„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Myndband: Skinkubrauðterta sem allir elska

Eflaust hefur það ekki farið fram hjá neinum að við á Gest­gjaf­anum höfum verið í sann­köll­uðu brauðtertu­stuði und­an­farnar vikur, enda gott að henda í brauðtertur til að hvíla köku­átið en köku­blað Gest­gjafans var einmitt að koma í versl­anir. Þessi brauðterta er afar fersk og góð en samt nokkuð klass­ísk og því finnst eig­in­lega öllum hún góð. Brauðtert­una er afar auð­velt að gera eins og sést vel á mynd­band­inu sem fylgir með. Veði ykkur að góðu.

Myndband: Skinkubrauðterta sem allir elska

Brauðterta með skinkusalati, sellerí og rauðlauk

Til að koma í veg fyrir að skinku­sal­atið verði vatns­kennt er gott að þerra græn­metið á pappír áður en því er blandað saman við rest­ina af hrá­efn­inu.

Skinkusalat

250 g majónes
100 g grísk jógúrt
1 msk. þurrkuð paprika
2 msk. gróft dijon-sinnep
1 tsk. cayenne-pipar
½ tsk. svartur pipar
400 g sveita­skinka, skorin smátt
2 stönglar sell­erí, saxað smátt
2 msk. rauð­laukur, fínt skor­inn
2 msk. stein­selja söxuð smátt
3 msk. súrar gúrkur, saxaðar smátt
5 harðsoðin egg, skorin smátt

Blandið saman majónesi, grískri jógúrt, papriku, dijon-sinn­epi, cayenne-pipar og svörtum pipar í stóra skál. Hrærið rest­ina af hrá­efn­inu saman við.

Brauðterta

1 brauðtertu­brauð, í fjórum sneiðum
½ dl grísk jógúrt
1 ½ dl majónes
1 tsk. sítrónu­safi

Skerið endana af brauð­inu og leggið einn brauð­botn á fat eða bretti. Smyrjið brauð­botn­inn með skinku­sal­ati og leggið annan botn ofan á. End­ur­takið ferlið þar til botn­arnir eru búnir. Ekki setja skinku­salat ofan á sein­asta brauðið. Blandið saman í skál sýrðum rjóma, majónesi og sítrónusafa. Smyrjið brauðtert­una á öllum hliðum með blönd­unni.

Til skreytingar

Sítrón­u­sneiðar, salat, soðin egg skorin í sneiðar, græn paprika skorin í sneiðar, lamb­haga­salat, rauðrófu­spírur, radísur skornar í sneiðar. Raðið græn­met­inu á brauðtert­una eftir smekk og gefið sköp­un­ar­kraft­inum lausan taum­inn og bætið við öðru hrá­efni til skrauts að vild.

Mat­reiðsla / Folda Guð­laugs­dóttir
Stílis­er­ing og rit­stjórn / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Mynda­taka/ Hákon Davíð Björns­son og Hallur Karlsson
Klipping / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

brauðréttir

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar