„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ostar í veisluna

Osta­bakkar eru löngu orðnir sígildir í veisl­una og geta þeir verið mikil prýði á borð­inu. Úrval osta, bæði inn­lendra og erlendra, fer vax­andi á Íslandi og því verður auð­veld­ara fyrir fólk að fara út í búð og velja skemmti­lega og ólíka osta til að bera fram í boð­inu.

Ostar í veisluna

Á mínu heim­ili tíðkast að búa til veg­legan osta­bakka með ýmsu með­læti eftir morg­un­mat­inn á aðfanga­dag. Bakkinn er síðan settur á borð­stofu­borðið og fær að sitja þar fyrir heim­il­is­menn og gesti og gang­andi til að narta í. Þannig er alltaf eitt­hvert góð­gæti fyrir þá sem koma óvænt í heim­sókn og við getum verið róleg í und­ir­bún­ingi jól­anna.

Það er tími og staður fyrir bragð­bætta osta en ég hvet ykkur til að reyna að velja hreina osta þar sem bragð þeirra fær að njóta sín. Auðvitað eru engar reglur varð­andi valið en gott er að miða við að vera með a.m.k. einn ost í hverjum flokki af eft­ir­far­andi:

Þrosk­aður ostur – t.d. gouda, port salut eða cheddar
Mjúkur ostur – t.d. geita­ostur, brie eða camembert
Harður ostur – t.d. manchego, prima donna eða parmesan
Gráð­ostur – gorgonzola, stilton eða roquefort

Þegar búið er að velja ostana á bakk­ann þá er gott að hugsa um hvað parast vel með þeim. Hunang er frá­bært með gráð­osti og geita­osti og fíkjusulta passar með lang­flestum ostum. Pæklað græn­meti er gott til að hreinsa bragð­lauk­ana á milli þess að naslað er á ólíkum ostum. Ferskir og þurrk­aðir ávextir, ásamt ólífum og hnetum, er fal­legt að setja á bakk­ann og þetta hrá­efni gerir alla osta betri. Einnig er gott að vera með dökkt súkkulaði, sterkt sinnep og ólífu­olíu á bakk­anum.

Vínber eru löngu orðin klass­ísk á osta­bakk­ann en gaman er að breyta frá þeirri venju og reyna að velja aðra ferska ávexti, t.d. mandar­ínur, fíkjur og sneiddar perur. Best er að velja þá ávexti í búð­inni sem líta vel út og eru ferskir.

Þegar raðað er á osta­bakk­ann er gott að fylgja eft­ir­far­andi röð: raðið ost­inum á bakk­ann fyrst, setjið síðan skálar á bakk­ann með ólífum, pækluðu græn­meti og hun­angi, næst er kjöt­á­legg­inu raðað á bakk­ann, látið síðan ferska og þurrk­aða ávexti og dreifið að lokum hnetum í bilin sem eftir eru.

Góð ráð

Leggið hníf fyrir hvern ost svo ost­arnir smit­ist ekki þegar þeir eru skornir niður.

Takið ost­inn úr ísskápnum a.m.k. einum klukku­tíma áður en hann er bor­inn fram. Bragð ost­anna nær ekki að njóta sín ef þeir eru kaldir, ostar eru bestir við stofu­hita.

Texti / Nanna Teits­dóttir
Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gestgjafinn

Geggjuð uppskeruhandbók Gestgjafans er komin út
Mannlífið

Geggjuð upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans er komin út

Í þessu blaði er fjöld­inn allur af góm­sætum og spenn­andi réttum úr upp­sker­unni ásamt góðum fróð­leik og ráðum til dæmis um það hvernig á að grilla fisk. Stór þáttur með ein­stak­lega góðum og áhuga­verðum laxa og sil­unga­upp­skriftum allt frá bök­uðum engi­fer og soja­laxi til bleikju með möndlum og blóm­káli. Að auki er að finna í blað­inu súpur úr upp­sker­unni, græn­met­is­bökur,...
Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður