„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þórdís Elva boðar til þögulla mótmæla: „Ég vildi að ég hefði getað gripið systur okkar sem var hrint af svölunum í gær“

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir bar­áttu­kona og rit­höf­undur boðar á morgun til mót­mæla gegn nið­ur­fell­ingu nauðg­un­ar­mála og til að vekja athygli á ofbeldi gagn­vart konum.

Þórdís Elva boðar til þögulla mótmæla: „Ég vildi að ég hefði getað gripið systur okkar sem var hrint af svölunum í gær“

Í viða­mik­illi könnun á of­beldi karla gegn konum sem fé­lags- og trygg­inga­mála­ráðu­neytið fól Rann­sóknar­setri í barna- og fjöl­skyldu­vernd við Há­skóla Ís­lands að gera árið 2009 kom fram að um 42 pró­sent kvenna á Íslandi hafa sætt ofbeldi ein­hvern tíma á ævinni frá 16 ára aldri.

Ásamt Þórdísi Elvu standa Bryn­hildur Björns­dóttir og María Lilja Þrast­ar­dóttir blaða­menn að mót­mæl­unum, sem fara fram að Skúla­götu 17 fyrir utan skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara. Safnast er saman kl. 17 og hefst sam­staðan kl. 17.15. Mótmælin munu standa yfir í 20-30 mín­útur. Þátt­tak­endur þurfa ekki að hafa neitt með­ferðis, það er nóg að mæta og taka sér stöðu með þeim hug­rökku þolendum sem kærðu nauðgun til lög­reglu en fengu aldrei tæki­færi til að leita réttar síns fyrir dómi, segir í við­burði vegna mót­mæl­anna.

Við­burður á Facebook. 

„Það er kom­inn tími til að horfast í augu við að konur eru beittar of­beldi í svo miklum mæli…”

Eins og komið hefur fram í fréttum fékk lög­reglan til­kynn­ingu rétt fyrir níu í gær­kvöldi um að konu á þrí­tugs­aldri hefði verið hrint fram af svölum niður á steyptar tröppur í Hóla­hverfi í Breið­holti. Karl­maður á fer­tugs­aldri var hand­tek­inn á vett­vangi og vistaður í fanga­geymslu.

Í færslu sem Þórdís Elva skrifar á Facebook-síðu sína í morgun biður hún fyrir bata kon­unnar og segir að löngu sé kom­inn tími til að horfast í augu við það ofbeldi sem konur eru beittar.

„Það er kom­inn tími til að horfast í augu við að konur eru beittar of­beldi í svo miklum mæli að það er ó­trú­legt að þær skuli ekki vera löngu búnar að grípa til ör­þrifa­ráða, stofna til ó­eirða og lama sam­fé­lagið svo það VAKNI TIL FOKKING VITUNDAR.“

Bendir Þórdís Elva á að næstum önnur hver kona sé beitt ofbeldi ein­hvern tíma á lífs­leið­inni eins og fyrr­greind rann­sókn sýnir. „Önnur hver frænka þín, önnur hver skóla­systir, önnur hver vin­kona, önnur hver sam­starfs­kona. Hlut­fallið er jafn­vel hærra meðal kvenna sem glíma við fíkn eða eru af er­lendum upp­runa, til að mynda. Ein versta birt­ingar­mynd of­beldis gegn konum, nauðgun, er nán­ast refsi­laus,“ skrifar Þór­dís Elva.

„Ég vildi að ég hefði getað gripið systur okkar sem var hrint af svöl­unum í gær. Ég gat það ekki, en ég get hafið upp raust mína hér. Og þau ykkar sem eruð í Reykja­vík getið mót­mælt á morgun fyrir hönd þeirra hug­rökku þol­enda sem kærðu nauðgun, en fengu aldrei að fara fyrir dóm. Hættum að TALA og förum að GERA. Við höfum ekki efni á að líta undan, lengur. Fórnar­kostn­að­ur­inn er allt of hár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfélagið

Íslenskur helfararsagnfræðingur varar við fasisma: „Aldrei verið jafn mikilvægt að þekkja söguna“
Innlent

Íslenskur helfar­ar­sagn­fræð­ingur varar við fas­isma: „Aldrei verið jafn mik­il­vægt að þekkja sög­una“

Íslenskur helfar­ar­sagn­fræð­ingur varar við því að fas­ismi sé að rísa aftur í heim­inum sem muni hafa hræði­legar afleið­ingar sé ekk­ert gert. Ingi­björg Þóra Har­alds­dóttir, helfar­ar­sagn­fræð­ingur og sér­fræð­ingur hjá Reykja­vík­ur­borg, skrif­aði Facebook-færslu í gær í til­efni þess að 80 ár voru þá liðin frá frelsun útrým­inga­búð­anna Auschwitz en þar segir hún að það hafi aldrei verið eins mik­il­vægt og nú að...
Grindvíkingur furðar sig á samskiptaleysi: „Kíkja aftur og aftur og sjá ekkert!“
Innlentsamfélagið

Grind­vík­ingur furðar sig á sam­skipta­leysi: „Kíkja aftur og aftur og sjá ekk­ert!“

Björn Birg­is­son furðar sig á sam­skipta­leysi milli yfir­valda og Grind­vík­inga. Sam­fé­lags­rýn­ir­inn frá Grinda­vík, Björn Birg­is­son skrif­aði Facebook-færslu í morgun þar sem hann hneyksl­ast á því hversu erfitt það sé fyrir Grind­vík­inga að fá upp­lýs­ingar um sína hagi. „Merki­legt. Tæknin til raf­rænna sam­skipta yfir höf og lönd, af jörðu til hálofta, af hafs­botni til yfir­borðs, jafn­vel til tungls­ins, á milli lands­hluta,...
Ekki allir sem þiggja fálkaorðu frá Guðna: „Hafna henni svo með hávaða“
Innlentsamfélagið

Ekki allir sem þiggja fálka­orðu frá Guðna: „Hafna henni svo með hávaða“

Á hverju ári eru sæmir for­seti Íslands yfir­leitt milli 20 til 40 ein­stak­linga fálka­orð­unni en hún er talin af sumum mesti heiður sem Íslend­ingur getur hlotið. Fólk er sæmt fálka­orð­unni fyrir afrek eða störf sín á ævinni. Nokkrir ein­stak­lingar hafa þó í gegnum tíð­ina hafnað henni og má þar nefna Katrínu Jak­obs­dóttur, Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­grím Her­manns­son en hefð hefur...
Stefán spáir fyrir um næsta forseta: „Máta sig við djobbið“
Innlent

Stefán spáir fyrir um næsta for­seta: „Máta sig við djobbið“

Sagn­fræð­ing­ur­inn Stefán Pálsson setti í gær fram nokkuð áhuga­verða kenn­ingu um hver verður næsti for­seti Íslands. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, til­kynnti þjóð­inni í nýársávarpi sínu að muni ekki sækj­ast eftir því að halda áfram sem for­seti lands­ins en kosið verður til for­seta 1. júní næst­kom­andi. Guðni mun þá hafa verið for­seti í átta ár. Margir spek­ingar af sett fram...
Íslenskur húðlæknir vill banna ljósabekki: „Allt til að rugla okkur“
Innlent

Íslenskur húð­læknir vill banna ljósa­bekki: „Allt til að rugla okkur“

Húð­lækn­ir­inn Jenna Eysteins­dóttir vill að ljósa­bekkir verði bann­aðir. Ljósa­bekkja­notkun er á upp­leið eftir að verið litin horn­auga und­an­farin 15 ár eða svo. Ljósa­bekkir eru bann­aðar yngri en 18 ára en þrátt fyrir það er lítið mál fyrir ung­linga að kom­ast í þá þar sem þeir eru sjaldan spurðir um skil­ríki. Jenna Eysteins­dóttir, húð­læknir, vill láta bannað ljósa­bekki. „Við vitum að...
„Getur ríkisvaldið ekki komið á móts við hann og boðið honum eitthvað annað til að tapa á?“
Innlent

„Getur rík­is­valdið ekki komið á móts við hann og boðið honum eitt­hvað annað til að tapa á?“

Kristinn Hrafns­son skrif­aði stutta og kald­hæðna færslu á Facebook rétt í þessu þar sem hann skýtur fast á Kristján Loftssyn hval­veiði­mann. Samkvæmt árs­reikn­inga Hvals hf. tap­aði fyr­ir­tækið þremur millj­örðum á ára­tug á hval­veiðum. Á þetta minnir rit­stjóri Wikileaks í nýrri færslu á Facebook, í til­efni af gíf­ur­yrtri grein hval­veiði­manns­ins í Morg­un­blað­inu í dag þar sem hann kall­aði Svandísi Svav­ars­dóttur „öfga­fullan...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins