„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Spillingarhætta fyrir hendi

Eftir fjár­mála­hrunið árið 2008 hrundi traust til helstu stofn­ana sam­fé­lags­ins og þá sér­stak­lega til Alþingis og fjár­mála­stofn­ana. Illa hefur gengið hjá stjórn­völdum að end­ur­heimta traustið í kjöl­farið og í nið­ur­stöðum síð­ustu könn­unar Gallups, sem birt var í febr­úar 2019, um traust til stofn­ana kemur í ljós að traust til Alþingis mælist ein­ungis 18 pró­sent. Það er um 11 pró­sentu­stigum minna en í könnun Gallups árið áður.

Spillingarhætta fyrir hendi
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur er lögð umtals­verð áhersla á traust. Þar stendur meðal ann­ars: „Rík­is­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu.“ Til að fylgja þessu mark­miði eftir skip­aði Katrín starfs­hóp strax í jan­úar 2018 sem hafði það hlut­verk að efla traust á stjórn­mál og stjórn­sýslu.
Starfs­hóp­ur­inn skil­aði skýrslu um mál­efnið í sept­em­ber sama ár þar sem lagðar voru fram 25 til­lögur til að efla traust á stjórn­sýsl­unni. Í skýrslu starfs­hóps­ins segir að Íslend­ingar hafi farið sér hægar en nágranna­þjóðir í aðgerðum til að tryggja heil­indi í opin­berum störfum og að hér á landi hafi minna til­lit verið tekið til til­mæla og leið­bein­inga alþjóð­legra stofn­ana um varnir gegn spill­ingu en æski­legt hefði verið.

Þar á meðal eru til­mæli frá GRECO, sam­tökum ríkja innan Evr­ópu­ráðs­ins, sem sett voru fram í fimmtu úttekt sam­tak­anna á Íslandi. Þá var mælst til þess að settar yrðu reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds við hags­muna­verði og aðra sem leit­ast við að hafa áhrif á störf stjórn­valda.

Afar tak­mark­aðar reglur hafa verið settar hér á landi um hags­munavörslu, sam­kvæmt skýrslu starfs­hóps­ins. Þingmönnum, ráðherrum, aðstoð­armönnum þeirra eða emb­ætt­ismönnum er til að mynda ekki skylt að skrá sam­skipti sín við hags­muna­að­ila sérstak­lega, hvort sem um er að ræða bein tengsl við fyr­ir­tæki eða for­ystu­menn þeirra eða við hags­muna­verði fyr­ir­tækja eða sam­taka.

Starfs­hóp­ur­inn taldi það mik­il­vægt að gæta sérstak­lega að þremur þáttum í sam­skiptum stjórn­valda við hags­muna­að­ila. Í fyrsta lagi þyrfti að vera hafið yfir allan vafa að jafn­ræði ríkti um aðkomu hags­muna­að­ila. Í öðru lagi að tryggja að ekki væri hægt að halda því fram að sérhags­munir væru teknir fram yfir almanna­hags­muni og í þriðja lagi þyrfti að ríkja gagn­sæi um aðkomu hags­muna­að­ila, þar á meðal um sam­skipti við ráðherra, þing­menn og opin­bera starfs­menn.

Í kjöl­far skýrsl­unnar hefur for­sæt­is­ráðu­neytið birt áform um laga­setn­ingu þess efnis í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem byggð eru á til­lögum starfs­hóps­ins. Ráðu­neytið hyggst meðal ann­ars gera öllum aðilum sem sinna hags­munavörslu – þeim sem hafa það að aðal­starfi að tala máli einka­að­ila, eins eða fleiri, gagn­vart handhöfum ríkis­valds – skylt að til­kynna sig til stjórnvalda svo unnt sé að birta opin­ber­lega skrá yfir þá. Þar á meðal eru almanna­tenglar og lög­menn sem koma fram fyrir hönd til­tek­inna aðila. Og auð­vitað þeir sem starfa beint fyrir hags­muna­sam­tök.

Þá gerir ráðu­neytið ráð fyrir að skráin verði birt í B-deild Stjórnartíðinda og á vef Stjórnarráðs Íslands. Jafn­framt segir ráðu­neytið að skoða þurfi hvort og þá hvaða við­urlög eigi að vera við því að van­rækja til­kynn­inga­skyld­una.

Enn fremur er fyr­ir­hugað að mælt verði fyrir því í laga­frum­varp­inu að ráðherrar, aðstoð­ar­menn, ráðuneyt­is­stjórar, skrif­stofu­stjórar og sendi­herrar geti ekki í til­tek­inn tíma eftir að opin­beru starfi lýkur gegnt starfi fyrir skráða hags­muna­verði. Gert er ráð fyrir þeirri meg­in­reglu að fram­an­greindir aðilar þurfi að bíða í átta mánuði frá starfs­lokum en þó með und­an­tekn­ingum.

Starfs­hóp­ur­inn lagði þessa til­lögu fram í ljósi þess að þegar ein­stak­lingur sem starfað hefur fyrir hið opin­bera færir sig úr starfi er ann­ars vegar hætta á að hags­munir verð­andi vinnu­veit­anda geti haft áhrif á ákvarð­anir á meðan ein­stak­lingur starfar enn fyrir hið opin­bera. Hins vegar er sá mögu­leiki fyrir hendi að upp­lýs­ingar sem við­kom­andi öðl­ast í starfi sínu séu nýttar á ótil­hlýði­legan hátt í þágu einka­að­ila þegar skipt er um starfs­vett­vang, en slíkt getur bæði haft ólög­mæt áhrif á sam­keppni og gengið gegn opin­berum hags­munum.

Ítarlega frétta­skýr­ingu má lesa um málið í nýjasta Mannlífi og á Kjarninn.is

Texti / Birna Stef­áns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fréttaskýring

Þorgerður Katrín með flest spil á hendi: Brotthvarf Bjarna gæti opnað á stjórnarsamstarf
Innlentfréttaskýring

Þor­gerður Katrín með flest spil á hendi: Brott­hvarf Bjarna gæti opnað á stjórn­ar­sam­starf

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, er með flest spil á hendi og getur ráðið því hvort mynduð verður stjórn til vinstri eða hægri. Eins og staðan er nú er lík­leg­ast að Viðreisn halli sér að Sam­fylk­ingu. Fjöl­margt sam­einar flokk­ana tvo og eftir því er tekið að Kristrún Frosta­dóttir og Þor­gerður Katrín eiga góða sam­leið. Þær tvær ættu góðan mögu­leika á...
Framkvæmdir framundan í Grindavík fyrir hálfan milljarð: „Taka mið af áhættumati hverju sinni“
Innlentfréttaskýring

Fram­kvæmdir framundan í Grinda­vík fyrir hálfan millj­arð: „Taka mið af áhættu­mati hverju sinni“

Und­an­farið hafa stjórn­völd skoðað til­lögur Grinda­vík­ur­nefnd­ar­innar er lúta að við­gerðum í bænum vegna jarð­hrær­ing­anna örlaga­ríku. Mynd: Skjáskot af RÚV. Formaður nefnd­ar­innar – Árni Þór Sig­urðs­son – segir að fyrst verði gert við götur og að kostn­aður muni hlaupa á hund­ruðum millj­óna króna. Grinda­vík­ur­nefndin svo­kall­aða hefur umsjón með fram­kvæmdum og við­gerðum á mik­il­vægum innviðum í Grinda­vík; það er deg­inum ljós­ara að...
Verðkönnun ópíóíða: „Ekkert fenta blandað drasl“
Innlentfréttaskýring

Verð­könnun ópíóíða: „Ekkert fenta blandað drasl“

Á Íslandi er stór mark­aður ólög­legra fíkni­efna. Úrvalið hefur aldrei verið meira og aðgengi greið­ara. Fíkni­efna­salar telja hund­ruð og margir þeirra með heim­keyrslu á efnum, sumir um allt land. Blaða­maður Mannlífs kann­aði mark­að­inn. Nokkur ár eru síðan kaup og sala fíkni­efna færð­ist af sam­fé­lags­miðlum líkt og Facebook, þar voru hópar stofn­aðir til þess að aug­lýsa efni og nálg­ast síma­númer hjá...
Ávinningur og fylgikvillar offituaðgerða – Ísland á Norðurlandamet í ofþyngd
Innlentfréttaskýring

Ávinn­ingur og fylgi­kvillar offitu­að­gerða – Ísland á Norð­ur­landa­met í ofþyngd

Vin­sældir offitu­að­gerða hafa auk­ist gríð­ar­lega með árunum. Bæði erlendar og íslenskar rann­sóknir sýna ávinn­ing að offitu­að­gerðum og litlar líkur á fylgi­kvillum. Ísland á Norð­ur­landa­met í offitu og er talið að 60% þjóð­ar­innar séu í ofþyngd sem setur stóran hóp fólks í áhættu­hóp fyrir fjölda sjúk­dóma. Árið 2021 voru 18% grunn­skóla­barna í ofþyngd og 7% þeirra glímdu við offitu. Notast er...
Samskiptastjóri Carbfix: „Umhverfismál eru ofmetinn málaflokkur – Yfirborð sjávar er ekki að hækka“
Innlentfréttaskýring

Sam­skipta­stjóri Carbfix: „Umhverf­is­mál eru ofmet­inn mála­flokkur – Yfirborð sjávar er ekki að hækka“

Í árs­byrjun 2022 var greint frá því að Carbfix, dótt­ur­fyr­ir­tæki OR, hefði ráðið sér „sam­skipta­stjóra,“ en í því emb­ætti felst að sinna kynn­ing­ar­málum og tala fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins í fjöl­miðlum. Sam­skipta­stjór­inn hjá Carbfix heitir Ólafur Teitur Guðnason. Ólafur Teitur hefur lengi verið virkur í sam­fé­lags­um­ræð­unni og á árunum 2004-2007 skrif­aði hann viku­lega pistla í Við­skipta­blaðið þar sem frétta­flutn­ingur í íslenskum...
Hallarbylting í Ferðafélaginu átti að færa Róberti forstjórastólinn: Anna Dóra kærð fyrir einelti
Innlentfréttaskýring

Hall­ar­bylt­ing í Ferða­fé­lag­inu átti að færa Róberti for­stjóra­stól­inn: Anna Dóra kærð fyrir ein­elti

Átökin innan Ferða­fé­lags Íslands eiga sér margra mán­aða aðdrag­anda. Forseti félags­ins, Anna Dóra Sæþórs­dóttir, vann leynt og ljóst að því að koma Páli Guð­munds­syni úr starfi fram­kvæmda­stjóra félags­ins með aðferðum sem túlk­aðar voru sem ein­elti. Enginn annar innan níu manna stjórnar félags­ins var sam­mála því að reka fram­kvæmda­stjór­ann sem um ára­bil hefur skil­aði félag­inu með hagn­aði og í far­sælum rekstri....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins