega mörgum áttum.“

„Nemendur í félags­starfi, borg­ar­full­trúar, með­limir hús­fé­laga og fyr­ir­tækja­rek­endur eru þeir hópar sem mest hafa verið að óska eftir ein­tökum. Við Björn höfum verið að ræða það að prenta fleiri bækur,“ segir Pétur Már.

Námskeið eru einnig fram undan tengd efni bók­ar­innar, þeir hafa sett sig í sam­band við núver­andi for­seta nem­enda­fé­lags skól­ans, Dag Kárason, og verður nám­skeið haldið fyrir nem­endur í Verzlunarskólanum. „Ef það gengur vel ætlum við að bjóða fleiri skólum upp á þetta og jafn­vel öðrum félags­sam­tökum eins og til dæmis ung­liða­hreyf­ingum stjórn­mála­flokka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dægurmál

Að tjaldabaki The Witcher: Henry Cavill sýnir okkur bardagasenu í einnu töku
Heimurdægurmál

Að tjalda­baki The Witcher: Henry Cavill sýnir okkur bar­daga­senu í einnu töku

Nýlega kom út þriðja sería þátt­anna The Witcher, þar sem fyrrum Ofur­mennið Henry Cavill fer með hlut­verk aðal­sögu­hetj­unnar Geralt of Rivia. Cavill og fram­leið­endur þátt­anna hafa síður en svo verið sam­mála um fram­vindu sög­unnar en leik­ar­inn, sem er mik­ill aðdá­andi bókanna sem þætt­irnir eru byggðir á, þótti skipta sér full mikið af. Cavill var því gert að taka poka sinn...
Kventónskáld í fararbroddi á tónleikum í Hörpu um helgina
Viðtaldægurmál

Kventón­skáld í far­ar­broddi á tón­leikum í Hörpu um helg­ina

Tón­list­ar­há­tíðin Seigla fer fram í Hörpu dag­ana 5.-7. ágúst næst­kom­andi. Kammer- og söng­tón­list verða í far­ar­broddi dag­skrár hátíð­ar­innar þetta árið. Alls munu sextán flytj­endur koma fram á fimm tón­leikum í Eld­borg­ar­sal Hörpu en auk þeirra verða fluttir tvennir tón­leikar í Hörpu­horni en hinir síð­ar­nefndu verða opnir almenn­ingi án end­ur­gjalds. Dagskrá hátíð­ar­innar má sjá hér á síðu Seiglu festi­vals og á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins