„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verkfall hefst kl. 10-BÍ ósammála SA um útfærslu verkfalls

„Við leggjum alla áherslu á þetta fari vel fram og verði okkur öllum til sóma þegar upp er staðið. Vinnu­deilur geta verið erf­iðar þess vegna vöndum við okkur. Ég hef skrifað yfir­mönnum á rit­stjórnum í þrí­gang og lagt áherslu á þetta sjón­ar­mið okkar og á ekki von á öðru en allt fari vel fram. Verðið þið var við eitt­hvað sem þið teljið að sé vafa­samt og geti verið verk­falls­brot skráið þið það hjá ykkur og til­kynnið félag­inu og við förum yfir það að lok­inni vinnu­stöðvun.“

Verkfall hefst kl. 10-BÍ ósammála SA um útfærslu verkfalls
Hjálmar Jónsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands ritar pistil

Þetta segir í fjöl­pósti sem Hjálmar Jónsson for­maður BÍ sendi starfs­mönnum á fjöl­miðlum sem fara í verk­fall í dag.  Þar kemur jafn­framt fram að for­maður BÍ hefur í þrí­gang skrifað yfir­mönnum á rit­stjórnum bréf um þessi mál og kveðst hann því ekki eiga von á öðru en að hlut­irnir gangi vel fyrir sig.

Í frétt á vef BÍ segir að íhá­deg­inu í gær  hafði Blaða­manna­fé­lagið hins vegar fregnir af dreifi­bréfi frá SA um fram­kvæmd verk­falls, sem er hér með­fylgj­andi.  Afstaðan sem þar kemur fram hefur hins vegar ekki borist BÍ með form­legum hætti, þrátt fyrir óskað hafi verið eftir afstöðu atvinnu­rek­enda blaða­manna til fram­kvæmda verk­falls­ins, sein­ast snemma í morgun.  Blaða­manna­fé­lagið hefur heim­ildir fyrir því að þess­ari túlkun á fram­kvæmd verk­falls hafi að minnsta kosti verið dreift á RÚV og Morg­un­blað­inu.

Þar kemur m.a. fram sá skiln­ingur að verk­fallið nái ekki til starfa eða starfs­greina og er ekki annað að skilja en að utan­fé­lags­fólk geti þá sinnt þeirri starf­semi sem verk­fallið nær til. Og því jafn­framt haldið fram að verk­takar megi vinna og ganga í störf fst­ráð­inna blaða­manna.

Hjálmar segir ótrú­legt að verða vitni að fram­gangi SA í þessu máli öllu, Barátta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar frá því á síð­ustu öld hafi löngum snú­ist um það að verk­falls­rétt­ur­inn sé virtur.  Knúið hafi verið fram að þegar farið er í verk­föll þá nái slík verk­föll til þeirrar starfa sem undir starfs­grein­ina heyra. Utan­fé­lags­fólk sé að sjálf­sögðu bundið af verk­föllum ann­ars væru vinnu­stöðvun til lít­ils.

Félagið hefur þegar óskað eftir afstöðu lög­manns BÍ til laga­túlk­unar SA.

„Það er ekki mikil reisn yfir fólki sem svona hagar sér og reynir með öllum til­tækum ráðum að koma í veg fyrir að lög­lega boðuð vinnu­stöðvun nái fram að ganga og neitar jafn­framt að semja við blaða­menn um það sama og samið hefur verið við aðrar starfs­stéttir,“ sagði Hjálmar enn­fremur.

Hann sagði BÍ að sjálf­sögðu munu fara að lögum og von­ast til að fram­kvæmdin myndi ganga vel, en túlkun SA væri vissu­lega ekki upp­örvandi.

Hér má sjá túlkun SA sem Morg­un­blaðið kveðst munu byggja á:

Verk­falls­boðun fyrir 8., 15. og 22. nóv­em­ber n.k. tekur til ljós­mynd­ara og töku­manna Árvakurs hf., Rík­is­út­varps­ins ohf., Sýnar hf. og Torgs ehf. og þeirra blaða- og frétta­manna sem starfa hjá net­miðlum þeirra.

SA árétta að það eru félags­menn Blaða­manna­fé­lags­ins á vef­miðlum sem leggja niður störf. Starfið sjálft fer ekki í verk­fall og vef­ur­inn lok­ast ekki. Verkfall nær hvorki til félags­manna ann­arra stétt­ar­fé­laga eða ófé­lags­bund­inna starfs­manna vef­miðl­anna.

Verkfall nær ekki til starfa eða starfs­greina, ein­ungis þeirra félags­manna sem sinna til­teknum störfum og verk­falls­boðun nær til.

Verkfall nær til félags­manna þess stétt­ar­fé­lags sem boðar verk­fall, ekki ann­arra, sbr. m.a. dóma Félags­dóms í málum nr. 8/1944, 4/1987 og 11/1997.

Félags­menn í öðrum stétt­ar­fé­lögum eiga að sinna störfum sínum eins og áður.

Stjórn­endum er heim­ilt að ganga í störf starfs­manna í verk­falli, sbr. m.a. dóma Hæsta­réttar í málum nr. 151/1985, 287/1989 og 3/1992. Þeim sem hafa á hendi fram­kvæmda­stjórn fyr­ir­tækja er heim­ilt að ganga í störfin óháð félags­að­ild enda falla þeir utan gild­is­sviðs kjara­samn­inga og verk­falls­boðun nær þ.a.l. ekki til þeirra. Stjórn­endur ein­stakra þátta atvinnu­rekstrar er einnig heim­ilt að ganga í störfin standi þeir utan BÍ.

Ef stjórn­andi fellur undir gild­is­svið kjara­samn­ings og er félags­bund­inn í stétt­ar­fé­lagi í verk­falli þá leggur hann niður störf eins og aðrir félags­menn.

Útgef­endur þurfa að meta hvernig þeir nýta starfs­krafta félags­manna BÍ sem sinna öðrum störfum auk vef­miðla. Ef starf við vef­miðla er að fullu aðskilið frá öðrum störfum leggja þeir niður störf til­tek­inn hluta dags­ins og falla þá af launa­skrá. Ef starf á vef­miðli er sam­þætt öðrum störfum er umdeil­an­legt hvort verk­falls­boðun geti náð til þeirra. Útgef­endur munu þó ekki að sinni að gera athuga­semd við það að þeir blaða­menn leggi niður störf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins