„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“
Erla Bolla­dóttir

Sjá einnig: Þögn Katrínar meiðir meira

Erla var dæmd fyrr mein­særi ásamt tveimur öðrum. Hinir sak­born­ing­arnir hafa fengið mál sín tekin upp og voru allir sýkn­aði af sak­fell­ingu fyrir mann­dráp „Þangað til þetta hef­ur verið leið­rétt er þetta mál ekki búið, hvorki fyr­ir okk­ur, fjöl­skyld­urn­ar okk­ar né ís­lensku þjóð­ina. Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp,“ segir Erla við Morg­un­blaðið. Hún er eini aðili máls­ins sem gert er að una við dóm sinn óbreyttan.

Sjá einnig: Erla Bolla­dóttir ósátt: „Af hverju forð­ast menn að ræða sjálfa rann­sókn­ina“

Erla fund­aði með Katrínu Jak­obs­dóttur í lok síð­asta árs og hefur síðan beðið frek­ari við­bragða yfir­valda.  Í sam­tali við Mannlíf síð­ast­lið­inn maí lýsti Erla yfir von­brigðum með aðkomu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra og for­manni VG, að mál­inu. „Ég er sár út í Katrínu. Ég fyllt­ist von um að nú kæmi ein­hver nið­ur­staða sem mundi feykja skýj­unum frá sól­inni,“ sagði Erla.

Sjá einnig: Er ekki kom­inn tími til að draga rétt fólk fyrir dóms­stóla?

Þá ræddi hún fund sinn og for­sæt­is­ráð­herra við Mannlíf. „Ég hitti Katrínu og reif­aði þau mál sem þurfti og það var fínt að tala við hana. Hún sagði reyndar í upp­hafi fundar að hún vildi að við hitt­umst aftur í lok jan­úar því þá ætl­aði hún að geta útskýrt fyrir mér stöð­una. Seinna á þessum fundi ítrek­aði hún að við hitt­umst aftur í lok jan­úar. Þann sjö­unda febr­úar sendi ég henni tölvu­póst og sagð­ist vera orðin lang­eyg eftir fund­inum til þess að geta ákveðið næstu skref. Ekkert svar. Í fyrri hluta mars sendi ég aftur póst og sagði að enn hefði ég ekk­ert heyrt. Var vissu­lega orðin sár og að reyna að skilja hverju sætti að mér væri ekki svarað. Enn hef ég ekk­ert heyrt.

Ef þú biður ein­hvern fyr­ir­gefn­ingar en heldur svo áfram að sparka í við­kom­andi, er það þá mark­tæk fyr­ir­gefn­ing­ar­beiðni? Þetta tvö­falda sið­ferði að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar en halda svo öllum á stað sem heldur áfram að meiða og særa við­kom­andi. Að halda þessu svona vof­andi yfir þeim sem hafa mátt þola allt sem á undan er gengið er fram­koma sama eðlis og við höfum alla tíð mátt þola af hálfu þessa kerfis.“

Hún sagði mál­inu ekki ljúka fyrr en hún, Sævar og Kristján hafi öll verið sýknuð af röngum sak­ar­giftum. „Enginn vilji virð­ist hins vegar hafa verið í rétt­ar­kerf­inu á neinu stigi máls­ins til að takast á við þá ábyrgð sem á því hvílir í þessu hörmu­lega máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmálið

„Ég hef aldrei séð mál í líkingu við Guðmundar- og Geirfinnsmálið“
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmálið

„Ég hef aldrei séð mál í lík­ingu við Guð­mundar- og Geir­finns­málið“

Íslensk yfir­völd hafa aldrei með form­legum hætti óskað gagna eða aðstoðar þýskra yfir­valda við upp­gjör Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins þrátt fyrir aðkomu þýska rann­sókn­ar­ráð­gjafans Karl Schütz að rann­sókn máls­ins. Þetta kemur fram í svari við fyr­ir­spurn Andrej Hunko, þing­manns Die Linke, í þýska þing­inu.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins