„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar Bragi gagnrýnir stríðsfyrirsagnir fjölmiðla: „Athygliskeppnin er eins og aurskriða sem engu eirir“

Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist hugsa til starfs­manna Samherja ­sem horfi nú á stríðs­fyr­ir­sagnir um fyr­ir­tækið og stjórn­endur þess í fjöl­miðlum. Hann gagn­rýnir fjöl­miðla og segir það galið að ætla að styrkja þá með rík­isfé.

Gunnar Bragi gagnrýnir stríðsfyrirsagnir fjölmiðla: „Athygliskeppnin er eins og aurskriða sem engu eirir“

„Það er slæmt fyrir okkur öll þegar eitt af öfl­ug­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins er sakað um vafa­sama við­skipta­hætti. Eðli­legt er að þeir sem ábyrgð bera svari fyrir það. Þeir og aðrir sem að fyr­ir­tæk­inu standa eða starfa hjá því eiga fjöl­skyld­ur, börn sem skilja ekki orðin sem notuð eru eða hvers vegna fjöl­skyldu­fað­ir­inn eða móð­irin bland­ast inn í þá umræðu sem búin var til með æsifrétta­stíln­um. Æsingur fjöl­mið­ils­ins til að ná athygl­inni er stundum svo mik­ill að annað skiptir ekki máli. Athygl­iskeppnin er eins og aur­skriða sem engu eirir og síst sann­leik­anum sem kannski kemur í ljós seint og um síð­ir,“ segir Gunnar Bragi í grein sem hann skrifar i Morg­un­blað­inu í dag. Kjarninn fjall­aði einnig um grein Gunnars Braga.

Gagn­rýnir sérstakt samband RÚV og Stundarinnar

Gunnar Bragi gagn­rýnir enn fremur það sem hann kallar sér­stakt sam­band milli Rík­is­út­varps­ins og Stund­ar­inn­ar, sem birtu bæði umfjall­anir um ætl­aðar mútu­greiðsl­ur, skatt­svik og pen­inga­þvætti Sam­herja í tengslum við við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins í Namib­íu.

Segir hann RÚV og Stundina hafa áður sængað saman „og þá mat­reitt málin eftir eigin höfði til þess eins að gera hlut­ina enn verri. Því er mik­il­vægt að bíða eftir heild­ar­mynd­inni áður en opin­berar aftökur hefj­ast.“ Gunnar Bragi til­greinir þó ekki hvaða umfjöllun hann er að vísa þar í.

Hann gagn­rýnir síðan fjöl­miðla almennt og segir æsing þeirra til að ná athygli oft svo mik­inn að annað skipti ekki máli. „At­hygl­iskeppnin er eins og aur­skriða sem engu eirir og síst sann­leik­anum sem kannski kemur í ljós seint og um síð­ir. Á þá ekki að upp­lýsa um það sem miður fer eða þegar líkur eru á ein­hverju broti? Jú, svo sann­ar­lega en hvernig það er gert skiptir máli.“ En líkt og áður til­tekur hann engin dæmi.

Segir styrki til fjöl­miðla galna hug­mynd

Að lokum opin­berar Gunnar Bragi það að Mið­flokk­ur­inn hafi lagt fram til­lögu um að hætt yrði við að styrkja einka­rekna fjöl­miðla um allt að 400 millj­ónir króna í heild við fjár­laga­vinn­una, en frum­varp um slíka styrki hefur verið dreift á Alþingi og til stendur að mæla fyrir því á næst­unn­i.

Segir hann styrk­ina vera galna hug­mynd þegar ríkið sé þegar að setja um fimm millj­arða króna í Rík­is­út­varp­ið. „Það að reyna að koma öllum fjöl­miðlum á rík­is­spen­ann minnir óþægi­lega á sam­fé­lög þar sem stjórn­völd reyna að stýra öllum fjöl­miðl­um. Fjöl­miðlar verða að geta starfað án rík­is­styrkja. Mið­flokk­ur­inn mun á næst­unni kynna hug­mynd að því hvernig efla megi einka­rekna fjöl­miðla án þess að binda þá á rík­is­jöt­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins