„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Góð ráð fyrir dýraeigendur í kringum áramót

Góð ráð fyrir dýraeigendur í kringum áramót
Mynd / Unsplash / Sarandy Westfall

Í til­efni ára­mót­anna minnir Mat­væla­stofnun dýra­eig­endur á að huga vel að dýrum sínum á meðan á flug­elda­skotum stendur þar sem hávað­inn sem þeim fylgir kann að valda dýr­unum ofsa­hræðslu.

Í grein á vef stofn­un­ar­innar er fólk minnt á að almenn notkun flug­elda er leyfð frá 28. des­em­ber til 6. jan­úar frá kl. 10:00 til 22:00 og alla nýársnótt. Þá eru dýra­eig­endum gefin eft­ir­far­andi ráð:

-Hestum sem komnir eru á gjöf í hest­húsum skal gefið vel, hafa ljósin kveikt og útvarp í gangi.
-Gott er að gefa hestum vel sem eru á úti­gangi og halda þeim á kunn­ug­legum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þá. Ef hægt er að setja hesta inn er það örugg­ast.
-Eigendur ættu helst að fylgj­ast með hest­unum ef því er komið við, eða alla vega vitja þeirra sem fyrst eftir lætin.

-Gæludýr: Í þétt­býli er best er að halda köttum alveg inni dag­ana í kringum ára­mót og hafa hunda alltaf í taumi þegar þeim er hleypt út, þó það sé bara út í garð.

-Hunda er best að viðra vel árla dags í birtu svo þeir verði þreyttir um kvöldið og ef þeir eru mjög hræddir þá gjarna viðra fyrir utan bæinn. Svo að kvöldi er mjög snjallt að viðra stutt meðan skaupið er, þá er yfir­leitt afar rólegt.

-Dýr sem sýna mikla hræðslu ber ekki að skilja eftir ein. Misjafnt er hvort hrædd gælu­dýr vilja félags­skap eig­and­ans eða hvort þau vilji skríða í felur. Ef þeim líður betur í felum skildi maður leyfa þeim það. Allra mik­il­væg­ast er að dýrin sleppi ekki út.

-Gott er að tala rólega en glað­lega við dýrin, til að sann­færa þau um að heim­ur­inn sé ekki að far­ast. Jafnvel er hægt að gefa þeim smá dýranammi meðan eða strax á eftir hvelli, svo þau tengi þessi læti ein­hverju jákvæði. Strokur og snert­ing eig­anda róar einnig flest dýr og veitir þeim styrk.

-Þegar það versta gengur yfir ber að að halda dýr­unum inni, gjarna í rými sem þau þekkja, loka og byrgja glugga og hafa tón­list í gangi. Yfir­leitt er best að hafa ljósin kveikt, til að draga úr ljósaglömpum. Fyrir hunda er jafn­væl hægt að prófa að nota eyrn­ar­tappa, sumir sætta sig við það, aðrir ekki.

-Ef ofan­greint er ekki talið nægj­an­legt, þá er gælu­dýra­eig­endum ráð­lagt að tala við sinn dýra­lækni vel tím­an­lega fyrir ára­mót og fá ráð­legg­ingar. Hægt er að fá lyf­seðil fyrir kvíða­demp­andi lyf og þá er mik­il­vægt að byrja ekki með­höndlun of seint þegar dýrið er komið í hræðslu­kast, en þá er virknin mun tak­mark­aðri. En varað er við að gefa dýrum nokkur lyf nema í sam­ráði við dýra­lækni.

-Þó hundar virð­ist rólegir skyldi ekki taka hundana með út, hvorki á brennur né til að skjóta flug­eldum. Blys og rak­ettur geta skot­ist í allar áttir og annað fólk getur stundum verið óút­reikn­an­legt, þannig að slíkt umhverfi er alls ekki hunda­vænt. Munið að hundar heyra mun betur en við. Hundur sem verður fyrir mjög slæmri upp­lifun getur borið skaða af því ævi­langt. Einnig þó hundur virð­ist rólegur getur hann í raun verið ofsa­hræddur, en bara verið í hálf­gerðu löm­unar­á­standi af hræðslu.

-Ungum dýrum sem eru að upp­lifa sín fyrstu ára­mót þarf að sýna sér­staka aðgát. Dagarnir fyrir ára­mót geta gefið vís­bend­ingu um hvað verða vill.

-Ef reynslan sýnir að dýr verður ofsa­hrætt við lætin kringum ára­mótin er ráð­lagt að byrja þjálfun fyrir næsta ár ein­hverjum mán­uðum fyrr. Hljóð af sprengjum og látum er t.d. hægt að finna á YouTube sem er hægt að venja þau við hægt og rólega, og sam­tímis nota jákvæða styrk­ingu. Of seint er að byrja slíka þjálfun nokkrum dögum fyrr og getur það gert illt verra.

-Einnig fæst hjá mörgum dýra­læknum róandi lykt ýmist í háls­bandi, eða til að setja í inns­tungu og er gott að setja slíkt upp ekki seinna en 2 vikum fyrir ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áramót

Borgin hættir við fækkun áramótabrenna: „Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða“
Innlent

Borgin hættir við fækkun ára­móta­brenna: „Hér er um til­finn­inga- og hita­mál að ræða“

Reykja­vík­ur­borg hefur ákveðið að hætta við að fækka brennum í borg­inni um næstu ára­mót. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata til­kynnti nú fyrir stundu á Facebook að borgin hefði ákveðið að hlusta á íbúa og íbúa­ráð um að hætta við að fækka ára­móta­brennum í ár. Dóra skrif­aði: „Ég hef alltaf ein­sett mér að vera auð­mjúk og næm á sjón­ar­mið íbúa út...
Mest lesnu fréttir ársins – Endurkoma Gylfa, harmleikir og nýjar ástir
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – End­ur­koma Gylfa, harm­leikir og nýjar ástir

Árið 2023 var ár end­ur­komu, ofbeldis, harm­leika og ást­ar­innar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 18 milljón sinnum, sem þýðir að með­al­flett­ingar á dag var um 50.000. Verður það að telj­ast nokkuð gott hjá litlum miðli sem þessum. Nokkar fréttir stóðu upp úr en um leið og við rifjum upp tíu mest lesnu fréttir árs­ins...
Lögreglan minnir á rétta notkun flugelda: „Þar sé reglum framfylgt“
Innlent

Lög­reglan minnir á rétta notkun flug­elda: „Þar sé reglum fram­fylgt“

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent frá sér til­kynn­ingu varð­andi flug­elda­notkun. Þar eru íbúar minntir á að það sé bannað að breyta flug­eldum. Þá er einnig minnt á að mik­il­vægt sé að fara var­lega og nota örygg­is­gler­augu. „Hér eru íslenskar gæsalappir“ Hægt er að lesa alla til­kynn­ing­una hér fyrir neðan: „Reglu­lega skap­ast umræður um svo­kall­aðar skot­kökur og sam­teng­ingar á þeim. Gott...
Mest lesnu fréttir ársins – Vítalía, Svala Björgvins, stunguárásir og skandalar
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – Vítalía, Svala Björg­vins, stungu­árásir og skandalar

Árið 2022 var ár skandala, ofbeldis og kyn­ferð­is­áreitis ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 21 milljón sinnum, þær voru þó nokkrar sem stóðu upp úr. Á sama tíma og við lítum til baka á vin­sæl­ustu fréttir árs­ins 2022, þökkum við á rit­stjórn Mannlífs fyrir veittan stuðn­ing og óskum þjóð­inni allri gæfu­ríks árs. Deilt innan Félags...
Gæði, sérþekking og gott verð – Áramótavínið 2021 er frá Tíu Vín
Mannlífið

Gæði, sér­þekk­ing og gott verð – Ára­móta­vínið 2021 er frá Tíu Vín

Ára­móta­vínið völdu þeir vin­irnir og vín­sér­fræð­ing­arnir hjá TÍU VÍN en er það freyði­vínið Moutard Blanc de Blancs Brut 100% Chardonnay frá Bourgogne Vínið er full­komið í ára­móta­veisl­una hvort sem það er með for­rétt­inum eða til þess að skála í þegar klukkan slær tólf. Vínið vann til gull­verð­launa í French National Crémant Contest. Það hefur fengið frá­bæra dóma og er gott...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins