„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gerðu þína eigin sælkeraskál

Nota­legur matur eða „comfort food“ er eitt­hvað sem við þörfn­umst reglu­lega en hvað er nota­legra en að kúra undir teppi með fulla skál af mat sem nærir lík­ama og sál. Afgangar eru sér­stak­lega hentugir í sæl­kera­skálar og ótrú­legt hvað eitt egg, svo­lít­ill kjúklinga­biti, nokkrar baunir eða sal­at­blað geta gert mikið og hrá­efni á borð við sriracha-sósu, majónes, pestó, góða ólífu­olíu, parmesan-ost, hnetur og fræ geta gert gæfumun­inn. Hér er upp­skrift af sæl­kera­skál sem auð­velt er að breyta eftir þörfum. Hér gildir að láta hug­mynda­flugið ráða.

Gerðu þína eigin sælkeraskál
Allt í einni skál. |
Kúrbíts- og kjúklinga­skál með baunum og ofn­bök­uðum tómötum. Stílisti/Ólöf Jakobína Ernu­dóttir Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Kúrbíts- og kjúklingaskál með baunum og ofnbökuðum tómötum

fyrir 1-2

Kúr­bíts­strimlar
1 stór kúr­bítur
1 tsk. gróft sjáv­ar­salt
olía til steik­ingar
2 hvít­lauks­geirar, smátt saxaðir
1 dós bland­aðar baunir, skol­aðar vel
2 msk. grænt pestó
kjúklinga­kjöt, eldað (sjá upp­skrift)
3 dl soð­inn búlgur
ofn­bak­aðir kirsu­berjatómatar (sjá upp­skrift)
hnefa­fylli radísu­spírur
1 soðið egg
1 msk. grænt pestó
hnefa­fylli fersk stein­selja, söxuð
1-2 msk. rif­inn parmesan-ostur
skvetta ólífu­olía
salt og pipar
sítrónu­safi eftir smekk

Rífið kúr­bít­inn í strimla með græn­met­is­skræl­ara og dreifið á hreint viska­stykki. Stráið salti yfir og látið þetta standa í a.m.k. 30 mín. Notið þá eld­hús­pappír til þess að þerra kúr­bíts­striml­ana vel og ná sem mestu vatni úr þeim. Hitið olíu á pönnu og steikið hvít­lauk í stutta stund. Bætið baun­unum út á og steikið í nokkrar mín. Setjið þá kúr­bít­inn á pönn­una ásamt pestói og látið hitna í gegn. Athugið að steikja kúr­bít­inn ekki of lengi því þá verður hann að mauki, hann á bara rétt að hitna. Raðið kjúklingi, kúr­bít, baunum, búlgur og tómötum í skál ásamt spírum og soðnu eggi. Dreifið pestói yfir hér og þar og stráið parmesan-osti, stein­selju og salti og pipar yfir og dreypið vel af ólífu­olíu yfir. Bragð­bætið með sítrónusafa eftir smekk.

Kjúklingur
2-3 úrbeinuð kjúklinga­læri
1-2 msk. rautt pestó
1 msk. olía
nýmal­aður svartur pipar
gróft sjáv­ar­salt

Blandið öllu saman og steikið kjúkling­inn á heitri grillpönnu í 4-5 mín. á hvorri hlið eða þar til kjúkling­ur­inn er eld­aður í gegn. Látið kólna lít­il­lega og skerið í strimla.

Ofn­bak­aðir kirsu­berjatómatar
170 g kirsu­berjatómatar
1 msk. ólífu­olía
1 hvít­lauks­geiri, rif­inn fínt
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar

Hitið ofn í 190°C. Blandið öllu vel saman og setjið á bök­un­ar­papp­írs­klædda ofn­plötu. Bakið tómatana í u.þ.b. 12-15 mín.

Búlgur er gjarnan notað í mat­ar­gerð frá Mið-Aust­ur­löndum og Indlandi en einnig er það algengt í evr­ópskri mat­ar­gerð enda svipar því til pasta, þurrkuð hveiti­blanda sem er soðin í vatni. Hlut­föllin eru yfir­leitt 1 hluti búlgur á móti 1 hluta vatns.

Umsjón/Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir/Hákon Davíð Björns­son
Stílisti/Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gestgjafinn

Geggjuð uppskeruhandbók Gestgjafans er komin út
Mannlífið

Geggjuð upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans er komin út

Í þessu blaði er fjöld­inn allur af góm­sætum og spenn­andi réttum úr upp­sker­unni ásamt góðum fróð­leik og ráðum til dæmis um það hvernig á að grilla fisk. Stór þáttur með ein­stak­lega góðum og áhuga­verðum laxa og sil­unga­upp­skriftum allt frá bök­uðum engi­fer og soja­laxi til bleikju með möndlum og blóm­káli. Að auki er að finna í blað­inu súpur úr upp­sker­unni, græn­met­is­bökur,...
Nokkrar staðreyndir um kassavín …
Mannlífið

Nokkrar stað­reyndir um kassa­vín …

Fyrir nákvæm­lega 50 árum síðan, lagði Ástr­al­inn Thomas Angove, vín­gerð­ar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vín­mark­aðnum. Poki úr pólý­etý­len­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa. Neyt­endur þurftu bara að klippa hornið af pok­anum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þró­að­ist fljót­lega,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður