„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lúsmýið sækir í Vinstri græn en er síst fyrir Pírata

Tæplega fjórð­ungur lands­manna hafa verið bitnir af lús­mýi síð­ast­liðna tólf mán­uði. Þá þekkja 59% ein­hvern sem hefur verið bit­inn. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum könn­unar sem Zenter rann­sóknir stóðu fyrir. Vísir greinir frá.

Lúsmýið sækir í Vinstri græn en er síst fyrir Pírata
Lúsmý

Í könn­un­inni var hægt að taka fram stjórn­mála­skoð­anir og er athygl­is­vert að sjá mis­mun­andi nið­ur­stöður eftir skoð­unum. Stuðn­ings­menn Vinstri grænna virð­ast lík­leg­astir til að vera bitnir en 34% sögð­ust hafa orðið fyrir barð­inu á lúsmý. Stuðn­ings­menn Við­reisnar og Fram­sókn­ar­manna eru einnig lík­legir til að fá bit en um þriðj­ungur beggja hópa hefur verið bit­inn.

„Þetta segir okkur aug­ljós­lega að við erum hluti af þess­ari stóru líf­veru sem nátt­úran er í meira mæli en aðrir,“ hefur Vísir eftir Kolbeini Ótt­ar­syni Proppé, vara­for­manni þing­flokks Vinstri grænna. Þá hefur hann sjálfur ekki verið bit­inn af lús­mýi í sumar þrátt fyrir tíða dvöl í sum­ar­bú­stað í Þjórs­ár­dal. „Þetta er ekki enn komið þangað en það hlýtur eig­in­lega að vera tíma­spurs­mál hvenær það ger­ist. Maður heyrir af þessu víða í upp­sveitum Suð­ur­lands.“

Stuðn­ings­menn Pírata virð­ast hafa sloppið best enn um 16% sögð­ust hafa fengið bit. Þá svör­uðu 19% stuðn­ings­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins ját­andi, 22% Sam­fylk­ing­ar­innar og um fjórð­ungur stuðn­ings­manna Flokks fólks­ins.

Fyrst vart við lúsmý árið 2015

Lands­menn urði fyrst varir við lús­mýið í Hval­firði 2015. Nú hefur það gert vart við sig á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar. Sum­ar­bú­staða­fólk hefur þurft að yfir­gefa bústaði sína víða á Suð­ur­landi vegna ónæðis frá mýinu en stungur þess geta valdið svæsnum ofnæm­is­við­brögðum. Til eru dæmi um fólk sem hefur selt sum­ar­bú­staði sína vegna far­ald­urs­ins svo ljóst er að smá­dýrin valda miklum usla.

Sjá einnig: Heitar teskeiðar og laukur í bar­átt­unni gegn lús­mýi

Lúsmýið er rúmur milli­metri að stærð og sést vart með berum augum en lík­ist helst frjó­kornum sem virð­ast fjúka um loftið en stekkur á menn og dýr, nær­ist á blóði og skilur svo eftir sig ljót sár. Mýið bítur jafnt utan- sem inn­an­dyra og smýgur inn í fatnað sem og í hár­svörð svo erfitt er að verj­ast bitum. Húðin verður rauð, bólgin og hnúða­kennd en mik­ill kláði fylgir í kjöl­farið. Að öðru leyti ættu bitsár ekki að valda óþæg­indum nema við­kom­andi hafi ofnæmi fyrir skor­dýra­biti.

Faraldur á Facebook

„Lúsmýið er komið og greini­lega til að vera. Slæm send­ing og virki­lega aggresíft kvik­indi. Síðasta nótt var erfið og ég kvíði sann­ar­lega kom­andi nætur. Þessi mynd af hand­legg mínum er nán­ast að end­ur­taka sig.“ Þetta skrif­aði Karl Tómasson, trymb­ill Gildrunnar og bæj­ar­stjórn­ar­maður í Mos­fellsbæ, á Facebook síðu sinni. „Hún réð­ist beint á æðina á hand­legg mínum. Þetta er svaka­lega slæm send­ing. Bitin eru vond, maður finnur fyrir þeim og kláð­inn er mik­ill.“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens hefur einnig greint frá því að vera bit­inn af lúsmý. Þá hefur Hildur Helga Sig­urð­ar­dóttir fjöl­miðla­kona lýsti yfir komu lús­mýs­ins til Hvera­gerðis: „Illa inn­rætt lúsmý sækir nú á Hver­gerð­inga, ekki síst um kyrrar nætur,“ skrif­aðir Hildur Helga á Facebook. „Kemur, að sögn spakra manna, úr Bisk­ups­tungum, herjar nú á Hveró og sækir til Reykja­víkur. Þessi óféti bíta allt sem fyrir verður, en eru sem næst ósýni­leg berum augum. Er sjálf til­von­andi ofur­fyr­ir­sæta í virtum lækna­tíma­ritum, þar sem hjúkr­un­ar­vaktin baðst góð­fús­lega leyfis til mynda­töku í morgun, „til að sýna lækn­unum í hádeg­inu“. Hefði gjarnan viljað vera án þess­arar upp­hefðar, en hvað sam­þykkir kona ekki í þágu vís­ind­anna.“

Lands­menn sem hafa orðið fyrir barð­inu á lús­mý­inu geta leitað ráða í Facebook hópnum Lúsmý á Íslandi. Meðlimir eru um 2500 íslend­in­gas sem skipt­ast á öllum mögu­legum upp­lýs­ingum um smá­dýrin. Þar má finna reynslu­sögur af bitum, úrræðum og kort­lagn­ingu á útbreiðslu vargs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Tíu mest streituvaldandi störfin – Er það þitt starf?
Menning

Tíu mest streitu­vald­andi störfin – Er það þitt starf?

Samkvæmt árlegri skýrslu CareerCast, um mest streitu­vald­andi störfin, eru her­menn efstir á lista. Listinn breyt­ist nokkuð á milli ára að frá­töldum þremur efstu sæt­unum. Í öðru sæti er starf slökkvi­liðs­manna og í því þriðja flug­manna. Samkvæmt Kyle Kensing, rit­sjóra CareerCast, segir hann fyr­ir­tækið not­ast við margs­konar aðferðir þegar streitu­stig er mælt. Útkoman kom honum ekki á óvart en hér að...
Ísland er næst dýrast í Evrópu – Hundrað prósent dýrari þegar kemur að menntun og heilsu
Innlentkönnun

Ísland er næst dýr­ast í Evrópu – Hundrað pró­sent dýr­ari þegar kemur að menntun og heilsu

Samkvæmt nið­ur­stöðum úr rann­sókn Eurostat, töl­fræði­stofnun Evrópu, er verð­lag á Íslandi næst­hæst á eftir Sviss. Þá sé verð­lag um fimm­tíu pró­sentum hærra en með­al­verð Evr­ópu­landa. Fatnaður og skór kost­uðu mest á Íslandi á síð­asta ári en árið 2020 var fatn­aður dýrastur í Danmörku. Því er ljóst að tölu­verð hækkun hefur orðið hér á landi eða um tíu pró­sent á einu...
Meiri kvíði hjá stúlkum og kynsegin nemendum heldur en hjá drengjum
Innlent

Meiri kvíði hjá stúlkum og kynsegin nem­endum heldur en hjá drengjum

Nið­ur­staða úr könnun frá Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands sýnir að einn af hverjum tíu nem­endum í 8., 9., og 10. bekk segir að les­blinda hafi mikil eða mjög mikil áhrif á frammi­stöðu sína í námi. Alls tóku 10.895 nem­endur á ung­linga­stigi þátt í könn­un­inni en spurn­ing­arnar voru um líðan og nám auk ann­arra atriða. Frétta­blaðið fjall­aði um málið í morgun. Sýnir...
Miðflokkurinn rýkur upp í fylgi á kostnað Sjálfstæðisflokks
Innlentkönnun

Mið­flokk­ur­inn rýkur upp í fylgi á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur í júlík­önnun MMR en virð­ist tapa umtals­verðu fylgi yfir til Mið­flokks­ins. Könnunin var gerð dag­ana 4. til 17. Júlí. Samkvæmt henni mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 19 pró­senta fylgi sam­an­borið við 22,1 pró­sent í síð­ustu könnun. Píratar eru næst stærstir og mæl­ast með 14,9 sem er 0,5 pró­sentu­stiga aukn­ing frá því áður. Mið­flokk­ur­inn er hástökkvari könn­un­ar­innar, mælist nú með...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins