„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Umdeildur auðjöfur segist aðeins vilja vernda laxastofna

Jim Ratcliffe, breskur auð­jöfur og land­eig­andi á Íslandi, vill stækka hrygn­ar­svæði laxa á Norð­aust­ur­landi. Stefnt er að bygg­ingu nýrra laxa­stiga í Hafra­lónsá í Þistil­firði og Hofsá og Mið­fjarð­ará í Vopna­firði. Þá er áætlað að fram­kvæmd­irnar taki fimm ár.

Umdeildur auðjöfur segist aðeins vilja vernda laxastofna
Jim Ratcliffe

Ratcliffe og við­skipta­fé­lagar hans eiga nú hátt í 40 jarðir á Norð­aust­ur­landi. Margar hverjar liggja að gjöf­ulum lax­veiðiám. Sam­an­lögð stærð eign­anna er um 1000 fer­kíló­metrar. Það er um 1% af Íslandi. Samkvæmt yfir­lýs­ingu er ástæða kaupanna og fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda að vernda laxa­stofna. „Til þess að hægt sé að auka lífslíkur teg­und­ar­innar sem mest, þá stendur Ratcliffe einnig að ítar­legri lang­tíma­rann­sókn á afkomu íslenska lax­ins í ánum og í norð­an­verðu Atl­ants­hafi,” segir í til­kynn­ing­unni. „Rann­sóknir fara fram í sam­starfi við Haf­rann­sókna­stofnun og háskóla innan lands og utan.“

„Í sam­starfi við nær­sam­fé­lagið á Norð­aust­ur­landi vinnur Jim Ratcliffe einnig gegn jarð­eyð­ingu og að bættu heilsu­fari vist­kerfis ánna, með fjár­fest­ingu í end­ur­ræktun skóga og end­ur­heimt gróð­ur­fars. Þá er fyr­ir­huguð umfangs­mikil slepp­ing á frjóvg­uðum hrognum íþessum ám, auk Selár. Þetta er í sam­ræmi við almenna veiði­reglu ánnaum að veiddum fiski sé sleppt aftur.“

Eiga yfir 1% af Íslandi

Eins og áður segir Ratcliffe sölsað undir sig jarðir ásamt við­skipta­fé­lögum sínum á Norð­aust­ur­landi. Samkvæmt sam­an­tekt Morg­un­blaðs­ins í fyrra eiga þeir hátt í 40 jarðir á Íslandi. Um 30 þeirra eru í Vopna­firði og liggja margar hverjar að gjöf­ulum lax­veiðiám. Meðal þeirra eru Selá, Vesturá, Hofsá og Sunnu­dalsá. Sam­an­lögð stærð lands­ins, sam­kvæmt skrán­ingu Nytja­lands frá 2006, er ríf­lega 1000 fer­kíló­metrar. Það er um 1% alls land­svæðis Íslands.

Ratcliffe keypti eign­ar­halds­fé­lagið Græna­þing síð­ast lið­inn nóv­em­ber. Með kaup­unum eign­að­ist hann 86,67 pró­senta hlut í veiði­fé­lag­inu Streng ehf. sem heldur utan um leigu á Selá og Hofsá. Félagið á sex jarðir í Vopna­firði að hluta eða að öllu leyti. Þá á Strengur einnig veg­legt veiði­hótel við Selá.

Á meirihluta veiðiréttar í Hafralónsá, Hofsá og Selá

RÚV greindi frá kaupum fjár­fest­inga­fé­lags­ins Sól­ar­salir á Brú­ar­landi 2 í Þistil­firði síð­ast­lið­inn júlí. Félagið er í eigu Ratcliffe. Eftir kaupin eiga félög í hans eigu meiri­hluta veiði­réttar í Hafra­lónsá sem er vin­sæl lax­veiðiá í Þistil­firði.

Fyrir á Ratcliffe jarð­irnar Hvamm eitt, þrjú og fjögur í Þistil­firði. Jóhannes Sig­fús­son, bóndi á Gunn­ars­stöðum og for­maður veiði­fé­lags Hafra­lónsár sagði í sam­tali við RÚV að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við land­eig­endur við kaupin. „Alla vega hefur eng­inn hug­mynd um þetta fyrr en það er búið að ganga frá þessu.”

Eins og þetta með að Brú­ar­land sé byggt út úr Gunn­ars­stöðum og í óskiptu landi, þá höfum við ekki hug­mynd um þetta fyrr en okkur er til­kynnt um þessa sölu,” sagði Jóhannes. „Ég held að skatt­ur­inn ætti nú að skoða þessi mál. Það er eini aðil­inn sem hefur til þess tæki til hvernig þetta fer fram. Ég held að það sé svo­lítið mikið um það að þetta sé bara borgað allt með seðlum.“

Sjá Einnig: „Þetta er eins mikið kjaftæði og hugs­ast getur“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

jim ratcliffe

„Þetta er eins mikið kjaftæði og hugsast getur“
Innlent

„Þetta er eins mikið kjaftæði og hugs­ast getur“

Jim Ratcliffe, rík­asti maður Bret­lands, hefur á und­an­förnum árum keypt upp fjölda jarða og lóða á Norð­aust­ur­landi, m.a. í Vopna­firði, Þistil­firði og á Grím­stöðum á Fjöllum. Í vik­unni greindi Frétta­blaðið frá því að Ratcliffe hafi keypt eign­ar­hald­fé­lagið Græna­þing af Jóhann­esi Krist­ins­syni fjár­festi og eign­ast þannig 86,67 pró­senta hlut í veiði­fé­lag­inu Streng ehf. Félagið er með Selá og Hofsá í Vopna­firði...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins