„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fór ekki í brjóstahaldara fyrr en á þingi

Guðrún Ögmunds­dóttir hefur alla sína ævi barist fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa og þeirra sem minna mega sín. Í sumar hlaut hún fálka­orð­una og á sunnu­dag­inn verður hún sæmd heið­urs­merki Sam­tak­anna ’78 fyrir bar­áttu sína. Hún seg­ist þakk­lát fyrir við­ur­kenn­ing­una en besta hrósið sé þegar fólkið sem hún hefur verið að berj­ast fyrir líti á hana sem eina úr hópnum.

Fór ekki í brjóstahaldara fyrr en á þingi
Mynd/Unnur Magna|„Það var iðu­lega gefið í skyn að konur væru lélegri starfs­kraftar í fyr­ir­tækjum en karlar og það end­aði með því að ég setti mér það mark­mið að gera það sem ég gæti til að stuðla að því að karl­menn yrðu jafn­lé­legir starfs­kraftar og konur

Eitt af því sem fylgt hefur Guðrúnu í gegnum hennar póli­tíska feril er það orð­spor að hún eigi auð­velt með að vinna með fólki úr öllum flokkum og vera í góðum sam­skiptum við það. Það var til dæmis til þess tekið hvað hún og Davíð Oddsson ættu gott sam­starf á sínum tíma. Hver er gald­ur­inn á bak við það?

„Fólk er bara fólk,“ segir hún. „Ef við þorum að leyfa rétt­læt­inu að tala og reynum að vera svo­lítið skýr og mennsk í því þá er mjög auð­velt að fá fólk í lið með sér. Ég vil meina að ef maður þorir að vera þar þá þarf ekk­ert að lúta ein­hverjum gam­al­dags lög­málum. Málin eru, að mínu viti, stærri en maður sjálfur og lúta ekki að mínu egói. Þetta snýst ekki um rass­inn á mér heldur um það sem þarf að breyta og laga fyrir aðra. Það er mitt leið­ar­ljós og hefur alltaf verið. Við Davíð vorum til dæmis mjög fínir félagar, fyrst þú nefnir hann sér­stak­lega. Hann var nátt­úr­lega borg­ar­stjóri þegar ég kom inn í borg­ar­stjórn og ég auð­vitað vann bara með honum. Það er alveg vanda­laust fyrir mig að vinna með alls konar fólki, mér finnst fólk yfir­leitt skemmti­legt og gott. Ég er ekk­ert að gera því upp ein­hverjar skoð­anir fyr­ir­fram, það verður alltaf að ræða málin.“

Í próf­kjöri til alþing­is­kosn­inga 2007 missti Guðrún sæti sitt á list­anum og hætti á þingi. Og seg­ist þakka guði fyrir þá for­sjón.

„Þetta var rétt fyrir hrun og ég þekki sjálfa mig það vel að ég veit að ég hefði aldrei getað staðið í því sem þar gerð­ist,“ segir hún. „Mér fannst það svo hræði­legt. Sem betur fer stopp­aði for­sjónin mig af svo ég þurfti ekki að taka þátt í því. Mér finnst ekk­ert mál að fólk sé ósam­mála en ég vil alltaf að fólk sé mál­efna­legt.“

„Auðvitað var ég hippi. Ég get svarið að ég fór ekki í brjósta­hald­ara fyrr en ég var komin á þing.“

Spurð hvort hún hafi ekki verið hippi á yngri árum hnussar Guðrún eins og þetta sé fárá­neg­asta spurn­ing sem hún hafi heyrt.
„Auðvitað var ég hippi,“ segir hún hneyksluð. „Ég get svarið að ég fór ekki í brjósta­hald­ara fyrr en ég var komin á þing. Þá sagði ein­hver góð­lát­lega við mig: „Guðrún, ertu ekki í brjósta­hald­ara?“ Ég svar­aði neit­andi, mér fynd­ist það svo leið­in­legt að ég þyldi það ekki. Þá sagði við­kom­andi að hann héldi nú samt að ég ætti að fara í brjósta­hald­ara fyrst ég væri komin á þing. Ég hlýddi því en fór auð­vitað úr honum um leið og ég var komin heim,“ bætir hún við og skelli­hlær.

Eftir þing­set­una varð Guðrún tengiliður rík­is­ins við fólk sem hafði verið vistað á vist­heim­ilum þess sem börn og verið var að ræða um sann­girn­is­bætur til. Var það ekki erfið vinna?
„Þú getur rétt ímyndað þér það,“ segir hún og and­varpar. „Ég hálf­drap mig á þeirri vinnu, ég sé það núna. Þetta var alveg rosa­lega stórt verk­efni og það skipti öllu máli að reyna að vinna það inn í sátt. Þarna var svo mikið af til­finn­ingum og sárs­auka og farið í stórt og mikið upp­gjör. Ég er mjög sátt við útkom­una þótt pen­ingar bæti auð­vitað aldrei neina líðan. Þetta var í raun­inni leið rík­is­valds­ins til þess að biðj­ast afsök­unar með því að bjóða bætur. Þetta voru ofboðs­lega mörg heim­ili og svo sem ekki allt slæmt sem þar gerð­ist en það má heldur ekki gleyma að þetta var í sam­ræmi við hug­mynda­fræði þess tíma og sumt af því er erfitt að setja í nútíma­sam­hengi. Þetta var dálítið ein­stigi sem maður þurfti að feta. Ég tók eitt­hvað á milli tólf og fimmtán hund­ruð við­töl og gaf mig alla í að ná sam­bandi við skjól­stæð­ing­ana. Mesta hrósið sem ég fékk fyrir þá vinnu var þegar einn skjól­stæð­ing­ur­inn sem var alveg á göt­unni spurði mig hvort ég hefði verið lengi á göt­unni. Ég sagði honum að ég væri svo heppin að ég hefði nú aldrei verið þar og þá sagði hann: „Já, en þú skilur okkur svo rosa­lega vel.“ Ég hef ekki fengið betra hrós en það, þetta jafn­ast alveg á við fálka­orð­una. Og það var þessi saga sem popp­aði upp í hjarta mínu þegar var hringt í mig út af fálka­orð­unni. Svona margar gull­stundir átti ég í þessu starfi, það er ómet­an­legt.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíða

Mótlætið styrkir mann
Innlentforsíða

Mótlætið styrkir mann

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er bjart­sýnn þrátt fyrir erf­iða stöðu tengda COVID 19-heims­far­aldr­inum. Hann seg­ist trúa því að Íslend­ingar muni koma hraðar til baka heldur en flestar aðrar þjóðir meðal ann­ars vegna þess að við höfum sjálf­stæðan gjald­miðil. Bjarni er mik­ill fjöl­skyldu­maður, nýorð­inn afi og hann notar úti­vist til að rækta lík­ama og sál. Spritt­brúsi stendur á skrif­borð­inu. Heims­far­ald­ur­inn...
Óttast að taka rangar ákvarðanir
Innlentforsíða

Óttast að taka rangar ákvarð­anir

Hulda Björk Svans­dóttir hefur í þrjú ár barist fyrir því að sonur hennar, Ægir Þór, fái með­ferð við Duchenne-vöðva­rýrnun en alls staðar er komið að lok­uðum dyrum í heil­brigð­is­kerf­inu. Nú stendur Ægi mögu­lega til boða að taka þátt í til­rauna­með­ferðum bæði í Banda­ríkj­unum og Svíþjóð og fjöl­skyldan stendur því frammi fyrir því að þurfa að flytj­ast af landi brott í nokkur ár.
Tekur slaginn fyrir náttúruna og dýrin í landinu
Innlent

Tekur slag­inn fyrir nátt­úr­una og dýrin í land­inu

Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir, bóndi á Kúlu­dalsá í Hval­firði, hefur þurft að láta fella nítján hross síðan sum­arið 2007 vegna veik­inda sem hún telur stafa af flú­or­mengun frá álver­inu á Grund­ar­tanga. Hún höfð­aði mál gegn Norð­ur­áli vegna meng­un­ar­slyss sem varð í álver­inu árið 2006, tap­aði því fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á síð­asta ári og í síð­ustu viku stað­festi Lands­réttur dóm Hér­aðs­dóms og frí­aði Norðurál allri ábyrgð.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins