„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hvort erum við lítil þjóð eða stór?“

Mannlíf tók sem fyrr saman nokkur af ummælum lið­innar viku. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar skor­aði á stjórn­völd að end­ur­skoða reglu­gerð um mót­töku barna sem sækja um alþjóð­lega vernd hér á landi með orð­unum hér að ofan.

„Hvort erum við lítil þjóð eða stór?“

„Það er sann­ar­lega göf­ugt mark­mið að fækka feita­bollum þessa heims en til­gang­ur­inn má ekki helga með­alið, ekki í þessu fremur en almennum lyfja­rann­sóknum. Að auka álögur á fólk vegna neyslu lög­legrar vöru er ekki rétt­læt­an­leg til að ná þessu mark­miði.“
Stefán Einar Stef­áns­son blaða­maður um syk­ur­skatt­inn.

„Fasismi sem stjórn­mála­skoðun í upp­hafi síð­ustu aldar ein­kennd­ist ákaf­lega mikið af áherslu á lýð­heilsu og hreysti.“
Guð­mundur Stein­gríms­son er heldur ekki hrif­inn og segir syk­ur­skatt­inn minna á fas­isma.

„Það er kannski ágætt fyrir menn að hafa þessar stað­reyndir í huga þegar þeir svo velta fyrir sér við­brögðum Þór­hildar Sunnu, að það var hennar eigin ósk að siða­nefndin fjall­aði um málið. Hún komst að þess­ari nið­ur­stöðu og hún stendur.“
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, furðar sig á við­brögðum Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur þing­manns við afstöðu for­sætis­nefndar, eftir að hún stað­festi nið­ur­stöðu siða­nefndar.

„Katrín er með sanni ekki neitt glugga­skraut, hún er valdapóli­tíkus af gamla skól­anum sem lítur á völd sem æðsta til­gang stjórn­mála­manns­ins.“
Birgitta Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður, er ekki beint sátt við störf Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

„Þær [kvik­mynda­há­tíðir, innsk, blm.] senda útsend­ara víða um heim, þar sem þeir prumpa kolefni. Þær bjóða erlendum gestum, sem prumpa kolefni. Þeir borða kjöt, ferð­ast með leigu­bílum, hækka í loft­kæl­ing­unni. Eru kvik­mynda­há­tíðir hluti af vanda­mál­inu? Já. Geta þær haldið áfram eins og látið sem ekk­ert sé? Nei.“
Benedikt Erlingssson leik­stjóri gagn­rýnir kvik­mynda­há­tíðir fyrir kolefn­is­mengun. Á kvik­mynda­há­tíð. Í Tékk­landi. Sem hann þáði boð á.

„Djöfull er það aumt að hlusta á þetta aðkeypta hyski þarna í Vest­ur­bænum, reyna að snobba sig upp um stærð á prima­loftúlpum með að púa á Arnar Svein.“
Helgi Seljan Jóhanns­son, fjöl­miðla­maður blöskr­aði fram­ganga fylg­is­manna KR í leik KR og Breiða­bliks í Pepsi Max-deild karla. Baul áhan­genda KR á Arnar Sveinn Geirsson, leik­mann Blika, fór fyrir brjóstið á Helga.

„Þessi þróun er til skammar.“
Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, finnst lands­menn ekki huga nógu vel að íslensk­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf 26. tbl 2019

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins