Jimmy Kimmel, einn vinsælasti spjallþáttarstjórnandi heims, heldur úti tónleikaseríu sem nefnist einfaldlega Jimmy Kimmel Live. Í gær tróð íslenska hljómsveitin Of Monsters And Men upp og spiluðu nokkur af sínu helstu lögum, eldri lög í bland við ný.
Það er greinilegt að sveitin nýtur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum. Sveitin er að leggja af stað í tónlekaferð og kemur næst fram 2. ágúst í Los Angeles, og 3. ágúst á Long Beach í Kaliforníu.
Hér fyrir neðan má sjá myndbrot af tónleikunum hjá Jimmy Kimmel í gærkvöldi.


























Athugasemdir