„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hér á Íslandi erum við í stöðu til að gera meira fyrir börnin okkar“

„Það er ótrú­legt hvernig sorgin og streitan sem fylgir sest að í lík­am­anum og tekur hann raunar yfir. Ég þarf reglu­lega að minna sjálfa mig á að draga djúpt andan og slaka á. Ég iðka núvit­und. Besta lækn­ingin er hins vegar að stinga nef­inu í hálsa­kot dóttur minnar, finna lykt­ina af henni og hlusta á hana anda á meðan hún sefur. Í hálsa­kot­inu hennar býr sak­leysið og vonin,“

„Hér á Íslandi erum við í stöðu til að gera meira fyrir börnin okkar“
Hólm­fríður Gísla­dóttir

segir Hólm­fríður Gísla­dóttir, frétta­stjóri Mannlífs, í pistli í Mannlíf.

Hólm­fríður segir að nú sé tiím­inn til að horfa yfir far­inn veg og fram á við. „Ég er melankól­ísk þessa dag­ana en von­góð engu að síður. Nú er tím­inn til að horfa yfir far­inn veg og fram á við, og fyrir mig per­sónu­lega að segja skilið við myrkrið og halda inn í ljósið. Síðustu tvö ár hafa verið þau erf­ið­ustu sem ég hef upp­lifað. Margt hefur gengið á en það versta var að missa dreng­inn minn í fyrra, sem hefði orðið eins árs nú í des­em­ber. Það áfall, og sú sorg sem mun alltaf fylgja mér, svipti mig sak­leys­inu. En ég var orðin 37 ára þegar það gerð­ist og fyrir það verð ég ávallt þakk­lát.“

Hólm­fríður bætir við að eftir því sem barnið verður eldra breyt­ist áherslur for­eld­rana hvað barnið og upp­eldi þess varða.

„Þegar ég varð fyrst ólétt fyrir tæpum þremur árum fórum við for­eldr­arnir að senda hvort öðru tengla sem vís­uðu á góð ráð varð­andi fæð­ing­una og fyrstu mán­uð­ina. Þegar á leið breytt­ust áhersl­urnar; svefn­venjur sex mán­aða, mjólk­ur­inn­taka átta mán­aða, sjálf­stæð­is­bar­áttan átján mán­aða … og svo fram­vegis. Nú erum við farin að spá fram í tím­ann og send­ing­arnar eru orðnar þyngri: Fimm merki þess að ein­hver sé að gera barn­inu þínu illt … og þar fram eftir göt­unum.

Og þar kemur melankól­ían inn. Það eru svo margir sem eru svo ungir þegar þeir þeir eru rændir sak­leys­inu. Sú hugsun læð­ist stundum að mér í hálsa­kot­inu; það eru ekki öll börn elskuð svona mikið. Það eru ekki öll börn sem búa við svona mikið öryggi.“

„Börn búa við vanrækslu, fátækt og ofbeldi“

Hólm­fríður fer einnig yfir árið í útgáfu Mannlífs, en pistil­inn birt­ist í síð­asta blaði árs­ins, 48. tbl. „Á þessu ári höfum við birt fjölda frá­sagna af reynslu fólks og upp­lifun, af sorgum þess og sigrum. Flestar for­síð­urnar prýddu full­orðin and­lit en á bak­við mörg við­tal­anna voru börn, sem koma sjálf við sögu ann­að­hvort beint eða óbeint. Við ræddum við móður sem missti son sinn þegar hann svipti sig lífi í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis. Við sögðum frá konu sem hefur þurft að há harða bar­áttu til að fá með­ferð fyrir alvar­lega veikan son sinn. Við tókum við­tal við unga stúlku sem yfir­völd hugð­ust flytja úr landi … svo eitt­hvað sé nefnt,“ segir Hólm­fríður.

„Börn búa við van­rækslu, fátækt og ofbeldi. Þau upp­lifa veik­indi, missi og sorg. Ég hef ein­hvern veg­inn alltaf reynt að selja mér þá hug­mynd að sá hryll­ingur sem maður les um í erlendum miðlum eigi sér ekki stað á Íslandi. Að sú ógeðs­lega mann­vonska sem fólk sýnir börnum ann­ars staðar finn­ist ekki hér. Ég trúi því rétt mátu­lega en það sem ég veit, eða þyk­ist vita, er að hér á Íslandi erum við í stöðu til að gera meira fyrir börnin okkar.

Í því finn ég von­ina. Við erum lítil þjóð. Það er hægt að koma til móts við ein­staka barn; gera það sem gera þarf til að bæta líf þess til hins betra. Dæmi um þetta eru Jóla­sveina­hjálp­ar­kokk­arnir sem fjallað er um í þessu blaði. Hér á ekk­ert barn að þurfa að upp­lifa fátækt, hér á ekk­ert barn að upp­lifa ofbeldi og fá ekki hjálp. Við þurfum ekki og eigum ekki að senda sak­laus og hjálp­ar­laus börn úr landi og í óviss­una. Ég er hætt að strengja nýárs­heit en ég á mér barns­lega ósk um að við gerum betur á næsta ári og öll ár þar á eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áramót

Borgin hættir við fækkun áramótabrenna: „Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða“
Innlent

Borgin hættir við fækkun ára­móta­brenna: „Hér er um til­finn­inga- og hita­mál að ræða“

Reykja­vík­ur­borg hefur ákveðið að hætta við að fækka brennum í borg­inni um næstu ára­mót. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata til­kynnti nú fyrir stundu á Facebook að borgin hefði ákveðið að hlusta á íbúa og íbúa­ráð um að hætta við að fækka ára­móta­brennum í ár. Dóra skrif­aði: „Ég hef alltaf ein­sett mér að vera auð­mjúk og næm á sjón­ar­mið íbúa út...
Mest lesnu fréttir ársins – Endurkoma Gylfa, harmleikir og nýjar ástir
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – End­ur­koma Gylfa, harm­leikir og nýjar ástir

Árið 2023 var ár end­ur­komu, ofbeldis, harm­leika og ást­ar­innar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 18 milljón sinnum, sem þýðir að með­al­flett­ingar á dag var um 50.000. Verður það að telj­ast nokkuð gott hjá litlum miðli sem þessum. Nokkar fréttir stóðu upp úr en um leið og við rifjum upp tíu mest lesnu fréttir árs­ins...
Lögreglan minnir á rétta notkun flugelda: „Þar sé reglum framfylgt“
Innlent

Lög­reglan minnir á rétta notkun flug­elda: „Þar sé reglum fram­fylgt“

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent frá sér til­kynn­ingu varð­andi flug­elda­notkun. Þar eru íbúar minntir á að það sé bannað að breyta flug­eldum. Þá er einnig minnt á að mik­il­vægt sé að fara var­lega og nota örygg­is­gler­augu. „Hér eru íslenskar gæsalappir“ Hægt er að lesa alla til­kynn­ing­una hér fyrir neðan: „Reglu­lega skap­ast umræður um svo­kall­aðar skot­kökur og sam­teng­ingar á þeim. Gott...
Mest lesnu fréttir ársins – Vítalía, Svala Björgvins, stunguárásir og skandalar
Innlentáramót

Mest lesnu fréttir árs­ins – Vítalía, Svala Björg­vins, stungu­árásir og skandalar

Árið 2022 var ár skandala, ofbeldis og kyn­ferð­is­áreitis ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 21 milljón sinnum, þær voru þó nokkrar sem stóðu upp úr. Á sama tíma og við lítum til baka á vin­sæl­ustu fréttir árs­ins 2022, þökkum við á rit­stjórn Mannlífs fyrir veittan stuðn­ing og óskum þjóð­inni allri gæfu­ríks árs. Deilt innan Félags...
Gæði, sérþekking og gott verð – Áramótavínið 2021 er frá Tíu Vín
Mannlífið

Gæði, sér­þekk­ing og gott verð – Ára­móta­vínið 2021 er frá Tíu Vín

Ára­móta­vínið völdu þeir vin­irnir og vín­sér­fræð­ing­arnir hjá TÍU VÍN en er það freyði­vínið Moutard Blanc de Blancs Brut 100% Chardonnay frá Bourgogne Vínið er full­komið í ára­móta­veisl­una hvort sem það er með for­rétt­inum eða til þess að skála í þegar klukkan slær tólf. Vínið vann til gull­verð­launa í French National Crémant Contest. Það hefur fengið frá­bæra dóma og er gott...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins